A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Spennandi störf í Strandabyggð

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 05. júlí 2017
Strandabyggð auglýsir störf stuðningsfulltrúa, tómstundaleiðbeinenda og starfsmanns íþróttamiðstöðvar. Um er að ræða lifandi og skemmtileg störf með börnum og unglingum. Störfin eru blönduð, starfshlutfall getur verið mismunandi á hverjum stað og fer eftir samkomulagi.
 
Gerð er krafa um færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæð skipulögð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt hugarfar. Reynsla af störfum með börnum og unglingum er æskileg. Þeir sem sinna sundlaugargæslu þurfa að standast hæfnispróf sbr. reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.​
Umsækjendur þurfa að skila sakavottorði.
 
Upplýsingar um störfin gefa Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri: sími 451 3430 og Birna Karen Bjarkadóttir forstöðumaður íþróttamiðstöðvar: sími 451 3560
 
Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda á netfangið:skolastjori@strandabyggd.is​ 
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2017
 

Laust starf

| 05. maí 2017
Starfsmaður óskast í búsetu hjá fatlaðri konu á Hólmavík frá 15. ágúst. Um er að ræða vaktavinnu. Laun samkvæmt kjarasamningi VerkVest. Um er að ræða krefjandi starf sem krefst þolinmæði og fagmennsku. Umsóknir berist til Maríu Játvarðardóttur félagsmálastjóra Höfðagötu 3 á Hólmavík sem einnig veitir nánari upplýsingar í síma 842-2511. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2017.

Spennandi tækifæri í Strandabyggð

| 27. apríl 2017
Strandabyggð auglýsir eftir öflugu starfsfólki til fjölbreyttra starfa í sveitarfélaginu. Íbúar í Strandabyggð eru rétt innan við 500 og Hólmavík er þéttbýlisstaður sveitarfélagsins. Atvinnulífið er fjölbreytt og skólastarf öflugt. Félagsstarf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og þar er hugað að því að allir aldurshópar fái notið sín til fullnustu. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar og menningarlíf er kraftmikið og fjörugt allt árið um kring....
Meira

Skrifstofustarf hjá Strandabyggð – laust til umsóknar

| 05. janúar 2017
« 1 af 2 »
Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar  starf á skrifstofu sveitarfélagsins. Um er að ræða fullt starf. Umsókn ásamt ferilskrá skal berast skrifstofu Strandabyggðar, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is  fyrir lok dags mánudaginn 23. janúar 2017.
Í starfinu felast meðal annars eftirfarandi verkefni:...
Meira

Laust starf á Leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 19. desember 2016

Skemmtilegt og gefandi starf

 

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf. Vinnutíminn er 8:00 – 16:00. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Skipulagshæfni og jákvæðni er mikilvægur kostur.

Nánari starfslýsingar á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411, einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is


Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra. Umsóknafrestur er til 6.janúar 2017. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur. 

Skemmtilegt og gefandi starf á Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 11. október 2016

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 60% starf. Vinnutíminn er 12:00-16:00 fjóra daga  vikunnar og 8:00 – 16:00 á miðvikudögum. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Skipulagshæfni og jákvæðni er mikilvægur kostur.

 

 

Nánari starfslýsingar á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411, einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is



Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra. Umsóknafrestur er til 21.okt. 2016. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur. 

Laust starf á leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 14. september 2016

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir starfsmanni í eldhús og ræstingu.

Um er að ræða 100% starf og þarf umsækjandi að geta hafið störf þann 1.nóv. næstkomandi. Í starfinu felst meðal annars að taka til fæði fyrir nemendur og starfsfólk, frágangur eftir matmálstíma, almenn ræsting á skólahúsnæði og afleysing inn á deild. Nánari starfslýsingu er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411 milli kl. 9:00 og 16:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is


Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3 eða til leikskólastjóra, ásamt ferilskrá og meðmælum fyrir 1.okt. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur. 

Starfsmenn óskast í verslun og veitingasölu í Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík

| 19. ágúst 2016

Um er að ræða framtíðarstarf í vaktavinnu og önnur afleysingarstörf.

Starfið er fjölbreytt í líflegu starfsumhverfi þar sem létt lund, þjónustulipurð, heiðarleiki, snyrtimennska og dugnaður skiptir máli.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af hliðstæðu starfi er æskileg
  • Metnaður fyrir starfi, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð skilyrði
  • Góð þjónustulund og færni í samskiptum

Verkefni

  • Afgreiðsla
  • Vörumóttaka og framsetning í verslun
  • Bakstur og framreiðsla
  • Samskipti við stjórnendur og starfsfólk verslunar
  • Önnur tilfallandi störf

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.  
Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst.

Nánari upplýsingar veitir Hrefna í síma 455-3104. Umsóknir skulu berast á skrifstofu kaupfélagsins eða í tölvupósti á viktoria@ksholm.is 

Starfsmaður óskast í heimaþjónustu í Strandabyggð

| 10. ágúst 2016

Starfsmaður óskast í heimaþjónustu í Strandabyggð frá 1. september. Um er að ræða heimaþjónustu hjá eldri borgurum og er starfið tæplega 50%, breytilegt eftir fjölda heimila hverju sinni. Laun samkvæmt kjarasamningi VerkVest.

Umsóknir berist til Maríu Játvarðardóttur, félagsmálastjóra Höfðagötu 3, 510 Hólmavík fyrir 20. ágúst.  Nánari upplýsingar í síma 842-2511.

Laust starf í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar Norðurfirði

Salbjörg Engilbertsdóttir | 11. júlí 2016
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón