Laust starf í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar-LOKIÐ
Starfsmann vantar í 80% starf við Íþróttamiðstöðina á Hólmavík sem fyrst. Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf sem felst meðal annars í afgreiðslu, baðvörslu, sundlaugarvörslu, þrifum, umsjón með tjaldstæði og öðrum tilfallandi verkefnum. Um er að ræða framtíðar starf og þarf starfsmaður að geta hafið störf sem fyrst. Gerð er krafa um búsetu í Strandabyggð. Unnið er á vöktum. Gerð er krafa um jákvæðni og ríka þjónustulund, stundvísi, dugnað, sjálfstæð vinnubrögð og kunnáttu í erlendum tungumálum. Í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum kemur fram að starfsmenn sem sinna laugargæslu skuli hafa náð 18 ára aldri og standast eftirfarandi hæfnispróf sjá nánar um starfið hér. Umsóknum má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða Íþróttamiðstöðvar fyrir 30. september og nálgast má umsóknir hér.
Laust starf á Leikskólanum Lækjarbrekku
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf. Vinnutíminn er 8:00 – 16:00. Starfsmaður þarf helst að geta hafið störf sem fyrst.
Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Skipulagshæfni og jákvæðni er mikilvægur kostur.
Nánari starfslýsingar á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411, einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra. Umsóknarfrestur er til 5. sept. 2017. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.
Laus störf í félagsmiðstöðinni Ozon og Skólaskjóli
Tvö laus störf eru á tómstundasviði í Strandabyggð.
Skólaskjól
Um er að ræða allt að 100% dagstarf fyrir hressan, skipulagðan og metnaðarfullan einstakling sem hefur gaman að því að vinna með börnum. Einstaklingur þarf að skipuleggja og framkvæma dagskrá að ýmsum toga með börnum á aldrinum 6-9 ára. Unnið verður náið með tómstundafulltrúa Strandabyggðar og starfsfólki Grunnskóla Hólmavíkur.
Félagsmiðstöðin Ozon
Um er að ræða 10% kvöldstarf í félagsmiðstöðinni Ozon sem er opin einu sinni í viku. Félagsmiðstöðinni er fyrir börn frá 10 til 15 ára. Það vantar skemmtilegan og metnaðarfullan einstakling til að bera ábyrgð og hafa umsjón með því frístundastarfi sem þar fer fram.
Frekari upplýsingar veitir Íris Ósk tómstundafulltrúi í síma 846-0281 eða í tölvupósti tomstundafulltrui@strandabyggd.is.
Laus störf á leikskólanum Lækjarbrekku
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennurum/leiðbeinendum í 100% starf og er um tvö störf að ræða. Vinnutíminn er 8:00 – 16:00. Starfsmenn þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Skipulagshæfni og jákvæðni er mikilvægur kostur.
Nánari starfslýsingar á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411, einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra. Umsóknarfrestur er til 15.ágúst 2017. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.
Laust starf umsjónarmanns Íþróttamiðstöðvar
STARFSLÝSING:
fostöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar á Hólmavík.
Verkefni forstöðumanns felast m.a. í:
• Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum
og rekstri íþróttamiðstöðvar
• Að hafa umsjón með viðhaldi og rekstri tækja og búnaðar
• Faglegri forystu
• Að stuðla að framþróun íþróttamiðstöðvarinnar
• Ráðningum afleysingafólks og mannauðsstjórnun
Gerðar eru kröfur um að viðkomandi:
• Uppfylli skilyrði sem fram koma í reglugerð nr. 814/2010 um
hollustuhætti á sund- og baðstöðum og hafi hreint sakavottorð
• Búi yfir skipulags- og stjórnunarfærni
• Búi yfir góðri samskiptafærni og getu til að tjá sig í ræðu og
riti.
• Hafi til að bera frumkvæði og styrk til ákvarðanatöku
• Sé í starfi sínu hvetjandi og góð fyrirmynd
Starfinu fylgir töluverð samvinna og samskipti við skriftstofu
og aðrar stofnanir sveitarfélagsins, s.s. leik- og grunnskóla,
tómstundafulltrúa og áhaldahús sem og íþróttafélög og önnur
félög á staðnum.
Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst 2017 en umsóknir
og fyrirspurnir skulu berast til sveitarstjóra á netfangið
sveitarstjori@strandabyggd.is eða á skrifstofu sveitarfélagsins
að Höfðagötu 3, 510 Hólmavík.
Atvinna - störf á lausu hjá KSH
Starfsmaður óskast í í veitingarskála og verslun á Hólmavík
- Um er að ræða framtíðarstarf í vaktavinnu
- Starfið er fjölbreytt í líflegu starfsumhverfi þar sem létt lund, þjónustulipurð, heiðarleiki, snyrtimennska og dugnaður skiptir máli.
Sjá nánar hér fyrir neðan og á vef KSH
Meira
Laust starf á Leikskólanum Lækjarbrekku
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir matráð m.ræstingu í 100% starf. Vinnutíminn er 8:00 – 16:00. Starfsmaður þarf að geta hafið störf 1.ágúst.
Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Skipulagshæfni og jákvæðni er mikilvægur kostur.
Nánari starfslýsingar á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411, einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum og ferilskrá á skrifstofu Strandabyggðar eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Umsóknafrestur er til 21.júlí 2017. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.