Upplýsingamiðstöðin, sundlaug og tjaldsvæði - sumaropnun!
Sveitarfélagið Strandabyggð óskar Strandamönnum og ferðalöngum öllum gleðilegs sumars!
...Meira
Sveitarfélagið Strandabyggð óskar Strandamönnum og ferðalöngum öllum gleðilegs sumars!
...Allir sem búa og starfa í sveitarfélögunum fjórum, Árneshreppi, Kaldrananeshreppi, Reykhólahreppi og Strandabyggð, skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til uppruna, þjóðernis, litarháttar, trúarbragða,stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar, aldurs, efnahags, ætternis, fötlunar, heilsufars eða annarrar stöðu. Hugað skal sérstaklega að því að stuðla að jöfnum rétti karla og kvenna og vinna gegn stöðnuðum hugmyndum um hlutverk kynjanna sem hefta frelsi einstaklingsins til að geta notið sín á þeim sviðum sem slíkar staðalímyndir ná til.
Sveitarfélögin Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð taka skýra afstöðu gegn kynbundnu ofbeldi og beinnar og óbeinnar mismununar kynjanna. Þetta kemur m.a fram í jafnréttisáætlun sem Velferðarnefnd Stranda og Reykhólahrepps vann.
...Fundur verður haldinn í Umhverfis- og skipulagsnefnd Strandabyggðar fimmtudaginn 24. maí 2012. Hægt er að senda Gísla Gunnlaugssyni byggingarfulltrúa erindi í tölvupóst í netfangið gisli@tvest.is eða skila inn erindum á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3. Einnig er hægt að hafa samband við byggingarfulltrúa í síma 892 3952.
Sveitarstjórnarfundur 1197 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn þriðjudaginn 29. maí 2012.
- 14:00 Bláa hverfið
- 15:00 Appelsínugula hverfið
- 16:00 Rauða hverfið
Íbúar á Hólmavík eru hvattir til að gera sér glaðan dag við hreinsun, fegrun og tiltekt og sjá til þess að bærinn verði skínandi hreinn og fínn!