A A A

Valmynd

Tjaldiđ frumsýnt á fimmtudaginn

| 19. mars 2013
Frá ćfingum á Tjaldinu - ljósm. Margrét Vera Mánadóttir
Frá ćfingum á Tjaldinu - ljósm. Margrét Vera Mánadóttir
« 1 af 2 »
Leikritið Tjaldið eftir Hallgrím Helgason verður frumsýnt fimmtudaginn 21. mars kl. 20:00 í Félagsheimilinu á Hólmavík, en hópur ungmenna í leiklistarvali við Grunnskólann á Hólmavík hefur æft leikritið í vetur undir stjórn Arnars S. Jónssonar. Aðstoðarleikstjórar eru Margrét Vera Mánadóttir og Elísa Mjöll Sigurðardóttir. Gróft orðbragð og atriði koma fyrir í sýningunni og því er ekki sérstaklega mælt með því fyrir 12 ára og yngri. Miðaverð fyrir alla aldurshópa er kr. 1.500. Takmarkað sætaframboð er í boði á hverja sýningu, en miðapantanir eru í s. 894-1941 (fyrir kl. 14:00) og s. 776-6885 (eftir kl. 14:00). Fyrstir panta, fyrstir fá!


Tjaldið er nýtt leikrit samið sérstaklega fyrir verkefnið Þjóðleik sem er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og ungra leikhópa á landsbyggðinni. Leikritið fjallar um unga stúlku sem er nauðgað á útihátíð og atburðarrás sem fer af stað í kjölfarið. Fleiri sýningar eru fyrirhugaðar á verkinu, en þær verða auglýstar síðar.

Bekkjavefir

Atburđadagatal

« Apríl 2024 »
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nćstu atburđir