A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sumarstörf 2020

Salbjörg Engilbertsdóttir | 16. mars 2020

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir starfsmönnum í sumarstöf hjá stofnunum sveitarfélagsins sumarið 2020. Um er að ræða eftirtalin störf við þessar deildir:

-Íþróttamiðstöð Strandabyggðar 

-Áhaldahús Strandabyggðar

-Tómstundasvið-Umsjón með sumarnámskeiði

-Umsjónarmaður með fegrun bæjarins og Vinnuskóla Strandabyggðar

-Félagsþjónusta - Liðveisla með fötluðum börnum
-Félagsþjónusta - heimaþjónusta
-Vinnuskóli Strandabyggðar 13-17 ára

Upplýsingar um störfin má nálgast hér.

Hægt er að skila umsóknum beint inn í gegnum google forms með þessari slóð hér eða sækja eyðublað sem er birt hér.

 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3 og er umsóknarfrestur til og með 31.mars. Jafnframt er hægt að senda umsóknir í tölvupósti á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Á umsókn skal koma skýrt fram um hvaða starf er sótt. Ef sótt er um fleiri en eitt starf skal koma fram hvaða starf er fyrsti valkostur og hvað er til vara. Jafnframt skal taka fram ef viðkomandi getur ekki unnið allt sumarið og þá hvenær starfsmaðurinn þarf frí.


Athugið að Strandabyggð er tóbaks- og vímuefnalaus vinnustaður og athugið að þau störf sem krefjast þess að unnið sé með börnum og ungmennum er krafa um hreint sakavottoðr

 

Umsóknareyðublöð um störf hjá Strandabyggð má finna hér.

 
 

Starf íþróttakennara við Grunnskólann á Hólmavík

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 05. febrúar 2020
Grunnskólinn á Hólmavík óskar eftir íþróttakennara til starfa. Um er að ræða kennslu í skólaíþróttum og sundi. Starfshlutfall 50%.

Umsækjendur um kennarastöðu þurfa að hafa réttindi til kennslu í grunnskóla.  Leitað er eftir einstaklingum með góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af samkennslu árganga og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir eiginleikar. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð. Viðkomandi þarf að geta byrjað sem allra fyrst.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknarfrestur er til 14. febrúar 2020.

Upplýsingar um starfið veitir Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, sími 451-3430
Umsóknir með starfsferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur skal senda á skolastjori@strandabyggd.is


Störf við leikskólann Lækjarbrekku

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 08. janúar 2020

Störf deildarstarfsmanna við leikskólann Lækjarbrekku

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir tveimur starfsmönnum í 100% stöðu. Vinnutíminn er 8:00-16:00. Leitað er eftir fólki með kennaramenntun, uppeldismenntuðu fólki eða fólki sem hefur áhuga á að starfa með börnum. Viðkomandi þurfa að geta hafið störf 3. febrúar 2020.

 

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Við leikskólann er unnið eftir áherslum jákvæðs aga. Einnig er lögð mikil áhersla á læsi í víðum skilningi. Leitað er eftir öflugum starfsmanni sem hefur gaman af börnum, býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sveigjanleika og skipulagshæfni. Einnig eru áreiðanleiki frumkvæði og sjálfstæði í starfi góður kostur.

 

Umsóknarfrestur er til 16.janúar 2020.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, sími 4513411.
Umsóknir með ferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á leikskolastjori@strandabyggd.is eða Leikskólann Lækjarbrekku, Brunngötu 2, 510 Hólmavík.

 

 

Óskað er eftir stuðningsfjölskyldu

| 06. janúar 2020

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps óskar eftir að ráða stuðningsfjölskyldu fyrir barn.

Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að taka barn tímabundið í umsjá sína í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu þeirra og einnig til að gefa barninu möguleika á aukinni félagslegri þátttöku.
Um er að ræða 2 sólarhringa í mánuði og er gerður samningur þar um.
Greiðslur til stuðningsfjölskyldu eru verktakagreiðslur samkvæmt reglum Byggðasamlags Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn og fjölskyldur þeirra

Umsóknir skulu berast til Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða rafrænt til felagsmalastjori@strandabyggd.is

Frekari upplýsingar veitir Guðrún Elín Benónýsdóttir, félagsmálastjóri, í síma 451 3521 / 845 2511 eða felagsmalastjori@strandabyggd.is

Laust starf hjá Vegagerðinni

Salbjörg Engilbertsdóttir | 05. nóvember 2019

Laus er staða yfirverkstjóra Vegagerðarinnar á Hólmavík skv. meðfylgjandi auglýsingu sem finna má hér

Laus staða Félagsmálastjóra

Salbjörg Engilbertsdóttir | 12. júlí 2019
Félagsþjónusta Stranda- og Reykhóla auglýsa lausa til umsóknar stöðu félagsmálastjóra frá 1. september 2019.

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps var stofnuð 1. febrúar 2011. Fjögur sveitarfélög sameinast um félagsþjónustuna en það eru Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og Reykhólahreppur. Félagsmálastjóri hefur aðsetur á Hólmavík en hefur auk þess haft fasta viðveru á Reykhólum einn dag í viku. Sex málaflokkar heyra undir félagsmálastjóra en þeir eru: Barnavernd • Félagsleg heimaþjónusta • Félagsleg ráðgjöf Fjárhagsaðstoð • Málefni aldraðra • Málefni fatlaðra.

Nánari upplýsingar um starfið og umsókn er hægt að finna hér.

Laust starf hjá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

| 19. júní 2019


Starfsmaður óskast í búsetu hjá  fatlaðri konu á Hólmavík frá 1. september. Starfið krefst mikillar þolinmæði og jákvæðni. Starfsmenn annast viðkomandi og sjá um öll heimilisstörf. Laun samkvæmt kjarasamningi VerkVest. Umsóknarfrestur er til 26. júní.
Umsóknir berist til Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra Höfðagötu 3, 510 Hólmavík sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 842-2511.

Starfsmaður óskast í heimaþjónustu í Strandabyggð

| 28. maí 2019


Starfsmaður óskast í sumarafleyfingu í heimaþjónustu í Strandabyggð . Um er að ræða hlutastarf í þjónustu hjá eldri borgurum. Laun samkvæmt kjarasamningi VerkVest. Gott er ef starfsmaður getur byrjað sem fyrst.

 
Umsóknir berist til Maríu Játvarðardóttur, félagsmálastjóra Höfðagötu 3, 510 Hólmavík .  Nánari upplýsingar í síma 842-2511.

Störf við Grunnskólann á Hólmavík 2019-2020

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 20. apríl 2019

Lausar stöður við Grunnskólann á Hólmavík   2019-2020

  • Staða umsjónarkennara á yngsta stigi. Um er að ræða samkennslu í 1. – 2. bekk. Allar almennar kennslugreinar. Áhersla er lögð á jákvæðan aga, samþætt þemabundin verkefni og teymisvinnu.
  •  Staða umsjónarkennara á miðstigi. Um er að ræða samkennslu í 5. – 7. bekk. Allar almennar kennslugreinar og áhersla er lögð á jákvæðan aga, samþætt þemabundin verkefni og teymisvinnu.
  •  Staða umsjónarkennara á unglingastigi. Um er að ræða samkennslu í 8. – 10. bekk. Allar almennar kennslugreinar og áhersla er lögð á jákvæðan aga, samþætt þemabundin verkefni og teymisvinnu. Starfið er auglýst til eins árs.
  • Staða íþróttakennara. Um er að ræða kennslu í skólaíþróttum og sundi og þjálfun íþróttagreina í samstarfi við íþróttafélagið Geislann á Hólmavík.
  •  Staða stuðningsfulltrúa. Um er að ræða stuðning við nemanda með sérþarfir og eftirfylgni í grunnskóla- og tómstundastarfi.

Umsækjendur um kennarastöður þurfa að hafa réttindi til kennslu í grunnskóla.  Leitað er eftir einstaklingum með góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla af samkennslu árganga og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir eiginleikar. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð. Starfshlutfall 100%.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands

Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2019.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, sími 451 3430, netfang skolastjori@strandabyggd.is

 

Umsóknir með starfsferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á skolastjori@strandabyggd.is eða Grunnskólinn á Hólmavík, Skólabraut 20-22, 510 Hólmavík

 

 

 

Staða deildarstarfsmanns

Salbjörg Engilbertsdóttir | 14. mars 2019

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir starfsmanni á deild í 100% stöðu. Leitað er eftir leikskólakennara, uppeldismenntuðu fólki eða fólki sem hefur áhuga á að starfa með börnum. Vinnutíminn er 8:00-16:00. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

 

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugum starfsmanni sem hefur gaman af börnum, býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sveigjanleika og skipulagshæfni. Einnig eru áreiðanleiki og frumkvæði og sjálfstæði í starfi góður kostur.

 

 

Umsóknarfrestur er til 25. mars 2019.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir, leikskólastjóri, sími 451 3411,
netfang: leikskolastjori@strandabyggd.is

Umsóknir með starfsferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á leikskolastjori@strandabyggd.is eða leikskólann Lækjarbrekku, Brunngötu 2, 510 Hólmavík

 

 

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón