Starfsmannastefna

Starfsmannastefna Lækjarbrekku er í mótun. Starfsmannastefnan verður unnin samhliða nýrri skólanámskrá veturinn 2017-2018 og lokið fyrir jól 2018.

 

Einkunnarorð: Gleði, virðing, vinátta


Í Lækjarbrekku er lögð áhersla á góðan starfsanda og skulu samskipti starfsmanna einkennast af virðingu, umburðarlyndi, tillitsemi og jákvæðu viðmóti. Þetta eru lykilþættir í því að skapa gott, hlýtt og öruggt starfsumhverfi. Unnið skal í anda Jákvæðs aga, lýðræðis, jafnréttis og fjölmenningar þar sem reynsla og þekking alls starfsfólks fær notið sín.

Starfsmenn leikskólans er hópur fagmenntaðra og ófaglærðra starfsmanna sem vinnur í sameiningu að því að byggja upp skólastarf sem einkennist af vilja og virðingu, með hag nemenda að leiðarljósi. Þeir starfa undir verkstjórn leikskólastjóra og eiga í nánu samstarfi sín á milli, við nemendur, foreldra þeirra og aðra sem að skólastarfinu koma. Allir starfsmenn skólans bera mikla ábyrgð á skólastarfinu jafnt undirbúningi, framkvæmd og mati og leggja metnað sinn í að styðja hvert annað í starfi, miðla þekkingu, reynslu og færni og nýta sér þau tækifæri sem gefast til þess að vaxa í starfi.

 

Áhersluþættir í starfsmannastefnu Lækjarbrekku:

 

Að taka vel á móti nýju starfsfólki með því að:

Tryggja að starfs­fólk fái allar nauðsynlegar upplýsingar og kynningu á vinnustaðnum strax sem byggir á móttökuáætlun nýrra starfsmanna.

Ábyrgð: Leikskólastjóri

 

Að gera starfsfólki kleift að þróast í starfi með því að:

Tryggja að starfsfólk hafi aðgang að námskeiðum og sveigjanleika til þess að komast á námskeið við hæfi. Sjá nánar í starfsþróunaráætlun.

 

Að stuðla að því að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi  séu til fyrirmyndar með því að;

Gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað (skv. lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980) og framfylgi henni

Ábyrgð: Leikskólastjóri, trúnaðarmenn.

 

Að undirbúa starfslok vandlega með því að:

Eiga starfslokasamtöl við starfsfólk til að tryggja að starfsþekking haldist innan vinnustaðarins og greina ástæður þess að starfsfólk hættir

Ábyrgð: Leikskólastjóri

 

Að ráða hæft og metnaðarfullt starfsfólk með því að:

Auglýsa öll störf nema þegar um er að ræða tímabundnar ráðningar eða tilfærslu í starfi og fara eftir þeim reglum sem gilda um réttindi starfsmanna hverju sinni.

Ábyrgð: Leikskólastjóri

 

Að vinna markvisst að jafnrétti kynjanna með því að:

Fara eftir jafnréttisáætlun sem byggir á janfréttisáætlun Grunnskóla Hólmavíkur

Ábyrgð: Leikskólastjóri.

 

Að sjá um að starfsmannasamtöl fari fram á hverju vori

Tryggja tíma í fundaráætlun skólans fyrir starfsmannaviðtöl á hverju vori.

Ábyrgð: Leikskólastjóri

 

Almennar skyldur og réttindi starfsmanna

Að kynna nýjan starfsmann fyrir trúnaðarmönnum og halda starfsmanninum eins upplýstum og mögulegt eru um réttindi sín og skyldur samkvæmt móttökuáætlun..

Ábyrgð: Leikskólastjóri

 

Eftirfylgni/Aðgerðir

Til að tryggja eftirfylgni með starfsmannastefnunni:

Að kanna reglulega starfsánægju og starfsumhverfi samkvæmt sjálfsmatsáætlun Lækjarbrekku.  

 

Að endurskoða árlega starfsmannastefnu Lækjarbrekku
September 2018

 

Vefumsjón