A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Niðurstöður úttektar á Grunnskólanum á Hólmavík

| 03. maí 2012
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsti fyrr í vetur eftir umsóknum frá grunnskólum á Íslandi sem vildu láta gera úttekt á starfsemi sinni. Að frumkvæði skólastjórnenda Grunnskólans á Hólmavík var send inn umsókn til ráðuneytisins og var skólinn einn af örfáum skólum sem var valinn úr fjölda umsókna sem bárust. Niðurstöður úttektarinnar verða notaðar til áframhaldandi þróunar skólastarfs í Strandabyggð. Meðfylgjandi frétt um úttektina birtist á fréttavef BB, sjá hér:

Skólabragur jákvæður á Hólmavík

Andinn innan Grunnskólans á Hólmavík virðist mjög opinn og segja nemendur auðvelt að ná sambandi við kennara, stjórnendur og annað starfsfólk. Þetta kemur fram í úttekt á starfsemi skólans sem gerð hefur verið fyrir menntamálaráðuneytið. „Almennt virðist það viðhorf ríkja meðal nemenda, foreldra og kennara að skólabragur sé jákvæður, nemendum líði vel í skólanum og viðhorf til skólans sé jákvætt í samfélaginu," segir meðal annars í úttektinni.
...
Meira

Hnyðja formlega opnuð næsta föstudag

| 02. maí 2012
Framkvæmdir í Hnyðju - ljósm. strandir.is
Framkvæmdir í Hnyðju - ljósm. strandir.is
Neðsta hæð Þróunarsetursins, sem hlotið hefur nafnið Hnyðja, verður opnuð með formlegum hætti föstudaginn 4. maí kl. 15:00-17:00. Strandamenn nær og fjær eru hvattir til að kíkja í heimsókn, skoða aðstöðuna, fá sér vöfflu og kaffi, njóta tónlistarflutnings og áhugaverðra listsýninga sem afhjúpaðar verða á opnuninni. Nemendur úr Grunn- og Tónskólanum auk skólahóps í leikskólanum Lækjarbrekku munu taka forskot á sæluna að morgni föstudags, en þá fer fram hressileg móttaka með unga fólkið í öndvegi....
Meira

Fundur í Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd 8. maí

| 02. maí 2012
Frá Góuskemmtun í vetur - ljósm. strandir.is
Frá Góuskemmtun í vetur - ljósm. strandir.is

Fundur verður haldinn í Atvinnu-, dreifbýlis- og hafnarnefnd þann 8. maí 2012 kl. 17:00 í fundasal sveitarfélagsins í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík. Erindi sem leggja á fyrir fundinn skal senda á skrifstofu Strandabyggðar eða á sogusmidjan@strandir.is í síðasta lagi á föstudaginn.

Nefndin er þannig skipuð: 
 

Aðalmenn
Jón Jónsson formaður
Rúna Stína Ásgrímsdóttir, varaform.  
Árný Huld Haraldsdóttir, ritari           
Jón Vilhjálmur Sigurðsson                 
Matthías Lýðsson         
                    

Varamenn
Andrea Marta Vigfúsdóttir               
Rósmundur Númason
Ragnheiður Birna Guðmundsdóttir
Sverrir Guðbrandsson
Kristín S. Einarsdóttir
 

Fjöldi fólks lagði leið sína á handavinnusýningu 1. maí

| 01. maí 2012
Myndir Ingibjörg Sigurðardóttir, umsjónarmaður félagsstarfs aldraðra.
Myndir Ingibjörg Sigurðardóttir, umsjónarmaður félagsstarfs aldraðra.
« 1 af 15 »
Straumur af fólki var í allan dag á handavinnusýningu félagsstarfs eldri borgara í Strandabyggð. Sýningin fór fram í Félagsheimilinu á Hólmavík og mátti þar sjá fjölmarga muni sem eldri borgarar hafa unnið í vetur en Ingibjörg Sigurðardóttir hefur umsjón með félagsstarfinu. Eftir áramót var opnuð smíðastofa á vegum félagsstarfsins í Grunnskólanum á Hólmavík og var sú kærkomna viðbót starfrækt einu sinni í viku og verður framhald á þeirri starfsemi næsta haust. Meðfylgjandi myndir tók Ingibjörg Sigurðardóttir í dag.

Handavinnusýning - félagsstarf aldraðra í Strandabyggð

| 01. maí 2012
Mynd IV
Mynd IV

1. maí verður haldin sýning á munum unnum í félagsstarfi aldraðra í Strandabyggð. Sýningin er í félagsheimili Hólmavíkur frá kl. 14:00 - 17:00.

Allir velkomnir!

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón