Vikan 3. - 7. des. 2012
| 07. desember 2012
Í þessari viku sem er að ljúka kenndi ýmissa grasa. Á mánudaginn sáu nemendurnir í 10. bekk um að koma upp jólaflekunum svokölluðu, stóru myndunum í gluggum gamla skólans. Þeir fengu einnig rúman tíma til að skreyta stofuna sína, setja upp jólaseríur og föndra jólakort til hvors annars. Á mánudaginn tókum við einnig þátt í að syngja jólalög í söngstund hjá Jóni tónslistarkennara. Á þriðjudaginn fóru allir nemendur skólans upp í félagsheimili að baka piparkökur. Á miðvikudaginn var Grænfánahátíð þar sem við fengum endurnýtt leyfi til þátttöku í verkefninu næstu tvö árin. Haldin voru stutt erindi, nemendur sungu jólalög, fánanum var flaggað og allir fóru síðan upp í skóg að borða piparkökur og drekka heitt súkkulaði. Nemendur í 10. bekk nýttu íslenskutímann þennan dag í að semja erindi sitt til flutningar á hátíðinni og hjálpuðust allir við að koma því í orð hvað bekkurinn er að gera til að stuðla að umhverfisvernd og sjálfbærni og hvað mætti eflaust betur fara. Fannar Freyr las upp erindið með stakri prýði en Margrét Vera er fulltrúi okkar í umhverfisnefnd og sáu börnin í þeirri nefnd um að taka formlega á móti nýja fánanum og aðstoða við að flagga honum. Í dag föstudag, var eldvarnardagur í skólanum. Nemendur allra bekkja ásamt starfsfólki skólans rýmdu húsnæðið upp úr klukkan 11:00 þegar eldvarnarbjallan glumdi. Nemendur í 10. bekk voru þaulvanir og komu sér fljótt í beina röð, eftir stafrófi og héldu ró sinni allan tímann. Það er alltaf gott að rifja upp svona mikilvæg atriði, þótt maður hafi lært þau áður. Í þetta sinn fengu unglingarnir einnig að prófa sjálfir slökkvitæki. Einar Indriða og Siggi Marri kveiktu eld og fengu krakkarnir ásamt kennara að prófa að slökkva eldinn. Það gekk mjög vel og voru allir sammála um að gagnlegt hefði verið að fá slíkt tækifæri. Við þökkum kærlega fyrir okkur.
Við kveðjum í bili,
nemendur í 10. bekk og umsjónarkennari.
Við kveðjum í bili,
nemendur í 10. bekk og umsjónarkennari.