Aðalskipulag Strandabyggðar - Afgreiðsla sveitarstjórnar
Afgreiðsla sveitarstjórnar
Sveitarstjórn Strandabyggðar samþykkti þann 13. maí 2025 tillögu að Aðalskipulagi Strandabyggðar 2024-2036 að lokinni kynningu.
Tillagan var auglýst frá 20. desember 2024 til 28. febrúar 2025. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartímanum og var við lokaafgreiðslu tekin afstaða til þeirra og gerðar nokkrar breytingar á auglýstri tillögu með hliðsjón af umsögnum.
Samþykkt Aðalskipulag Strandabyggðar 2024-2036 hefur verið sent Skipulagsstofnun til staðfestingar. Aðalskipulagstillagan og öll fylgigögn máls eru aðgengileg í Skipulagsgátt á slóðinni: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/675
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta sent fyrirspurn til skipulagsfulltrúa í tölvupóstfangið skipulags@dalir.is
Skipulagsfulltrúi Strandabyggðar