Nýbygging í leikskólanum

Leikskólinn Lækjarbrekka | 08. apríl 2013
Í dag hefur verið mikið um að vera í Dvergakoti. Okkur áskotnaðist heljarinnar stór pappakassi sem börnin, ásamt Jóhönnu, eru búin að breyta í ljómandi fínan kofa. Búið er að skera út bæði glugga og hurð og mála hann að utan. Eins og gefur að skilja eftir slíkar framkvæmdir eru þeir vinnuglöðustu með aðeins öðrum lit en þegar þeir fóru að heiman í morgun!!
Frábært framtak :)

Guðný 4 ára

Leikskólinn Lækjarbrekka | 08. apríl 2013
Guðný okkar er orðin fjögurra ára. Hún fékk afmæliskórónu og var sunginn fyrir hana afmælissöngurinn. Innilega til hamingju með afmælið Guðný!

Ingvar Þór 2 ára

Leikskólinn Lækjarbrekka | 08. apríl 2013
Ingvar okkar er orðinn tveggja ára. Hann fékk afmæliskórónu og var sunginn fyrir hann afmælissöngurinn. Innilega til hamingju með afmælið Ingvar Þór!

Gleðilega páska

Leikskólinn Lækjarbrekka | 27. mars 2013
Við óskum börnum, foreldrum og starfsfólki gleðilegrar páskahátíðar.
Minnum á að það er dótadagur í leikskólanum þriðjudaginn eftir páska.



Brallað í fataklefanum

Leikskólinn Lækjarbrekka | 27. mars 2013
Í leikskólanum er hægt að bralla ýmislegt. Þær stöllur Sigríður Sól og Amira Linda voru að leika saman í fataklefanum. Skyndilega greip þær mikil þörf að leggja sig aðeins og hófust þær handa við að búa sér til mjúkt bæli til að kúra í. Það þarf ekki alltaf teppi og dýnur til að láta fara vel um sig. :)
Starfsfólk Tröllakots fékk svo að spreyta sig á að koma fötunum aftur til síns heima.
Skemmtilegt uppátæki og mikil gleði!!

Ólafur Kristinn 3 ára

Leikskólinn Lækjarbrekka | 27. mars 2013
« 1 af 2 »
Ólafur okkar er orðinn þriggja ára. Hann fékk afmæliskórónu og var sunginn fyrir hann afmælissöngurinn. Innilega til hamingju með afmælið Ólafur!

Minnum á könnunina

Leikskólinn Lækjarbrekka | 22. mars 2013
Nú er foreldraviðtölunum lokið og viljum við minna þá foreldra sem eiga eftir að skila inn könnuninni að gera það fyrir páskafrí.

Marteinn Aldar og Marínó Helgi 6 ára

Leikskólinn Lækjarbrekka | 14. mars 2013
« 1 af 3 »
Þeir félagar Marteinn Aldar og Marínó Helgi eru orðnir sex ára. Þeir fengu afmæliskórónur og var sunginn fyrir þá afmælissöngurinn. Innilega til hamingju með afmælin ykkar Marteinn og Marínó!!

Þorsteinn Óli 5 ára

Leikskólinn Lækjarbrekka | 14. mars 2013
Hann Þorsteinn Óli okkar er orðinn fimm ára. Hann fékk afmæliskórónu og var sunginn fyrir hann afmælissöngurinn. Innilega til hamingju með afmælið Þorsteinn Óli!

Sigríður Sól 3 ára

Leikskólinn Lækjarbrekka | 12. mars 2013
Hún Sigríður Sól okkar er orðin þriggja ára. Hún fékk afmæliskórónu og var sunginn fyrir hana afmælissöngurinn. Innilega til hamingju með afmælið Sigga Sól !
Eldri færslur
Vefumsjón