Auglýst eftir starfsmanni

Leikskólinn Lækjarbrekka | 03. desember 2012
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara eða leiðbeinanda í 75% starf. Um er að ræða vinnutímann 8:00-13:00. Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugum starfskrafti sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Einnig er skipulagshæfni og jákvæðni mikilvægur kostur. Starfsmaður þarf að geta hafið störf í byrjun janúar 2013.

Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið leikskolastjori@holmavik.is. Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3 eða til leikskólastjóra, ásamt ferilskrá og meðmælendum fyrir kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 14. desember 2012. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

 

Vefumsjón