Byggingar- og skipulagsfulltrúar Strandabyggðar
Grettir Örn Ásmundsson er byggingafulltrúi og Arwa Alfadhli (hefur látið af störfum) er skipulagsfulltrúi fyrir Árneshrepp, Dalabyggð, Kaldrananeshrepp, Reykhólasveit og Strandabyggð.
Embætti byggingarfulltrúa er starfrækt samkvæmt skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 og reglugerðum þeim tengdum.
Óheimilt er, samkvæmt skipulags- og byggingarlögum, að grafa grunn, reisa hús, rífa hús, breyta því, burðarkerfi þess, formi, svipmóti eða notkun þess eða gera önnur mannvirki, nema að fengnu leyfi viðkomandi sveitarstjórnar.
Framkvæmdir skulu vera í samræmi við staðfest aðalskipulag og samþykkt deiliskipulag. Byggingarleyfi felur í sér samþykkt aðaluppdrátta og framkvæmdaáforma eða samþykkt á breyttri notkun húss.
Auk útgáfu byggingarleyfa annast embættið yfirferð og samþykkt séruppdrátta, úttektir, samþykkt á byggingarstjórum, skráningu iðnmeistara á verk, fasteignaskráningu, yfirferð eignaskiptayfirlýsinga og gefur umsagnir vegna starfs- og veitingaleyfa. Þá varðveitir byggingarfulltrúi uppdrætti af húsum í sveitarfélaginu og geta allir fengið ljósrit af þeim gegn hóflegu gjaldi. Byggingafulltrúi og skipulagsfulltrúar veita fúslega faglegar ráðleggingar bæði í viðtals- og símatímum.
Eyðublöð vegna umsókna má finna hér
Byggingarfulltrúi Strandabyggðar:
Grettir Örn Ásmundsson
Sími: 451-3510, beinn sími 451-3517
Netfang:byggingafulltrui@strandabyggd.is
Póstfang; Höfðagata 3, 510 Hólmavík
Skipulagsfulltrúi Strandabyggðar:
Sími: 430 4700
Netfang:skipulag@dalir.is
Póstfang; Miðbraut 11, 370 Búðardalur
Viðvera skipulagsfulltrúa í Strandabyggð er 2. og 4. miðvikudag í mánuði