Starfslok íþrótta- og tómstundafulltrúa
Salbjörg Engilbertsdóttir | 02. júní 2025
Hrafnhildur Skúladóttir sem starfaði sem íþrótta- og tómstundafulltrúi Strandabyggðar frá 1. febrúar 2022 hefur látið af störfum. Um leið og við þökkum henni samstarfið og unnin störf, óskum við henni velfarnaðar. Hrafnhildur vill koma á framfæri þakklæti til samstarfsfólks og íbúa og er því hér með komið á framfæri.