A A A

Valmynd

Opinn fyrirlestur um netfíkn

| 23. október 2012
Eyjólfur Örn Jónsson
Eyjólfur Örn Jónsson
Miðvikudaginn 24. október kl. 19:30 verður haldinn fyrirlestur í Félagsheimilinu á Hólmavík um netfíkn. Sálfræðingurinn Eyjólfur Örn Jónsson fjallar í fyrirlestrinum um hættur Internetsins, hverjir séu í hættu með að "ánetjast" notkun sinni, hver einkenni ofnotkunar eru, hvað slík notkun getur haft í för með sér og hvað foreldrar og fagfólk getur gert til að fyrirbyggja vandann og takast á við hann. Eftir fyrirlesturinn verða umræður og fyrirspurnir.

Við í Grunnskólanum hvetjum fólk á öllum aldri til að mæta á þennan fróðlega fyrirlestur sem veitir innsýn í málefni sem kemur okkur öllum við og er vaxandi vandamál á Íslandi - og þar er Strandabyggð ekki undanskilin. Frítt er inn á fyrirlesturinn og allir áhugasamir eru velkomnir á hann. 


Það er tómstundafulltrúi Strandabyggðar sem stendur fyrir fyrirlestrinum, en styrktaraðilar eru Strandabyggð, Reykhólahreppur, Kaldrananeshreppur, Foreldrafélag Grunnskólans á Hólmavík og Héraðssamband Strandamanna.

Bekkjavefir

Atburđadagatal

« Mars 2024 »
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nćstu atburđir