A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sumarstörf 2021

Salbjörg Engilbertsdóttir | 17. mars 2021

Umsóknarfrestur framlengdur til 25. apríl nk.  

Enn vantar í nokkurmikilvæg störf:  Umsjónarmann vinnuskóla og umhverfis, Íþróttamiðstöð, Áhaldahús, umsjón með sumarnámskeiðum, leikskóla og liðveislu með börnum og atvinnu með stuðningi. 


Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir starfsmönnum í sumarstöf hjá stofnunum sveitarfélagsins sumarið 2021. Um er að ræða eftirtalin störf við þessar deildir:

Strandabyggð is open for applications for summer jobs in the municipality.

-Íþróttamiðstöð Strandabyggðar - Sportcenter and campsite

-Áhaldahús Strandabyggðar - Maintenance team

-Umsjónarmaður vinnuskóla Strandabyggðar og umhverfisverkefnum - Work school leader and environmental projects

-Leikskóli - Ath! lokað er á leikskóla í 5 vikur / Kindergarden (closed for 5 weeks during summer)
-Félagsþjónusta - Liðveisla með fötluðum börnum /Social serviced - assistance with children with special needs
-Félagsþjónusta - Liðveisla í atvinnu með stuðningi / Social services - Employment with assistance

-Félagsþjónusta - heimaþjónusta / Social services - home assistance
-Vinnuskóli Strandabyggðar 13-17 ára - Work school for children

Information/Upplýsingar um störfin má nálgast hér.

Hægt er að skila umsóknum beint inn í gegnum google forms með þessari slóð hér (apply via google forms) en eyðublað sem hægt er að prenta út og fylla út í er birt hér

 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3 og er umsóknarfrestur út 6.apríl. Jafnframt er hægt að senda umsóknir í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Á umsókn skal koma skýrt fram um hvaða starf er sótt. Ef sótt er um fleiri en eitt starf skal koma fram hvaða starf er fyrsti valkostur og hvað er til vara. Jafnframt skal taka fram ef viðkomandi getur ekki unnið allt sumarið og þá hvenær starfsmaðurinn þarf frí.  Further information at the office at Hafnarbraut 25, 451-3510 or by email on strandabyggd@strandabyggd.is


Athugið að Strandabyggð er tóbaks- og vímuefnalaus vinnustaður og athugið að þau störf sem krefjast þess að unnið sé með börnum og ungmennum er krafa um hreint sakavottorð.  We are tobacco and drugfree workplace and jobs with children will require clean criminal record.

 

Umsóknareyðublöð um störf hjá Strandabyggð má finna hér. (Apply on paper)

 

Sumarstörf á Heilbrigðisstofnuninni

Salbjörg Engilbertsdóttir | 12. mars 2021


Heilbrigðisstofnun Vesturlands Hólmavík óskar eftir starfsmönnum
í sumarafleysingar á hjúkrunardeild í umönnun og matráð í eldhús.

 

Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík auglýsir eftir matráð í eldhús í vetrar og sumarafleysingar frá 1 apríl til 1 september 2021. Einnig starfsmönnum  í 60 til 90% starf frá ca 20. maí til ca 21. ágúst 2021 eða eftir nánara samkomulagi, við umönnun aldraðra og önnur tilfallandi störf. Um er að ræða vaktavinnu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins við viðkomandi stéttarfélag.

 

Hæfniskröfur

  • Snyrtimennska og stundvísi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð þjónustulund
  • Góð íslenskukunnátta
  • Reynsla við umönnun er kostur

 

Umsóknarfrestur er til og með 23.mars 2021. Sækja þarf um á hve.is undir Laus störf  

Nánari upplýsingar veita Sólveig H. Halldórsdóttir öldrunarsjúkraliði í síma   432-1400 og Jóhann Björn Arngrímsson í síma 432-1414

 

 

HVE er reyklaus vinnustaður

 

Nánari upplýsingar um Heilbrigðisstofnun Vesturlands má finna á www.hve.is

 

Laus störf

Salbjörg Engilbertsdóttir | 12. janúar 2021

Strandabyggð auglýsir laus störf í Grunnskólanum á Hólmavík og Leikskólanum Lækjarbrekku

  • Stuðningsfulltrúi, 100%. Vinnutími 8:00-16:00. Um er að ræða starf með nemanda/nemendum með sérþarfir og eftirfylgni í grunnskóla og Frístund. Í starfinu felst einnig gæsla í frímínútum.
  • Deildarstarfsmaður á leikskóla 50% Vinnutími 12:00-16:00. Leitað er eftir fólki með kennaramenntun, uppeldismenntuðu fólki eða fólki sem hefur áhuga á að vinna með börnum.

Áhersla er lögð á jákvæðni, sveigjanleika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áreiðanleiki og frumkvæði eru góðir kostir.

Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til að fara á milli leik- og grunnskóla og þurfa að geta hafið störf sem allra fyrst.

Umsóknarfrestur er til 17. janúar 2021.

Nánari upplýsingar gefur Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri sími 451 3430, skolastjori@strandabyggd.is

Umsóknir ásamt starfsferilskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á netfangið: skolastjori@strandabyggd.is

Laust starf í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar

| 26. ágúst 2020

Íþróttamiðstöðin á Hólmavík auglýsir eftir karlkyns starfskrafti í 100% starf til að sinna m.a. baðvörslu í karlaklefa.

 

Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf sem felst meðal annars í afgreiðslu, baðvörslu, sundlaugarvörslu, þrifum, umsjón með tjaldstæði og öðrum tilfallandi verkefnum. Um er að ræða framtíðar starf og þarf starfsmaður að geta hafið störf sem fyrst. Gerð er krafa um búsetu í Strandabyggð. Unnið er á vöktum. Gerð er krafa um hreint sakavottorð, jákvæðni og ríka þjónustulund, stundvísi, dugnað, sjálfstæð vinnubrögð og kunnáttu í erlendum tungumálum. Í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum kemur fram að starfsmenn sem sinna laugargæslu skuli hafa náð 18 ára aldri og standast eftirfarandi hæfnispróf sjá nánar um starfið hér.  

Umsóknum má skila á skrifstofu Strandabyggðar eða Íþróttamiðstöðvar fyrir 7. september og nálgast má umsóknir hér.

Laus störf hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Hólmavík

Salbjörg Engilbertsdóttir | 29. júlí 2020

Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík auglýsir eftir starfsmönnum í 2 80% stöðugildi.  Hér má finna auglýsingu og umsókn.
https://www.hve.is/laus-storf/starf?id=22480

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir störf til umsóknar

| 29. maí 2020

Strandabyggð auglýsir stöður Tómstundafulltrúa og störf við Grunn-og leikskóla

Grunnskólinn á Hólmavík og Leikskólinn Lækjarbrekka

 

Lausar stöður skólaárið  2020-2021

  • Staða umsjónarkennara á yngsta stigi 100%. Um er að ræða samkennslu í 1. – 3. bekk. Allar almennar kennslugreinar.
  • Staða umsjónarkennara á unglingastigi 100%. Um er að ræða samkennslu í 7. – 10. bekk. Allar almennar kennslugreinar.
  • Staða íþróttakennara 100%. Um er að ræða kennslu í skólaíþróttum og sundi og þjálfun íþróttagreina í samstarfi við íþróttafélagið Geislann á Hólmavík.
  • Tvær stöður leikskólakennara100%. Um er að ræða almennt starf á deild.
  • Staða stuðningsfulltrúa 100%. Um er að ræða þjálfun nemanda með sérþarfir og eftirfylgni í grunnskóla og tómstundastarfi.

Umsækjendur um kennarastöður þurfa að hafa kennsluréttindi.  Leitað er eftir einstaklingum sem hafa góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áhersla er lögð á jákvæðan aga, samþætt þemabundin verkefni og teymisvinnu.  Reynsla af samkennslu árganga, og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvæg. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsóknarfrestur er framlengdur frá til 28. júní 2020.

 

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, sími 451 3430, netfang skolastjori@strandabyggd.is

 

Umsóknir með starfsferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á skolastjori@strandabyggd.is

 

Tómstundafulltrúi

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf tómstundafulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir skapandi og skipulagðan einstakling sem hefur unun af samskiptum. Um 75% starf er að ræða.


Helstu verkefni

  • Verkefnavinna og stefnumótun á sviði      tómstunda-, íþrótta- og menningarmála í Strandabyggð
  • Samvinna með skólastjóra Grunn-, leik- og      tónskóla Hólmavíkur að málefnum á sviði menntunar og tómstunda
  • Vinna með Tómstunda-, íþrótta og      menningarnefnd sveitarfélagsins
  • Umsjón með starfsemi      félagsmiðstöðvarinnar Ozon og ungmennahússins Fjóssins
  • Umsjón með Ungmennaráði Strandabyggðar
  • Umsjón með skipulögðu starfi eldri      borgara í Strandabyggð
  • Verkefnastjórnun við      hátíðahöld og viðburði á vegum Strandabyggðar
  • Undirbúningur vegna vinnuskóla,      menningardvalar og sumarnámskeiða
  • Stuðningur við félagastarf á sviði      tómstunda, íþrótta og menningar
  • Sérstök nýsköpun og stuðningur við þá      hópa sem hafa lítið framboð við hæfi í Strandabyggð
  • Samvinna við nágrannasveitarfélög og á      landsvísu á sviði tómstundamála
  • Samstarf við íþróttafélög, starfsfólk      íþróttamiðstöðvar og félagasamtök á svæðinu

 

Æskileg menntun, færni og eiginleikar

  • Háskólapróf á sviði tómstunda- og      félagsmálafræði eða skyldum greinum sem nýtast í starfi
  • Skipulags- og stjórnunarfærni
  • Reynsla af félagsstörfum með börnum og      ungmennum
  • Samskiptafærni og geta til að tjá sig í      ræðu og riti
  • Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi
  • Er hvetjandi og góð fyrirmynd 

Umsóknarfrestur er til miðnættis 14. júní 2020.  Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, eða á netfangið:  strandabyggd@strandabyggd.is

Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Pálsson sveitarstjóri, í síma 451-3510 eða 899-0020, eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is

 

Í Strandabyggð búa um 460 manns og er Hólmavík þéttbýlisstaður sveitarfélagsins. Atvinnulíf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og skólastarf öflugt. Boðið er upp á leikskólapláss fyrir börn frá 9 mánaða aldri og auk grunnskóla fyrir börn frá 1.-10. bekk er á staðnum dreifnámsbraut frá FNV fyrir nemendur á framhaldsskólastigi. Öflugt tómstunda-, íþrótta- og menningarstarf er í sveitarfélaginu, s.s. skíðafélag, tveir kórar fyrir fullorðna, tónlistarskóli og áhugaleikfélag og hugað er að því að sem flestir aldurshópar fái notið sín.

 

Sumarstörf námsmanna í Strandabyggð

Salbjörg Engilbertsdóttir | 27. maí 2020

Við viljum vekja athygli námsmanna á því að nokkur störf eru í boði fyrir námsmenn í sumar. 

Vinnumálastofnun og félagsmálaráðuneytið hafa sett af stað átak til að efla sumarvinnu námsmanna.  Átakið er unnið í samvinnu við sveitarfélögin í landinu.

Strandabyggð auglýsir mér með eftir starfsmanni til starfa á skrifstofu sveitarfélagsins, í eftirtalin verkefni:
  • Skjalavistun, greining og flokkun gagna á skrifstofu
  • Önnur tilfallandi störf á sviði upplýsingamála.
Átakið snýr að námsmönnum sem eru 18 ára á árinu og eldri. Námsmenn þurfa að vera í námi á milli anna. Það er: hafa stundað nám á vorönn og halda áfram námi að hausti. Námsmenn þurfa að skila inn staðfestingu frá skóla að viðkomandi sé námsmaður á milli anna.

Vantar þig sumarstarf?  Hafðu samband.  Umsóknarfrestur er til og með 5. júní.

Nánari upplýsingar veitir Þorgeir Pálsson sveitarstjóri í síma 451-3510 eða 899-0020.  Umsóknum skal skilað í rafrænu formi á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is fyrir  miðnætti 5. júní n.k.

Vestfjarðastofa auglýsir tvö til þrjú sumarstörf handa námsmönnum sem hluta af átaksverkefni ríkisstjórnarinnar til fjölgunar sumarstarfa.

Skilyrði og forsendur:
Sumarstörf eru fyrir námsmenn milli anna (þ.e. séu að koma úr námi og séu skráðir í nám að hausti).
Námsmenn þurfa að vera að lágmarki 20 ára á árinu.
Ráðningartími er tveir mánuðir á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst.

Störfin sem auglýst eru snúa annars vegar að kortlagningu og skrásetningu áningarstaða á nýrri ferðamannaleið, Vestfjarðaleiðinni. Jafnframt myndi starfsmaðurinn vinna að undirbúningi umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu. Hins vegar er auglýst eftir sumarstarfsmanni sem myndi kortleggja göngu-, hlaupa- og hjólaleiðir í tengslum við Vestfjarðaleiðina. Í því starfi felst að safna gps upplýsingum, skrifa leiðarlýsingar og skrá grunnupplýsingar. Jafnframt myndi starfsmaðurinn vinna að undirbúningi umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Viðkomandi getur unnið á eða í tengslum við einhverja af fjórum starfsstöðvum Vestfjarðastofu; Ísafirði, Patreksfirði, Hólmavík eða Þingeyri.

Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2020.
https://www.vestfirdir.is/is/vestfjardastofa/frettir/sumarstorf

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum auglýsir eftir starfsmanni á skrifstofu
 
Vinna við að flokka og merkja skjöl og gögn jafnt á pappír sem og rafræn gögn og eftir atvikum létta undir með öðrum starfsmönnum við embættið við ýmis verkefni og viðvik. Um 50% starfshlutfall er að ræða.
https://form.vinnumalastofnun.is/sumarstorf/jobsview.aspx?pk_job_id=5469

Rannsóknarstofnun Háskólans í þjóðfræði auglýsir eftri 3 sumarstarfsmönnum 

  • Aðstoð við rannsókn: Ímynd og sjálfsmynd. 
  • Rannsóknaverkefni: Vestfirska þjóðtrúarfléttan. 
  • Átthagafræði og gamlar ljósmyndir á Hólmavik.

http://rannsoknasetur.hi.is/sumarstorf_vid_rannsoknasetur_haskola_islands_0?fbclid=IwAR2i0mHzzQKkKP1mOth6h7TVQRK_xty-E70e9_kY5XzkAnEFp5PNsgU68ls


Staða forstöðumanns íþróttamiðstöðvar laus til umsóknar

| 01. maí 2020

Ráðningu lokið

Sveitarfélagið Strandabyggð óskar eftir að ráða forstöðumann Íþróttamiðstöðvarinnar á Hólmavík. Ráðið er í starfið frá 1. júlí n.k.

Við leitum að einstaklingi sem hefur leiðtogahæfni, er lipur í mannlegum samskiptum og hefur brennandi áhuga á uppbyggingu íþrótta- og lýðheilsustarfs í Strandabyggð.

Helstu verkefni:

  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum og rekstri íþróttamiðstöðvar
  • Að hafa umsjón með viðhaldi og rekstri tækja og búnaðar
  • Faglegri forystu og starfsmannastjórnun
  • Að stuðla að framþróun íþróttamiðstöðvarinnar sem og íþróttastarfs í sveitarfélaginu.

 Gerðar eru kröfu um að viðkomandi:

  • Uppfylli skilyrði sem fram koma í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum
  • Búi yfir skipulags- og stjórnunarfærni
  • Búi yfir góðri samskiptafærni og getu til að tjá sig í ræðu og riti
  • Hafi til að bera frumkvæði og styrk til ákvarðanatöku
  • Sé í starfi sínu hvetjandi og góð fyrirmynd

Forstöðumaður er hluti af stjórnendateymi Strandabyggðar, en í því eru forstöðumenn og sveitarstjóri. Starfinu fylgja því töluverð samskipti við skrifstofu Strandabyggðar, tómstundafulltrúa og aðrar stofnanir sveitarfélagsins, s.s. leik- og grunnskóla og áhaldahús. Auk þess íþróttafélög og önnur félagasamtök á svæðinu.

 

Umsóknarfrestur er til 15. maí 2020.  Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, eða á netfangið:  strandabyggd@strandabyggd.is

 

Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Valdimarsson, sveitarstjórnarmaður og formaður Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar, á skrifstofu sveitarfélagsins, í síma 451-3510 eða 866-3569, eða á netfangið eirikur@strandabyggd.is

Staða tómstundafulltrúa laus til umsóknar

| 01. maí 2020

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf tómstundafulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir skapandi og skipulagðan einstakling sem hefur unun af samskiptum. Um 75% starf er að ræða.


Helstu verkefni

  • Verkefnavinna og stefnumótun á sviði tómstunda-, íþrótta- og menningarmála í Strandabyggð
  • Samvinna með skólastjóra Grunn-, leik- og tónskóla Hólmavíkur að málefnum á sviði menntunar og tómstunda
  • Vinna með Tómstunda-, íþrótta og menningarnefnd sveitarfélagsins
  • Umsjón með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Ozon og ungmennahússins Fjóssins
  • Umsjón með Ungmennaráði Strandabyggðar
  • Umsjón með skipulögðu starfi eldri borgara í Strandabyggð
  • Verkefnastjórnun við hátíðahöld og viðburði á vegum Strandabyggðar
  • Undirbúningur vegna vinnuskóla, menningardvalar og sumarnámskeiða
  • Stuðningur við félagastarf á sviði tómstunda, íþrótta og menningar
  • Sérstök nýsköpun og stuðningur við þá hópa sem hafa lítið framboð við hæfi í Strandabyggð
  • Samvinna við nágrannasveitarfélög og á landsvísu á sviði tómstundamála
  • Samstarf við íþróttafélög, starfsfólk íþróttamiðstöðvar og félagasamtök á svæðinu

 

Æskileg menntun, færni og eiginleikar

  • Háskólapróf á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða skyldum greinum sem nýtast í starfi
  • Skipulags- og stjórnunarfærni
  • Reynsla af félagsstörfum með börnum og ungmennum
  • Samskiptafærni og geta til að tjá sig í ræðu og riti
  • Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi
  • Er hvetjandi og góð fyrirmynd

 

Umsóknarfrestur er til 15. maí 2020.  Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, eða á netfangið:  strandabyggd@strandabyggd.is


Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Pálsson sveitarstjóri, í síma 451-3510 eða 899-0020, eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is

Sumarstörf 2020

Salbjörg Engilbertsdóttir | 16. mars 2020

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir starfsmönnum í sumarstöf hjá stofnunum sveitarfélagsins sumarið 2020. Um er að ræða eftirtalin störf við þessar deildir:

-Íþróttamiðstöð Strandabyggðar 

-Áhaldahús Strandabyggðar

-Tómstundasvið-Umsjón með sumarnámskeiði

-Umsjónarmaður með fegrun bæjarins og Vinnuskóla Strandabyggðar

-Félagsþjónusta - Liðveisla með fötluðum börnum
-Félagsþjónusta - heimaþjónusta
-Vinnuskóli Strandabyggðar 13-17 ára

Upplýsingar um störfin má nálgast hér.

Hægt er að skila umsóknum beint inn í gegnum google forms með þessari slóð hér en eyðublað sem hægt er að prenta út og fylla út í er birt hér.

 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3 og er umsóknarfrestur til og með 3.apríl. Jafnframt er hægt að senda umsóknir í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Á umsókn skal koma skýrt fram um hvaða starf er sótt. Ef sótt er um fleiri en eitt starf skal koma fram hvaða starf er fyrsti valkostur og hvað er til vara. Jafnframt skal taka fram ef viðkomandi getur ekki unnið allt sumarið og þá hvenær starfsmaðurinn þarf frí.


Athugið að Strandabyggð er tóbaks- og vímuefnalaus vinnustaður og athugið að þau störf sem krefjast þess að unnið sé með börnum og ungmennum er krafa um hreint sakavottorð.

 

Umsóknareyðublöð um störf hjá Strandabyggð má finna hér.

 
 
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón