A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laus störf í Skólaskjóli og félagsmiðstöðinni Ozon

| 06. júlí 2016

Tómstundafulltrúi Strandabyggðar auglýsir eftir starfsfólki í Skólaskjól og félagsmiðstöðina Ozon.

Skólaskjól - Um er að ræða tvö störf alla virka daga frá 13:30 til 16:30 eða jafnvel einhverja daga í viku. Starfsfólk þarf að geta hafið störf 15. ágúst. Í Skólaskjóli er í boði þjónusta fyrir börn 6 til 9 ára eftir skólatíma þar sem fjölbreytt tómstundastarf verður í boði.

Félagsmiðstöðin Ozon - Um er að ræða tvö störf öll þriðjudagskvöld frá 16:30 til 22:30. Starfsfólk þarf að geta hafið störf 16. ágúst. Félagsmiðstöðin Ozon býður upp á fjölbreytt tómstundastarf fyrir börn 10 til 16 ára.

Nánari upplýsingar gefur Íris Ósk Ingadóttir, tómstundafulltrúi Strandabyggðar í síma 846-0281 eða netfang tomstundafulltrui@strandabyggd.is.

Laus störf í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar

Salbjörg Engilbertsdóttir | 05. júlí 2016
« 1 af 2 »

Lausar eru til umsóknar stöður verslunarstjóra í matvöruverslun Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík og staða verslunarstjóra í pakkhúsi.  Hægt er að skoða auglýsingarnar í meðfylgjandi myndum.

Laus staða skrifstofumanns á Hólmavík-Sýslumaðurinn á Vestfjörðum

Salbjörg Engilbertsdóttir | 05. júlí 2016

Laus er til umsóknar staða skrifstofumanns í útibúi Sýslumannsins á Vestfjörðum á Hólmavík. Um er að ræða 50% starfshlutfall eftir hádegi.


Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi sem býr yfir góðri almennri tölvuþekkingu og íslenskukunnáttu. Nauðsynlegt er að umsækjandi sé þjónustulundaður og eigi gott með samskipti. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 25. júlí nk.

...
Meira

Laus störf á leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 28. júní 2016

Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir 100% stöðu deildarstjóra lausa til umsóknar. Leitað er eftir leikskólakennara, uppeldismenntuðu fólki eða fólki með reynslu af starfi með börnum. Vinnutíminn er 8:00-16:00. Starfsmaður þarf að geta hafið störf um miðjan ágúst 2016.

 

Einnig auglýsum við eftir fólki með reynslu af börnum í starf deildarstarfsmanns. Annars vegar í 100% starf  með vinnutímann 8:00-16:00 og hins vegar í 50% starf með vinnutímann 12:00-16:00. Starfsmaður þarf að geta hafið störf um miðjan ágúst 2016.

 

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sveigjanleika og skipulagshæfni. Einnig eru áreiðanleiki og frumkvæði góður kostur.

 

Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is 

Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra. Umsóknafrestur er til 4. júlí 2016. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.

 
Fyrri síða123567891011
12
Næsta síða
Síða 12 af 12
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón