Framkvæmdir við leikskólalóð, leikskólakrakkar í grunnskólann
Þorgeir Pálsson | 03. júní 2025
Kæru foreldrar leikskólabarna og aðrir íbúar Strandabyggðar
Undirbúningur vegna lagfæringar á leikskólalóð Lækjarbrekku hefur staðið í nokkurn tíma. Ákveðið var að flytja alla krakkana upp í grunnskóla, þegar grunnskólinn fer í sumarfrí, til að tryggja öryggi krakkana meðan á framkvæmdum stendur. Það var að auki skýr ósk verktakans, Litla Kletts, að engir krakkar væru í leikskólanum á verktímanum.
Skólaslit í grunnskólanum verða nú á fimmtudag og í kjölfar þeirra verður farið í að lagfæra lóðina við grunnskólann. Þar verður yfirborðið jafnað og settur öryggissandur. Leiktæki verða yfirfarin og þá hefur sveitarfélagið keypt öryggisgirðingu sem verður sett upp að þessu loknu til að afmarka það svæði sem leikskólakrakkarnir hafa til umráða á grunnskólalóðinni. Það á því allt að vera tilbúið fyrir leikskólakrakkana að mæta í grunnskólann á þriðjudag í næstu viku. Innanhúss í grunnskólanum verður búið að loka stiganum niður, þannig að þar á enginn að fara sér að voða. Starfsmenn leikskólans og skólastjórnendur sameinast síðan um að flytja muni, leikföng og annað sem mun fylgja börnunum upp í grunnskóla. Starfsmenn áhaldahúss aðstoða eftir þörfum. Þetta er tímabundin ráðstöfum og við reynum öll að gera sem best úr þessari stöðu.
Á þriðjudag koma hingað starfsmenn Litla Kletts með vinnuvélar og hefja síðan framkvæmdir við leikskólalóðina á miðvikudag. Þeir áætla tvær vikur í sinn verkhluta.
Verið er að ganga frá samningum við verktaka vegna seinni verkhluta, sem er frágangur jarðvegs og yfirborðs lóðarinnar og uppsetningu nýrra og eldri leiktækja.
Kveðja
Þorgeir Pálsson
Oddviti