A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Atvinnulíf í hreppnum

Í sveitum Hólmavíkurhrepps hefur sauðfjárræktin löngum verið höfuðatvinnuvegur og þykir sauðkindur á Ströndum einstaklega afurðamiklar. Hrossarækt er einnig nokkur. Atvinna í þorpinu byggist hins vegar á útgerð, rækjuvinnslu og þjónustu. Útgerð hefur aðallega verið smábátaútgerð síðustu ár þá aðalega línuveiðar og eitthvað hafa menn farið á grásleppuveiðar á vorin. Mjög fullkomin rækjuvinnsla er á Hólmavík sem fyrirtækið Hólmadrangur rekur.


Um aldamótin 1900 voru byggðar fyrstu bryggjur á Hólmavík, tvær trébryggjur sem hétu eftir eigendunum, Riisbryggja og Kaupfélagsbryggja. Hafskipabryggja var síðan byggð 1936, vestan við Klifið og stór vinnupallur úr timbri meðfram landi frá bryggjunni og að Klifinu. Þar var söltuð síld allmörg næstu ár, stundum í stórum stíl. Fyllt var upp fyrir austan vinnupallanna 1950 og ný bryggja gerð meðfram þeirri gömlu á árunum 1969-72 enda var hún nær ónýt. Þá var einnig gerð bátabryggja. Umfangsmiklar uppfyllingar í austari hluta víkurinnar hafa verið gerðar á síðustu árum og útbúin þar smábátahöfn.


Um 1950 varð langvarandi aflabrestur þess valdandi að atvinnuleysi varð nokkuð og fólki fækkaði í þorpinu. Ekki rættist úr aftur fyrr en með rækjunni laust fyrir 1970. Síðan þá má segja að atvinnuástand hafi verið gott þó að fólksfækkun hafi verið nokkur eins og víðar.


Verslun og þjónusta eru mikilvægar atvinnugreinar á Hólmavík og uppbygging ferðaþjónustu hefur verið nokkur í sveitarfélaginu. Miðpunktur hennar nú er Upplýsingamiðstöð sem Strandabyggð hefur rekið yfir sumartímann frá 1997 og nú síðast Galdrasýningin sem opnuð var sumarið 2000.


Á Hólmavík eru miðstöðvar Orkubús Vestfjarða og Vegagerðar ríkisins og eru hvort tveggja mikilvægir vinnustaðir. Einnig eiga fjölmargir vörubílstjórar og vinnuvélaeigendur heima á Hólmavík og þónokkur fjöldi iðnaðarmanna og húsasmiða reka þar fyrirtæki sín. Í heildina tekið er atvinnulíf á Hólmavík sennilega töluvert fjölbreyttara og byggir á fleiri stoðum en víða annars staðar í sjávarþorpum af svipaðri stærð.

 

Atvinnulíf og saga

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón