A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fimm sveitarstjórnir funduðu í Hnyðju

| 25. apríl 2012
Sveitarstjórnir Árneshrepps, Kaldrananeshrepps, Strandabyggðar, Reykhólahrepps og Dalabyggðar komu saman til fundarhalda í Hnyðju s.l. mánudag. Á dagskrá fundarins voru sameiginleg hagsmunamál á svæðinu. M.a. var rætt um stofnun framhaldsdeildar á Hólmavík, sýslumannsembætti á svæðinu, rekstur og þjónustu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og möguleg samstarfsverkefni þessara sveitarfélaga.

Viktoría Rán Ólafsdóttir verkefnastjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða kynnti vinnu við atvinnustefnu á Ströndum og Reykhólahreppi sem nú er að hefjast. Atvinnustefnan verður unnin í samráði við atvinnumálanefndir og sveitarstjórnir á svæðinu og er stefnt að því að hún verði tilbúin næsta haust. 

Tíndu hálft tonn af rusli á Umhverfisdegi

| 20. apríl 2012
Nemendur í Grunnskólanum á Hólmavík gerðu aldeilis góða hluti í fegrun Hólmavíkur í dag þegar haldinn var árlegur umhverfisdagur grunnskólans. Þá gengu allir nemendur skólans víðsvegar um bæinn og tíndu ógrynnin af rusli. Herlegheitin voru síðan vigtuð á hafnarvoginni sem sýndi hvorki fleiri né færri en 540 kg. þyngd. Sveitarstjórn Strandabyggðar hét á vinnu og árangur hópsins við ruslatínstluna og fengu nemendurnir þrjátíu þúsund krónur í staðinn fyrir dugnaðinn. Markmiðið með deginum er að efla umhverfisvitund nemenda og hvetja þá til að huga betur að umhverfi sínu, bættri umgengni almennt og vekja athygli almennings á umhverfismennt.

Þetta var í fjórða skipti sem dagurinn er haldinn hátíðlegur í Grunnskólanum á Hólmavík. Dagurinn hófst með fræðslu frá Einari Indriðasyni framkvæmdastjóra Sorpsamlags Strandasýslu, en að lokinni ruslatínslunni fengu allir heitt kakó í skólanum og áttu saman góða stund í vikulokin. Það var Ingibjörg Emilsdóttir verkefnisstjóri ásamt umhverfisnefnd skólans sem skipulagði umhverfisdaginn. Hann er liður í Grænfánastarfi skólans, en Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Grunnskólinn á Hólmavík hefur nú flaggað honum í þrjú ár.


Nemendum og starfsfólki grunnskólans á Hólmavík er þakkað frábært framlag við fegrun kauptúnsins!

Gleðilegt sumar!

| 19. apríl 2012
Mynd IV
Mynd IV
Sveitarfélagið Strandabyggð óskar Strandamönnum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars! Sumarblíðan lét sjá sig á Hólmavík og nágrenni s.l. helgi og götur bæjarins fylltust af gangandi vegfarendum, skokkandi íbúum og hjólandi börnum. Ökumenn eru hvattir til að fara varlega í umferðinni og hjólreiðamenn minntir á hjálmana. Takk fyrir nýliðinn vetur!

Tilkynning frá sveitarstjóra

| 18. apríl 2012

Kæru íbúar Strandabyggðar.

Ég hef tekið þá afar erfiðu ákvörðun að segja upp starfi mínu sem sveitarstjóri Strandabyggðar frá og með 1. september 2012 vegna fjölskylduástæðna.

Það eru spennandi tímar framundan í okkar öfluga samfélagi - eins og alltaf!

Með hlýju þakklæti,
Ingibjörg

Hnyðja skal hún heita

| 17. apríl 2012
Framkvæmdum í Hnyðju er nú að mestu lokið og hefur móttaka Strandabyggðar verið flutt niður.
Framkvæmdum í Hnyðju er nú að mestu lokið og hefur móttaka Strandabyggðar verið flutt niður.

Á sveitarstjórnarfundi sem haldinn var í Strandabyggð í kvöld var samþykkt að neðsta hæðin í Þróunarsetrinu hljóti nafnið Hnyðja. Var nafnið samþykkt með fjórum atkvæðum en alls bárust 117 tillögur í samkeppni um nafn á hæðina og þakkar sveitarfélagið fyrir þessa glæsilegu þátttöku.

Móttaka Strandabyggðar var flutt niður í Hnyðju í dag þar sem íbúar geta nú sótt þjónustu sveitarfélagsins. Vonast er til að truflanir á síma- og netsambandi á morgun verði sem minnstar og er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þær kunna að valda. Formleg opnun verður haldin föstudaginn 4. maí n.k. og verður hún auglýst nánar síðar.

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón