A A A

Valmynd

Símalaus sunnudagur

Hrafnhildur Guđbjörnsdóttir | 26. október 2022


Næstkomandi sunnudag 30. október nk. standa Barnaheill – Save the Children á Íslandi fyrir símalausum sunnudegi í fjórða sinn. 

Yfirskrift Símalauss Sunnudags er ,,Upplifum ævintýrin saman” og er markmiðið að vekja foreldra og annað fullorðið fólk til umhugsunar um áhrif snjalltækja á samveru og nánd innan fjölskyldna.
Snjallsímar og önnur snjalltæki eru skemmtileg og gagnleg tæki sem hafa umbylt því hvernig við eigum í samskiptum, nálgumst upplýsingar og verjum tíma okkar. Í mörgum tilvikum eru áhrif tækninnar jákvæð og sniðug en einnig hefur verið bent á skuggahliðar hennar. Óhófleg notkun á snjalltækjum getur meðal annars haft áhrif á samskipti innan fjölskyldunnar – samskiptin og nándin minnka því það er eitthvað sem stelur athyglinni.


Hægt er að skrá sig til leiks á www.simalaus.is og taka áskorun Barnaheilla. Allir þátttakendur eiga möguleika á að vinna fjölbreytta og fjölskylduvæna útdráttarvinninga og fá auk þess nokkur góð ráð send í tölvupósti laugardaginn 29. október.  Tökum þátt.

 

 

 

 

 

Bekkjavefir

Atburđadagatal

« Apríl 2024 »
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nćstu atburđir