A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laus störf í menntastofnunum í Strandabyggð

| 14. maí 2012

Grunn- og Tónskólinn á Hólmavík auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:

- Þrjár grunnskólakennarastöður: Umsjónarkennsla, íslenska, samfélagsgreinar, tungumál, íþróttir og sund.
- Tvær stöður tónlistarkennara á grunn- og miðstigi.
- Tvær stöður stuðningsfulltrúa til að sinna nemendum með sérþarfir og lengdri viðveru nemenda, stöðuhlutfall 70 – 100%.

 

Leikskólinn Lækjarbrekka á Hólmavík auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar:
- Þrjár stöður leikskólakennara. Um er að ræða þrjár 100% stöður með vinnutíma frá kl. 08:00-16:00. Við leitum eftir starfsfólki sem getur hafið störf um miðjan ágústmánuð.
- Starfsmenn í afleysingar í júní og fyrstu vikuna í júlí.

 

Smellið hér til að sjá auglýsinguna í heild sinni og frekari upplýsingar.

Vinnuskólinn er málið!

| 11. maí 2012
Líf og fjör - ljósm. Jón Jónsson
Líf og fjör - ljósm. Jón Jónsson
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um vinnu í Vinnuskóla Strandabyggðar sumarið 2012. Vinnuskólinn verður nú starfræktur á tveimur fimm vikna tímabilum undir stjórn Ragnheiðar Gunnarsdóttur. Fyrra tímabilið stendur yfir frá 4. júní til 6. júlí, seinna tímabilið frá 9. júlí til 10. ágúst. Umsækjendur þurfa því að velja hvort vinnutímabilið hugnast þeim betur. Unnið verður fyrir hádegi frá kl. 8:30 til kl. 12:00, en vinnuskólinn er ætlaður börnum og unglingum fæddum árin 1996, 97, 98 og 99.


Umsóknum skal skila til skrifstofu Strandabyggðar í síðasta lagi föstudaginn 18. maí 2012.

Umsóknareyðublað og reglur Vinnuskólans má nálgast með því að smella hér.

Fundur 1196 í sveitarstjórn Strandabyggðar

| 11. maí 2012
Fundur 1196 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 15. maí 2012. Fundurinn verður haldinn í Hnyðju og hefst kl. 16:00. Dagskrá fundarins má sjá hér. 

Fundur í Umhverfis- og skipulagsnefnd

| 11. maí 2012
Frá móttöku fyrir börn og ungmenni í Hnyðju. Mynd IV.
Frá móttöku fyrir börn og ungmenni í Hnyðju. Mynd IV.
Fundur verður haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd mánudaginn 14. maí 2012. Fundurinn verður haldinn í Hnyðju og hefst kl. 16:00. Nánari upplýsingar vegna afgreiðslu erinda veitir Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúi Strandabyggðar í s: 892 3952. Einnig er hægt að senda Gísla tölvupóst í netfangið gisli@tvest.is. 

Fundur 1196 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í Hnyðju þriðjudaginn 15. maí 2012 kl. 16:00.

Fyrirtæki farin að skrá sig til þátttöku: Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna á Hólmavík 16. maí 2012

| 10. maí 2012
KSH til fyrirmyndar á umhverfisdegi fyrirtækja og stofnanna 2012. Mynd IV.
KSH til fyrirmyndar á umhverfisdegi fyrirtækja og stofnanna 2012. Mynd IV.
Umhverfisdagur fyrirtækja og stofnanna á Hólmavík verður haldinn miðvikudaginn 16. maí 2012. Þann dag geta fyrirtæki og stofnanir óskað eftir að starfsmenn Áhaldahúss Strandabyggðar fjarlægi rusl. Þegar hafa Kaupfélag Steingrímsfjarðar á Hólmavík, Þróunarsetrið á Hólmavík, Hólmadrangur, Hólmavíkurhöfn og Sorpsamlag Strandasýslu tilkynnt þátttöku í deginum. Þeir sem vilja taka þátt er bent á að hafa samband við starfsfólk Áhaldahússins í síma 894 4806, en góð þátttaka var í umhverfisdegi fyrirtækja og stofnanna árið 2011....
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón