A A A

Valmynd

Vetrarfrí

| 26. nóvember 2013
Vetrarfrí verður í Grunnskólanum á Hólmavík föstudaginn 29. nóvember og mánudaginn 2. desember.

Bekkjarfréttir

| 26. nóvember 2013
Siðastliðinn þriðjudag var nemendum 5.-10. bekkjar boðið á leiksýningu í félagsheimilinu. Elfar Logi og Kómedíuleikhúsið settu þar upp einleikinn Gísla saga Súrssonar. Sýningin var mjög frumleg og skemmtileg og vakti mikla lukku hjá áhorfendum. Sýningin hefði ekki getað komið á betri tíma fyrir 10. bekkinga þar sem Gísla saga er einmitt næst á dagskránni hjá þeim

Laugar í Sćlingsdal

| 08. maí 2013
Kæru þið!

Mikið skemmtum við okkur vel saman á Laugum í Sælingsdal í liðinni viku!  
Laugar, ungmenna- og tómstundabúðirnar var okkar áningarstaður með meiru frá mánudegi 29. apríl til föstudags  3. maí.
Þar hittum við fyrir og vorum í frábærum félagsskap með grunnskólanemendum úr Laugalækjarskóla í Rvk. ásamt fríðu föruneyti kennara þeirra. Á móti okkur með opnum faðmi tóku einnig forstöðukonan Anna Margrét og leiðbeinendurnir þrír, Jörgen, Jenny og Ívar Orri. Við prófuðum heilmargt nýtt, laus við óþarft tæknidútl, s.s. síma, i-padda og tölvur. Við gengum upp á fjall, við leiðbeindum hvort öðru í gegnum þrautabraut, við fórum upp í ræðustól fyrir framan aðra krakka, við fræddumst um næringaríkt fæði, lærðum að gera sirkúsatriði o.fl. o.fl. o.fl.! Hámarkinu var náð með alræmdu Laugaleikum á fimmtudagskvöldið þar sem hóparnir þrír, Púmpa, Blue Lions og Hulk, kepptu sín á milli í fjölda óhefðbundinna greina. Þar var mikil hópstemning og svakalegt stuð! Nemendur Grunnskólans á Hólmavík voru til algjörar fyrirmyndar í ferðinni, virkir, kurteisir og glaðir. Þeir áttu í litlum vandræðum með að blandast vel inn í hóp 70 nemenda úr skóla fyrir sunnan og margir hverjir eignuðust fína vini eða félaga þaðan! Þessi ferð verður án nokkurs vafa höfð í minningum lengi enda æðisleg vika frá byrjun til enda! :)

Nú fer síðasta skólaárinu okkar annars að ljúka, síðasti mánuðurinn genginn í garð og sumarið handan hornsins.
Ekkert nema fleiri ævintýri sem bíða okkar eftir það....   -en við kveðjum í bili! ;)
Kærar kveðjur, nemendur 10. bekkjar og umsjónarkennari :)

Gaman saman!

| 18. febrúar 2013
Eins og flestir vita kannski nú þegar þá er litli hópurinn okkar uppfullur af hæfileikaríkum og flottum krökkum! Þrír úr hópnum hlutu til að mynda titilinn Strandamenn ársins 2012 fyrir stuttu sem hluti af Gógópíunum sem tætti allt og tryllti í söngkeppni Samfés og víðar á síðasta ári. Þessir sömu einstaklingar tóku aftur þátt í söngkeppninni í ár og stóðu sig með stakri prýði á Samvest á Ísafirði fyrr á þessu ári. Þar lenti Brynja Karen í 3. sæti með söng sínum en sú hnáta varð einmitt fyrst félagana í 10. bekk til að fagna 16 ára afmæli sínu 7. febrúar síðastliðinn. Brynja Karen kom með glæsilega skúffuköku og nutum við hennar saman en þetta var síðasta afmælið innan hópsins sem bekkur í Grunnskólanum á Hólmavík. Framundan hjá 10. bekk eru ýmis ævintýri en þar má meðal annars nefna Starfsdagavikuna fyrir sunnan, umsóknarferli fyrir framhaldsskóla og margt margt fleira. Endilega kíkið á myndirnar sem fylgja þessari litlu frétt en þar eru nokkrar myndir síðan á undankeppni fyrir Samvest hér á Hólmavík og aðrar frá afmæli Brynju Karenar. 

Með góðum kveðjum og knúsum! Hópurinn!

Heimsókn á sjúkrahúsiđ/elliheimiliđ

| 31. janúar 2013

Föstudaginn 18. janúar síðastliðinn skelltum við okkur saman nemendur úr 10. bekk og umsjónarkennari í heimsókn á sjúkrahúsið/elliheimilið. Fámennt var í litla hópnum okkar þann daginn en þrír vaskir nemendur tóku þó á sig rögg og sungu nokkur lög fyrir brosmilda íbúa. Spjallað var um daginn og veginn og höfðu allir gaman af. Spilamennska hlaut þó dræmar undirtektir en það kom ekki að sök enda markmiðið með heimsókninni fyrst og fremst að njóta samverunnar með hvert öðru.

 

Á miðv.deginum 16. janúar tókum við einnig þátt í snjóskúlptúrskeppni á skólalóðinni þar sem nemendur allra bekkja unnu saman í smærri hópum að eigin listaverki. Að vísu var enginn af okkur í hópnum sem sigraði en þetta var svakalega skemmtileg keppni!

 

Við þökkum kærlega fyrir okkur og biðjum að heilsa í bili,

Brynja Karen, Fannar Freyr, Guðmundur Ari, Margrét Vera, Theódór og Malla Rós.

Vikan 3. - 7. des. 2012

| 07. desember 2012
Fannar Freyr flutti erindi á Grćnfánahátíđ fyrir hönd 10. bekkjar
Fannar Freyr flutti erindi á Grćnfánahátíđ fyrir hönd 10. bekkjar
« 1 af 26 »
Í þessari viku sem er að ljúka kenndi ýmissa grasa. Á mánudaginn sáu nemendurnir í 10. bekk um að koma upp jólaflekunum svokölluðu, stóru myndunum í gluggum gamla skólans. Þeir fengu einnig rúman tíma til að skreyta stofuna sína, setja upp jólaseríur og föndra jólakort til hvors annars. Á mánudaginn tókum við einnig þátt í að syngja jólalög í söngstund hjá Jóni tónslistarkennara. Á þriðjudaginn fóru allir nemendur skólans upp í félagsheimili að baka piparkökur. Á miðvikudaginn var Grænfánahátíð þar sem við fengum endurnýtt leyfi til þátttöku í verkefninu næstu tvö árin. Haldin voru stutt erindi, nemendur sungu jólalög, fánanum var flaggað og allir fóru síðan upp í skóg að borða piparkökur og drekka heitt súkkulaði. Nemendur í 10. bekk nýttu íslenskutímann þennan dag í að semja erindi sitt til flutningar á hátíðinni og hjálpuðust allir við að koma því í orð hvað bekkurinn er að gera til að stuðla að umhverfisvernd og sjálfbærni og hvað mætti eflaust betur fara. Fannar Freyr las upp erindið með stakri prýði en Margrét Vera er fulltrúi okkar í umhverfisnefnd og sáu börnin í þeirri nefnd um að taka formlega á móti nýja fánanum og aðstoða við að flagga honum. Í dag föstudag, var eldvarnardagur í skólanum. Nemendur allra bekkja ásamt starfsfólki skólans rýmdu húsnæðið upp úr klukkan 11:00 þegar eldvarnarbjallan glumdi. Nemendur í 10. bekk voru þaulvanir og komu sér fljótt í beina röð, eftir stafrófi og héldu ró sinni allan tímann. Það er alltaf gott að rifja upp svona mikilvæg atriði, þótt maður hafi lært þau áður. Í þetta sinn fengu unglingarnir einnig að prófa sjálfir slökkvitæki. Einar Indriða og Siggi Marri kveiktu eld og fengu krakkarnir ásamt kennara að prófa að slökkva eldinn. Það gekk mjög vel og voru allir sammála um að gagnlegt hefði verið að fá slíkt tækifæri. Við þökkum kærlega fyrir okkur.

Við kveðjum í bili,
nemendur í 10. bekk og umsjónarkennari. 

Dagur íslenskrar tungu 16.11.'12

| 17. nóvember 2012
Piltarnir hressir á leikskólanum
Piltarnir hressir á leikskólanum
« 1 af 14 »
Á degi íslenskrar tungu skellti 10. bekkur sér í heimsókn á leikskólann. Mættir voru þennan dag rétt rúmlega helmingur bekkjarins eða piltarnir þrír. Á leikskólanum fengu þeir að lesa upp úr bókum fyrir börnin og sýna myndir með. Theódór las söguna um Gilitrutt fyrir eldri börnin og Gummi og Fannar sáu um lestur og leikþátt fyrir yngri börnin. Strákarnir og kennari skemmtu sér konunglega með öllum þessum yndislegu og flottu börnum og fannst strákunum sérstaklega gaman að rifja upp hluti frá þeirra eigin tíð á leikskólanum en tæpur áratugur er síðan þeir útskrifuðust þaðan! Eins og staðan er núna þá munu 5 nemendur útskrifast úr 10. bekk næsta vor og um haustið munu 5 ungir nemendur hefja sína grunnskólagöngu. Svona getur þetta verið skemmtilegt! :) Eftir heimsóknina í leikskólann var haldið aftur upp í Grunnskóla þar sem strákarnir fengu að skiptast á að lesa söguna um Bakkabræður fyrir nemendur í 1. - 3. bekk sem þökkuðu fyrir sig með lófataki. Dagur íslenskrar tungu var sérdeilis góður dagur og þökkum við kærlega fyrir okkur, í bili.

Kveðja, nemendur úr 10. bekk og umsjónarkennari.

Dansk- H. C. Andersen webquest

| 08. október 2012

Innkaupalisti

| 14. ágúst 2012
Fyrri síđa1
2
Nćsta síđa
Síđa 2 af 2
Eldri fćrslur

Bekkjavefir

Atburđadagatal

« Júní 2025 »
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nćstu atburđir