A A A

Valmynd

Eineltisáćtlun

Stefnuyfirlýsing

Starfsfólk Grunn- leik, og tónskólans á Hólmavík lýsir því yfir að hvorki einelti né annað ofbeldi verði liðið í skólanum og unnið verði að því að starfsmenn, nemendur og foreldrar geri sér grein fyrir hvað einelti er. Á heimasíðu skólans og annars staðar þar sem því er viðkomið kemur fram hvert nemendur, foreldrar eða fólk almennt geta snúið sér með fyrirspurnir og tilkynningar. Einnig að þar komi fram hverjir koma að úrvinnslu eineltismála í skólanum, hvernig ferlið er sem fer í gang ef tilkynning berst um einelti. Leitað verður allra ráða til að fyrirbyggja einelti og ofbeldi og brugðist verður við þeim málum sem upp kunna að koma án tafar og í góðri samvinnu allra hlut að eigandi. Lögð verður áhersla á að nemendum verði markvisst kennd góð samskipti. Nemendur skulu hvattir til að taka afstöðu gegn einelti og ofbeldi í verki með því að bregðast við og láta vita. Gera skal nemendum grein fyrir því að það að skilja útundan og virða aðra ekki viðlits er jafnmikið einelti og að hæðast að eða berja. Þannig verður stuðlað að vellíðan allra í sameiginlegu átaki. Skólinn skal vera öruggur og góður vinnustaður, þar sem starfið mótast af virðingu og umhyggju fyrir öllum.

Eineltisáætlun

Bekkjavefir

Atburđadagatal

« Júní 2025 »
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nćstu atburđir