A A A

Valmynd

Innkauplisti 10. bekkjar 2013 - 2014

| 19. ágúst 2013

Bekkjarfréttir

| 28. mars 2014
Síðastliðinn mánudag heimsóttu forsetahjónin Grunnskólann á Hólmavík. Fjórir nemendur úr 10. bekk, Sunneva, Sigfús, Eyrún og Róbert tóku að sér að taka á móti þeim og sýna þeim skólann.  Þau hittu einnig alla nemendur skólans á sal. Þar bauðst nemendum m.a. að spyrja forsetahjónin spurninga og var það hin besta skemmtun.
Á fimmtudaginn fengum við heimsókn frá nemendum í Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki. Þeir kynntu starfsemi nemendafélagsins fyrir 8.-10. bekk.

Bekkjarfréttir

| 21. mars 2014
Eftir mikinn eril og ferðalög hefur þessi vika einkennst af hefðbundnu skólastarfi. Nemendur hafa unnið af kappi við undirbúning á leiksýningunni Skilaboðaskjóðan sem frumsýnd verður í byrjun apríl. 
N.k. mánudag eigum við svo von á heimsókn frá froseta Íslands og eiginkonu hans.

Bekkjarfréttir

| 14. mars 2014
Óhætt er að segja að nemendur í 10. bekk hafi verið á faraldsfæti undanfarna daga. Síðastliðinn fimmtudag fór bekkurinn ásamt nemendum 8. og 9. bekkjar til Reykjavíkur þar sem farið var á skólaþing, í leikhús og á Samfés keppnina. Fulltrúar okkar í keppninni stóðu sig með prýði og þar á meðal voru tvær stúlkur úr 10. bekk, þær Kristín Lilja og Elísa Mjöll.
Á miðvikudaginn lá svo leiðin til Akureyrar þar sem Grunnskólinn á Hólmavík tók þátt í Skólahreysti. Liðið lenti í þriðja sæti í riðlinum sem er sannarlega glæsilegur árangur. Meðal liðsmanna voru tveir 10. bekkingar, þau Kristófer Birnir og Eyrún Björt ásamt Sigfúsi Snævari sem var varamaður.

Bekkjarfréttir

| 28. febrúar 2014
Kennsludagar í þessari viku voru einungis þrír. Eftir starfsdag og viðtalsdag mættu nemendur til kennslu á miðvikudaginn. Þann dag kom Magnús Stefánsson framkvæmdastjóri Marita fræðslunnar í heimsókn og hitti nemendur í 8.-10. bekk.
Í gær fengu nemendur aftent lykilorð sem þeir þurfa að nota við forinnritun í framhaldsskólana. Forinnritunin hefst mánudaginn 3. mars og henni lýkur föstudaginn 11. apríl.

Bekkjarfréttir

| 21. febrúar 2014
Þessi vika hefur verið frekar róleg og með hefðbundnu sniði hjá okkur í 10. bekk. Framundan er hins vegar margt skemmtilegt eins og t.d. heimsókn á Skólaþing og þátttaka í Skólahreysti.
Næstkomandi mánudag er starfsdagur í Grunnskólanum á Hólmavík og eiga nemendur frí þann dag. Á þriðjudaginn eru svo nemenda- og foreldraviðtöl og koma nemendur þá með foreldrum/forráðamönnum sínum og hitta umsjónarkennara. Tímasetningar hafa verið sendar út.  

Bekkjarfréttir

| 07. febrúar 2014
Eftir annasama og skemmtilega starfskynningarviku sneru nemendur 10. bekkjar aftur til hefðbundinnar kennslu á mánudaginn. Vikan fór meðal annars í að  vinna úr því sem þau sáu og upplifðu í starfskynningunni. Ætlunin er að halda kynningu fyrir 8. og 9. bekk á því nk. mánudag.
Í tilefni af árlegri tannverndarviku kom Anna Guðlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur í heimsókn í gær og fræddi nemendur um ýmislegt sem tengist góðri tannhirðu.

Bekkjarfréttir

| 28. janúar 2014
Það var gestkvæmt í skólanum okkar í síðustu viku. Starfsmenn BUGL komu í heimsókn sl. miðvikudag og ræddu við unglingahópinn og kennara og svo voru þeir með opinn fund um kvöldið.
Á föstudaginn heimsóttu þær stöllur Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir og Sara Jóhannsdóttir unglingadeildina og kynntu fyrir þeim nám að loknum grunnskóla.
Föstudagurinn endaði svo á því að allir fengu dagskrá fyrir næstu viku en henni munu nemendur í 10. bekk eyða í Reykjavík í starfskynningu. Það var ekki laust við spennu í loftinu. Við vonum að allt gangi vel hjá þeim og hlökkum til að fá þau til baka í næstu viku.
 

Bekkjarfréttir

| 13. janúar 2014
Kennsla hófst að loknu jólafríi þriðjudaginn 7. janúar. Nemendur fóru strax að huga að starfskynningu sem verður í lok janúar og skiluðu allir inn nöfnum á fyrirtækjum sem þeir hafa áhuga á að heimsækja. 
Á föstudaginn kynntu Ásta og Eiríkur þær hugmyndir sem komu fram hjá nemendum 8.-10. bekkjar í verkefninu Landsbyggðarvinir. Fjögur verkefni voru send til áfamhaldandi þátttöku og voru þrjú þeirra gerð af nemendum í 10. bekk, þeim Branddísi, Kristínu og Sunnevu. Það verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur í framhaldinu en það mun skýrast nk. laugardag.

Desember

| 12. desember 2013
Nú í desember er ýmislegt skemmtilegt á dagskrá hjá okkur í Grunnskólanum. Við hittumst tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum á sal og syngjum nokkur jólalög saman. Síðastliðinn föstudag var furðufatadagur og á mánudaginn var kveikt á jólatrénu við skólann.  Á morgun er svo náttfatadagur hjá okkur.
Fyrri síđa
1
2Nćsta síđa
Síđa 1 af 2
Eldri fćrslur

Bekkjavefir

Atburđadagatal

« Júní 2025 »
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nćstu atburđir