A A A

Valmynd

Laugar í Sćlingsdal

| 08. maí 2013
Kæru þið!

Mikið skemmtum við okkur vel saman á Laugum í Sælingsdal í liðinni viku!  
Laugar, ungmenna- og tómstundabúðirnar var okkar áningarstaður með meiru frá mánudegi 29. apríl til föstudags  3. maí.
Þar hittum við fyrir og vorum í frábærum félagsskap með grunnskólanemendum úr Laugalækjarskóla í Rvk. ásamt fríðu föruneyti kennara þeirra. Á móti okkur með opnum faðmi tóku einnig forstöðukonan Anna Margrét og leiðbeinendurnir þrír, Jörgen, Jenny og Ívar Orri. Við prófuðum heilmargt nýtt, laus við óþarft tæknidútl, s.s. síma, i-padda og tölvur. Við gengum upp á fjall, við leiðbeindum hvort öðru í gegnum þrautabraut, við fórum upp í ræðustól fyrir framan aðra krakka, við fræddumst um næringaríkt fæði, lærðum að gera sirkúsatriði o.fl. o.fl. o.fl.! Hámarkinu var náð með alræmdu Laugaleikum á fimmtudagskvöldið þar sem hóparnir þrír, Púmpa, Blue Lions og Hulk, kepptu sín á milli í fjölda óhefðbundinna greina. Þar var mikil hópstemning og svakalegt stuð! Nemendur Grunnskólans á Hólmavík voru til algjörar fyrirmyndar í ferðinni, virkir, kurteisir og glaðir. Þeir áttu í litlum vandræðum með að blandast vel inn í hóp 70 nemenda úr skóla fyrir sunnan og margir hverjir eignuðust fína vini eða félaga þaðan! Þessi ferð verður án nokkurs vafa höfð í minningum lengi enda æðisleg vika frá byrjun til enda! :)

Nú fer síðasta skólaárinu okkar annars að ljúka, síðasti mánuðurinn genginn í garð og sumarið handan hornsins.
Ekkert nema fleiri ævintýri sem bíða okkar eftir það....   -en við kveðjum í bili! ;)
Kærar kveðjur, nemendur 10. bekkjar og umsjónarkennari :)

Bekkjavefir

Atburđadagatal

« Júní 2025 »
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nćstu atburđir