A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Viðbrögð v. fuglaflensu

Salbjörg Engilbertsdóttir | 26. apríl 2022
Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá Matvælastofnun.

"Ef vart verður við
veika ósjálfbjarga fugla í nærumhverfi manna er möguleiki á að fuglinn sé veikur vegna smits af fuglaflensuveirunni. Þó litlar líkur séu taldar á smiti yfir í mannfólk eða önnur dýr þá mælir Matvælastofnun með að fyllstu varúðar og smitgátar sé gætt. Ekki skal handleika fugla sem mögulega eru taldir vera smitaðir af fuglaflensu, án tilskilins hlífðarbúnaðar. Almenningi er því ráðið frá að handleikaslíka veika fugla, en heldur beina erindi sínu til sveitarfélags, sem svo þarf að sjá til þess að gripið sé til aðgerða út frá dýravelferðarsjónarmiðum.  Ekki er ráðlagt að skjótaslíka fugla, rota eða skera m.t.t. smitvarna."  Hér eru ítarlegri upplýsingar um viðbrögð við fuglaflensu.

Fólki er því bent á að hafa tilkynna til skrifstofu Strandabyggðar 4513510 eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is ef það verður vart við fugla sem svo er ástatt fyrir. Utan opnunartíma skrifstofu er fólki bent á að tala við lögreglu.



Kjörstjórn Strandabyggðar auglýsir, uppfærð frétt 13.5 kl. 16.15

Salbjörg Engilbertsdóttir | 25. apríl 2022

Kjörskrá liggur frammi til kynningar á skrifstofu Strandabyggðar á opnunartíma milli kl. 10 og 14 að Hafnarbraut 25 fram að kjördegi. Einnig getur fólk farið inn á slóðina http://www.kosning.is  til að kynna sér hvar það er skráð. 



Kjörfundur vegna kosninga til sveitarstjórnar


Ein kjördeild verður í Strandabyggð og er kjörstaður í Hnyðju, Höfðagötu 3 Hólmavík. Kjörfundur hefst kl. 09:00 laugardaginn 14. maí 2022 en kjörstaður verður opinn frá kl. 10:00 -17:00. Sbr. 1. mgr. 80 gr. laga nr. 112/2021 um kosningar.



Talning hefst í Hnyðju að loknum kjörfundi kl. 18.30

Kosning utan kjörstaðar


Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst 25.apríl og er staðsett í húsnæði dreifnámsins á efri hæð Sparisjóðs Strandamanna Hafnarbraut 19. Opið er í dag föstudaginn 13. maí til kl. 15 og á morgun kjördag frá kl.14.00 til 17.00. Kjósendur eru beðnir um að hafa með sér skilríki til auðkenningar sjá neðst á auglýsingunni:

...
Meira

Hjólasöfnun Barnaheilla - Save the Children á Íslandi

| 22. apríl 2022

Árleg hjólasöfnun Barnaheilla – Save the Children á Íslandi er í fullum gangi þessa dagana. Markmið söfnunarinnar er að börn og ungmenni í félagslega og fjárhagslega erfiðri stöðu eignist reiðhjól. Þannig fá þau tækifæri til að eflast félagslega auk þess sem lýðheilsuleg sjónarmið eru að baki sem efla bæði líkamlegt og andlegt heilsufar. Börnin geta þannig með auknum hætti verið þátttakendur í samfélagi annarra barna. Almenningur er hvattur til að gefa reiðhjól til söfnunarinnar og fara með þau á móttökustöðvar Sorpu á höfuðborgarsvæðinu og þar sjá sjálfboðaliðar um viðgerðir á hjólunum áður en þeim er úthlutað til barna og ungmanna sem að öðrum kosti gefst ekki kostur á að eignast hjól. Hjólasöfnunin stendur yfir frá 1. mars og verður hjólunum úthlutað fram til byrjun maímánaðar.

Umsóknir um hjól úr söfnuninni

Þeir sem hafa áhuga og þörf fyrir að sækja um að fá hjól úr söfnuninni er bent á að hafa samband við félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps þar sem viðkomandi fær aðstoð við að senda inn umsókn. Umsóknarfrestur er til 1. maí 2022.

Hægt er að hafa samband við Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, í netfang felagsmalastjori@strandabyggd.is og í síma 451-3510 eða Hjördísi Ingu Hjörleifsdóttur, starfsmann félagsþjónustu, í netfang hjordis@strandabyggd.is til að fá aðstoð með umsóknir.

Nánari upplýsingar 
Hjólasöfnun Barnaheilla | Barnaheill

Veiðimaður óskast í Djúpi

Salbjörg Engilbertsdóttir | 19. apríl 2022


Strandabyggð óskar eftir að ráða veiðimann til refaveiða á svæði 6 í Strandabyggð sem nær frá Mórillu að Ísafjarðará. Samkvæmt reglum Strandabyggðar um refaveiðar er einungis veiðimönnum með samning við sveitarfélagið greitt fyrir refaveiðar. Ráðinn veiðimaður sér sjálfur um allan búnað til veiðanna og skal hann ekki brjóta í bága við lög og reglugerðir.

 

Hér má sjá reglur um refaveiðar í Strandabyggð.

Umsóknum skal skila á skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is  fyrir lok dags 29. apríl 2022

Umsóknum þarf að fylgja staðfesting á því að veiðikort umsækjanda sé í gildi.

Sumarstörf á Reykhólum

| 19. apríl 2022

Sumarstarfsmenn óskast á Reykhólum

Reykhólahreppur óskar eftir að ráða tvo sumarstarfmenn í 75-100% starf á Reykhólum við að sinna stuðningsþjónustu hjá  stúlku, í júní, júlí og ágúst. Vinnutími væri mánudaga til föstudaga frá 9:00-15:00.

Mjög skemmtilegt og krefjandi starf sem gæti hentað vel fyrir vinkonur eða par.

Möguleiki er á 100% starfi innan hreppsins og hjálp við að finna hentugt húsnæði ef starfsmenn óska þess.

Umsóknarfrestur er til og með 6. maí.

Laun eru samkvæmt taxta Verk-Vest.

Umsóknir sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík. Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is.

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón