A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sumarstörf 2021

Salbjörg Engilbertsdóttir | 07. maí 2021

Strandabyggð óskar eftir því að ungmenni í Strandabyggð á aldrinum 17-20 ára, sem sjá fyrir sér að verða án atvinnu í sumar skrái sig Strandabyggð, það er að segja ef viðkomandi hefur áhuga á að koma í vinnu hjá Strandabyggð í sumar.

Við erum í sameiningu að kortleggja hversu stórt hlutfall ungmenna í Strandabyggð, sem eru í námi verður mögulega án atvinnu í sumar.


Þessi skráning er í tengslum við sumarstörf námsmanna sem stjórnvöld eru að setja af stað og er því mikilvægt að við höfum upplýsingar um fjölda sem er án atvinnu.

Skilyrði fyrir þátttöku í þessu átaki er að viðkomandi sé í námi núna á vorönn eða fari í nám í haust.

Við viljum ítreka að engin binding er við skráningu, eingöngu er verið að skoða stöðuna og tengja viðkomandi við okkur til að stytta biðtímann að geta hafið störf ef farið verður af stað með átaksverkefni.


Skráning fer fram hjá skrifstofu Strandabyggðar strandabyggd@strandabyggd.is fyrir 20. maí

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón