A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Uppbygging þjónustu

Á Hólmavík er öll opinber þjónusta á svæðinu, t.d. aðsetur sýslumanns Strandasýslu, lögregla, sjúkrahús og heilsugæsla, apótek, bankar, pósthús og verslanir. Saga kauptúnsins er ekki lengri en rúm öld og því gefur auga leið að uppbygging ýmiskonar þjónustu var hröð á fyrri hluta 20. aldarinnar. Læknir kom á Hólmavík árið 1903, þegar Guðmundur Scheving læknir flutti frá Smáhömrum í Kirkjubólshreppi þar sem læknir hafði áður haft aðsetur. Árið 1911 var fjögurra rúma sjúkrahús tekið í notkun á Hólmavík og hefur stækkað allmikið síðan, en læknisbústaður var byggður á árunum 1948-50.

 

Grunnskólinn
Grunnskólinn
Samkomuhús Hólmvíkinga er sérstakur kapítuli. Nokkrir athafnasamir menn tóku sig til eftir stríðið og keyptu samkomubragga hernámsliðsins á Reykjum í Hrútafirði. Braggann fluttu þeir síðan til Hólmavíkur og reistu þar sem samkomuhús til bráðabirgða. Þar voru sýndar kvikmyndir, haldnir dansleikir, sýnd leikrit, dansað og sungið. Fimmtíu árum síðar var enn líf og fjör í bragganum, en á tíunda áratug 20. aldarinnar var byggt nýtt samkomuhús á Hólmavík sem leysti þá braggann af hólmi. Er ekki laust við að margir Hólmvíkingar sjái eftir því magnaða samkomuhúsi og telji að önnur eins stemmning og þar var á stundum náist aldrei aftur.

 

Bréfhirðing var lögskipuð á Hólmavík 1897 og símstöð sett upp 1908, en símalína var lögð yfir Steingrímsfjarðarheiði þá um sumarið. Íslandspóstur hefur nú aðsetur að Hafnarbraut 19 á Hólmavík, ásamt Sparisjóði Strandamanna sem nýverið flutti frá Kirkjubóli í Kirkjubólshreppi til Hólmavíkur. Í sama húsi eru skrifstofur Strandabyggðar.

 

Sýslumaður Strandamanna hefur setið á Hólmavík frá 1938, en áður hafði hann aðsetur sunnar í sýslunni - á Felli og Broddanesi í Kollafirði og Bæ og Borðeyri í Hrútafirði. Sýsluskrifstofur eru á efstu hæð húss Kaupþings banka, en á Hólmavík hefur verið útibú bankans frá 1973.

 

Atvinnulíf og saga

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón