A A A

Valmynd

Lýðræði og mannréttindi

"Lýðræði er mikilvægt á vettvangi skólans. Í fyrsta lagi þurfa skólar að taka mið af því að barna og ungmenna bíður að taka þátt í lýðræðissamfélagi og því er mikilvægt að börn læri um þess háttar samfélög. Í öðru lagi þurfa skólar að taka mið af því í öllum starfsháttum að borin sé virðing fyrir manngildi hvers og eins. Gert er ráð fyrir því að börn og ungmenni læri til lýðræðis með því að læra um lýðræði í lýðræði.

 

Mikilvægt er að í öllu námi, viðfangsefnum skólastarfsins og aðferðum sé tekið tillit til áhuga nemenda og ábyrgðar þeirra á eigin námi. Einnig þarf að efla þekkingu á grundvallarréttindum barna og fullorðinna með hliðsjón af íslenskri löggjöf og alþjóðasamningum.

Samfélagsgreinar og lífsleikni eru kjölfesta þekkingar á lýðræði og mannréttindum og viðhorfa til sömu þátta. Lýðræðislegur hugsunarháttur á þó við í öllum námsgreinum. Lýðræðislegt gildismat verður ekki mótað nema allar námsgreinar og öll námssvið séu notuð til þess". (Mennta- og menningamálaráðuneytið, sótt 25. apríl 2018,http://www.namtilframtidar.is/#!/lydraedi-og-mannrettindi)


Lýðræði og mannréttindi birtast í skólastarfinu með eftirfarandi hætti:

  • Skólaráð (hefur ekki verið virkt)

  • Umhverfisnefnd með þátttöku nemenda, starfsfólks og foreldra

    • Í fundarherbergi starfsmanna

    • Umhverfisnefnd heldur utan um grænfánaverkefni skólans.

    • 2 fulltrúar frá hverri bekkjardeild og einn til vara kosinn á haustin til eins árs í senn. Einn fulltrúi kennara, annarra starfsmanna, foreldra kosnir á hausti ásamt skólastjórnanda sitja fundi. Umsjónarmaður verkefnisins ráðinn af skólastjóra að hausti.

    • Umsjónarmaður verkefnisins boðar til funda, einu sinni í mánuði.

    • Öll aldursstig.

  • ABC hjálparstarf

    • Nemendur ganga í hús í heimabyggð til að safna fyrir verkefnið Börn hjálpa börnum

    • Skólastjóri er sendur beiðni um þátttöku. Nemendur fá bauka og bekkjarkennarar fara í fræðslu um málefnið.

    • Einu sinni á skólaári

    • Miðstigið (5.-7. bekkur)

  • Ungmennaráð (er ekki á vegum skólans??)

  • Félagsmiðstöðvarráð (á ekki við lengur, allir virkir. Ekki á vegum skólans)

  • Vitundarvakning um raskanir og langvinna sjúkdóma

    • Inni í bekkjum

    • Fræðsluátak inni í bekkjum, hvort sem er bekkjarkennarar eða fengin utanað komandi fræðsla.

    • Hefur verið óreglulegt og eftir þörfum. Viljum hafa reglulegt, t.d. Vika á ári og fara í raskanir, langvinna sjúkdóma, bráðaofnæmi og fræðslu um einkastaðina og netframkomu.

    • Allur aldur

  • Vinna með barnasáttmála (Er hluti af aðalnámskrá, kemur inn í rúlluna)

  • UNICEF (hefur ekki verið gert)

Uppfært í júní 2018

Bekkjavefir

Atburðadagatal

« Mars 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Næstu atburðir