A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sönglagakeppni Vestfjarða haldin í fyrsta sinn!

| 09. apríl 2010

Haldin verður í fyrsta sinn Sönglagakeppni Vestfjarða nú á vordögum 2010 og hefur verið auglýst eftir lögum til þátttöku en öllum er heimil þátttaka.  Veglegum verðlaunum er heitið fyrir sigurlag keppninnar, s.s. stafrænu upptökutæki frá hljóðfæraversluninni Rín, stúdíótímum í hljóðverinu Tankinum í Önundarfirði, gistingu á Hótel Ísafirði, flugi með Flugfélagi Íslands, veitingum á veitingastaðnum "Við Pollinn" á Ísafirði og Vigurferð með Vesturferðum á Ísafirði.

Verkefnið fékk styrk frá Menningarráði Vestfjarða s.l. haust sem telst mikilvæg viðurkenning á framtakinu, en fjöld annarra aðila styður keppnina með margvíslegum hætti.

Í Sönglagakeppni Vestfjarða er skilyrði að höfundar þurfa að hafa í huga skírskotun til Vestfjarða við laga- og textasmíð.  Rétt til að senda inn lög og texta hafa allir þeir sem áhuga hafa á keppninni.  Sérstakri valnefnd er fengið það hlutverk að velja lög sem komast í úrslit á sérstökum úrslitakvöldum þar sem lögin verða flutt að viðstöddum áheyrendum og dómnefndum.  Áætlað er að halda tvö úrslitarkvöld, annað á suðursvæði Vestfjarða og hitt á Ísafirði þar sem lögin verða flutt í lifandi tónlistarflutningi af hljómsveit sem sett verður saman til undirleiks fyrir söngvara sem valdir verða í samráði við höfunda laganna.  Sérlega vel verður vandað til allrar umgjarðar um keppnina og hæft fólk fengið til samstarfs við flutning, hljóð og fleira.

Dómnefndir gefa lögum stig og það lag sem fær flest stig samanlagt frá báðum úrslitakvöldum ber sigur af hólmi.  Mögulega verður viðstöddum áheyrendum gefinn kostur á að hafa áhrif á niðurstöðuna með einhverjum hætti.

Vefsíða keppninnar hefur verið opnuð og er slóðin www.songvakeppni.is .  Tónlistarmenn og textahöfundar eru hvattir til að taka þátt og senda lög í keppnina en skilafrestur er til miðnættis 30. apríl 2010.

Sýningar á söngleiknum "Grease" framundan!

| 24. mars 2010

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir æfingar hjá unglingum í Grunn- og Tónskóla Hólmavíkur en þau réðust í það metnaðarfulla verkefni að setja upp söngleikinn "Grease" í samvinnu við m.a. Leikfélag Hólmavíkur og Félag eldri borgara.  Verður frumsýning á verkinu fimmtudaginn 25. mars og næstu sýningar föstudaginn 26. mars og laugardaginn 27. mars.  Sýningar verða í Félagsheimilinu á Hólmavík og hefjast þær kl. 20:00.  Leikstjóri sýningarinnar er Jóhanna Ása Einarsdóttir og tónlistarstjóri Stefán S. Jónsson.  Fjölmargir koma að sýningunni en stjörnur sýningarinnar eru þó nemendur sjálfir sem sjá um söng, undirspil, lýsingu, hljóð og sviðsetningu.  Eru íbúar Strandabyggðar sem og allir aðrir hvattir til að mæta enda mikil og góð skemmtun í boði.

Hafnarbraut 6 til sölu.

| 19. febrúar 2010

Auglýst er til sölu húsnæði Fiskmarkaðar Hólmavíkur ehf. að Hafnarbraut 6 en um er að ræða iðnaðarhúsnæði byggt 1946, 201, 5 fm. að stærð.  Húsnæðið stendur á eignarlóð sem flokkuð er sem iðnaðar- og athafnasvæði og er 2.000 fm.  Áætluð afhending eignar er 1. maí 2010 eða samkvæmt samkomulagi og áskilur stjórn Fiskmarkaðsins sér þann rétt að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.  Tilboð skulu berast til Jóns Eðvalds Halldórssonar á skrifstofu Kaupfélagsins að Höfðatúni 4, 510 Hólmavik.

Framkvæmdastjóri óskast fyrir Hamingjudaga.

| 15. febrúar 2010
 

Strandabyggð auglýsir eftir framkvæmdastjóra vegna bæjarhátíðarinnar "Hamingjudagar á Hólmavík" árið 2010 sem haldin er í byrjun júlímánaðar.  Mun framkvæmdastjórinn annast allan undirbúning, skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar í samvinnu við menningarmálanefnd Strandabyggðar. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Strandabyggðar í síma 451-3510 eða á holmavik@holmavik.is.  Umsóknum skal skilað til skrifstofu Strandabyggðar fyrir kl. 16:00 mánudaginn 22. febrúar.

Gögn vegna Aðalskipulags Strandabyggðar.

| 20. janúar 2010

Þar sem margir hafa haft samband vegna erfiðleika við að nálgast gögn vegna Aðalskipulags Strandabyggðar er vakin athygli á því að þegar smellt er á Aðalskipulag birtist þar undirflokkur sem heitir Skrár og skjöl og skal smella á þann undirflokk.  Þá birtast öll gögn á pdf formi er varða gerð aðalskipulags Strandabyggðar.

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón