Matur og nesti
Hádegismatur
Öllum nemendum í Grunnskólanum á Hólmavík gefst kostur á að fá heitan mat í hádeginu.
Nemendur í 5.-10. bekk snæða hádegisverð í mötuneyti skólans á Café Riis. Yngri börnin fá mat í félagsheimilinu. Íþrótta- og tómstundafulltrúi eða skólastjóri taka við umsóknum í tölvupósti. Einnig má sækja um hér og koma með útprentað form. Í mötuneytinu er máltíðin á 530 kr.
Nesti
Nemendur taka með sér nesti og mælst er til þess að það sé hollt og að sykraðir drykkir séu geymdir heima.
Hafragrautur
Á hverjum degi býður skólinn upp á ókeypis hafragraut í fyrstu frímínútum.