A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laust starf aðalbókara Sýslumanns

Salbjörg Engilbertsdóttir | 18. ágúst 2023

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum


Laus er til umsóknar staða aðalbókara við embættið.

Um er að ræða starf til eins árs með möguleika á framlengingu að þeim tíma liðnum.
Starfshlutfall er 50% en möguleiki á hækkuðu starfshlutfalli fljótlega og er vinnutími að einhverju marki sveigjanlegur.
Æskileg starfstöð er á skrifstofu embættisins á Patreksfirði en einnig er möguleiki að sinna starfinu á skrifstofu embættisins á Hólmavík eða Ísafirði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um launakjör fer eftir gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst nk. Umsókn skal skilað í gegnum umsóknarkerfi Alfred.is og þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og því hvernig umsækjandi fellur að hæfnikröfum til starfans.

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Nánari upplýsingar um starfið veita Jónas B. Guðmundsson, sýslumaður, netfang jg@syslumenn.is og Helga Dóra Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, netfang hdk@syslumenn.is eða í síma 458 2400.


Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með almennu bókhaldi embættisins
Annast uppgjör og gerð rekstraráætlana
Frágangur reikninga og eftirfylgni á greiðslu þeirra
Önnur verkefni


Menntunar- og hæfniskröfur
Góð almenn menntun og reynsla af bókhaldsstörfum æskileg
Einhver þekking og reynsla af reikningshaldi og áætlanagerð
Reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
Þekking og kunnátta á helstu tölvukerfi
Jákvætt viðmót, góð samskiptahæfni og þjónustulund
Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð

Fríðindi í starfi

Starfshlutfall er 50% en möguleiki á hækkuðu starfshlutfalli fljótlega og er vinnutími að einhverju marki sveigjanlegur
Æskileg starfstöð er á skrifstofu embættisins á Patreksfirði en einnig er möguleiki að sinna starfinu á skrifstofu embættisins á Hólmavík eða Ísafirði.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um launakjör fer eftir gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttar-félags.

 

Laust starf stuðningsfulltrúa

Salbjörg Engilbertsdóttir | 17. ágúst 2023
Grunnskólinn á Hólmavík auglýsir starf stuðningsfulltrúa í grunnskóla og frístund.
Leitað er að einstaklingi til að vinna með nemanda eða nemendum og styðja og fylgja þeim eftir í skipulögðu starfi á fjölbreyttan og skapandi hátt.  

Grunnskólinn Hólmavík tilheyrir sameinuðum leik-, grunn- og tónskóla í Strandabyggð og starfar samkvæmt lögum og reglugerðum um grunnskóla og leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá grunnskóla og stefnu skólans. 
Uppeldisstefnan er jákvæður agi, lögð er áhersla á leiðsagnarnám og þemabundin verkefni.

Menntunar og hæfniskröfur:

• Góð íslenskukunnátta

• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum

• Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji

• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum

• Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum

• Reglusemi og samviskusemi

• Hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar.

Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2023 og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Upplýsingar veitir skólastjóri Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skolastjori@strandabyggd.is
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á netfang skolastjori@strandabyggd.is

Laust starf þroskaþjálfa/iðjuþjálfa við grunnskólann á Hólmavík-framlengt til 15.september

Salbjörg Engilbertsdóttir | 09. ágúst 2023

 

Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi óskast til starfa með nemendum og stoðþjónustu Grunnskólans á Hólmavík. Um er að ræða tímabundið starf skólaárið 2023-2024. Starfshlutfall 100%.

 

Grunnskólinn á Hólmavík er sameinaður tón-, leik. og grunnskóli með um 45 nemendur í grunnskóla og 20 nemendur í leikskóla. Áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, jákvæðan aga og þemabundin verkefni í lotum.

 

Helstu verkefni:

Að veita nemendum með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
Að halda utan um og stýra teymi einstakra nemenda í samráði við stjórnendur.
Að vinna að gerð einstaklingsnámskráa í samstarfi við sérkennara og fylgja þeim eftir.
Að mæta þörfum nemenda á heildstæðan og einstaklingsbundinn hátt til að auka félagsfærni, virkni og tilfinningaþroska.
Að veita faglega ráðgjöf til kennara og stuðningsaðila.
Að aðlaga og hanna námsumhverfi svo það henti fjölbreyttum nemendahópi.

Hæfni:

Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi.
Þekking og reynsla af starfi með börnum með sérþarfir.
Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
Þekking á PEERS og TEACCH er kostur.
Hreint sakavottorð.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands eða Iðjuþjálfafélags Íslands.

Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2023.

 

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, netfang skolastjori@strandabyggd.is

 

Umsóknir með starfsferilskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á skolastjori@strandabyggd.is

Laust starf í áhaldahúsi

Salbjörg Engilbertsdóttir | 27. júlí 2023
Laust er starf í Eignasjóði Strandabyggðar v. Sorpsamlags. Um er að ræða vinnu á sorpbíl og gámabíl, meiraprófs krafist ásamt lyftararéttinda (vinnuvélaréttindi). Starfsmaður þarf að geta byrjað strax.

Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst. Upplýsingar um skipulag og launakjör gefur Sigurður Marinó Þorvaldsson forstöðumaður 894-4806

Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu í Strandabyggð

| 24. maí 2023

Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu í Strandabyggð

Heimaþjónusta er margvísleg aðstoð við heimili, fjölskyldur og einstaklinga og tekur til eftirfarandi þátta:
 Aðstoð við heimilishald
 Félagslegur stuðningur
 Aðstoð við persónulega umhirðu sem ekki er í verkahring heimahjúkrunar
 Tilsjón og aðstoð vegna umönnunar barna og unglinga þegar um erfiðar fjölskylduaðstæður er að ræða sbr. 24.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002
 Heimsending matar
Leitast er við að koma til móts við þarfir hvers og eins.

Nánari upplýsingar veitir Soffía Guðmundsdóttir, félagsmálastjóri í síma 451-3510 eða á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is

Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2023. 

Umsóknir sendist á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík eða á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is 

 

Tónskólinn á Hólmavík auglýsir eftir tónlistarkennara

Salbjörg Engilbertsdóttir | 15. maí 2023

 

Tónskólinn á Hólmavík auglýsir eftir tónlistarkennara með deildarstjórn til að kenna á ýmis hljóðfæri auk undirleiks, kenna tónfræði, stjórna barnakór og rokkhljómsveit eldri nemenda og tónmennt á yngsta stigi.


Fullt starf 100% er í boði frá 1. ágúst 2023 en hlutfall deildarstjórnunar fer eftir stigum skóla.


Tónskólinn á Hólmavík er samrekinn Grunn-, leik- og tónskóli og er vel búinn hljóðfærum, staðsettur í Grunnskólanum á Hólmavík. Kennt hefur verið á eftirfarandi hljóðfæri: blokkflauta, þverflauta, píanó, gítar, bassi, ukulele, fiðla, trommur, trompet og saxófónn. Áhersla er lögð á fjölhæfni í hljóðfæraleik, samspil af ýmsu tagi, fjölbreytni í tónlist og framþróun í kennsluháttum. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og sveigjanleika í starfi


Helstu verkefni og ábyrgð.

Viðkomandi þarf að geta kennt nemendum grunnskólaaldri á fjölbreytt hljóðfæri. Einnig þarf viðkomandi að geta leikið undir með nemendum skólans. Kostur er ef viðkomandi getur kennt á mörg hljóðfæri og tónfræðigreinar, stjórnað barnakór og hljómsveit og kennt tónmennt.


Hæfniskröfur.

Háskólapróf í tónlist æskilegt eða tónlistarnám sem nýtist í starfi. Reynsla af kennslustörfum og meðleik æskileg

Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum. Frumkvæði í starfi. Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

Hreint sakavottorð


Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst n.k


Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags (FT eða FÍH).

Ferilskrá og kynningarbréf sendist í tölvupósti á netfangið: skolastjori(hja)strandabyggd.is

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri.

 

Laust starf í Strandabyggð

| 03. maí 2023

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps óskar eftir að ráða starfsmann til að hafa umsjón með atvinnuúrræðinu „Atvinna með stuðningi“ á Hólmavík í júní, júlí og ágúst.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí.

Umsóknir sendist til Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

Upplýsingar veitir Soffía í síma 451-3510, fyrirspurnir má einnig senda á netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is

Starfsfólk óskast í skammtímavistun á Reykhólum

| 07. mars 2023

Starfsfólk óskast í vaktavinnu í skammtímavistun hjá 16 ára stúlku á Reykhólum. Mjög skemmtilegt og krefjandi starf í fallegu og rólegu umhverfi.

Húsnæði á staðnum.

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2023.

Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

Sumarstarfsmenn óskast á Reykhólum

| 07. mars 2023

Reykhólahreppur óskar eftir að ráða tvo sumarstarfsmenn í starf á Reykhólum við að sinna stuðningsþjónustu hjá 16 ára stúlku, í júní, júlí og ágúst. Vinnutími væri mánudaga til föstudaga frá 9:00-16:00.

Mjög skemmtilegt og krefjandi starf sem gæti hentað vel fyrir vinkonur eða par. Reynsla af sambærilegu starfi æskileg.

Húsnæði á staðnum.

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2023.

Umsóknir sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík. Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is.

Sumarstörf hjá Strandabyggð 2023-umsóknarfrestur framlengdur til og með 28.mars

Salbjörg Engilbertsdóttir | 06. mars 2023

Strandabyggð auglýsir eftir umsækjendum fyrir afleysingar- og sumarstörf, athugið að sum störfin gætu hafist fljótlega. Í umsóknarskráningunni er einnig að finna umsókn um vinnuskóla fyrir ungt fólk 13-17 ára. Minnum á að umsóknarfrestur rennur út á miðnætti á þriðjudaginn 28.3.2023.

Íþróttamiðstöð, tjaldsvæði, vinnuskóli og sumarnámskeið
-Umsjónaraðili með Íþróttamiðstöð- og tjaldsvæði, afleysing fyrir íþrótta- og tómstundafulltrúa v. sumarleyfis
-Íþróttamiðstöð og tjaldsvæði. Sumarstarfsmenn í sundlaug og tjaldsvæði. Starfsmenn þurfa að ná kröfum sundlaugarvarða og hafa náð 18 ára aldri. Nánari upplýsingar um starfið hér
-Sumarnámskeið – Umsjón með 2-3ja vikna námskeiði í júní, nánari lýsing hér
-Vinnuskóli og umhverfisfegrun – Umsjón með vinnuskóla, stærsti hluti starfs í júní, nánari upplýsingar hér

Eignasvið, áhaldahús og Sorpsamlag
-Áhaldahús. Um er að ræða almenn verkamannastörf í Áhaldahúsi við slátt og viðhald eigna. Nánari upplýsingar hér
-Höfn. hafnarvigtun og skráningu afla og fl. vigtarréttinda krafist, almenn verkamannastörf
-Sorpsamlag. Um er að ræða vinnu á sorpbíl og gámabíl meiraprófs krafist ásamt lyftararéttindum (vinnuvélaréttindi)


Velferðarþjónusta
-Umsjón starfsmanna í atvinnu með stuðningi. Um er að ræða 1 stöðugildi hjá Félagsþjónustu frá byrjun júní fram í miðjan ágúst
-Liðveisla barna. Hlutastarf hjá Félagsþjónustu, nánari upplýsingar hér
-Heimaþjónusta. Hlutastarf hjá Félagsþjónustu. Nánari upplýsingar hér


Fræðslustofnanir
-Leikskóli. Um er að ræða afleysingarstörf á leikskóla frá maí og fram ágúst. Leikskóli er lokaður 27.júní-8. ágúst


Stjórnsýsla
-Skrifstofa afleysing. Um er að ræða afleysingu á skrifstofu með möguleika á framlengingu starfs, æskilegt að starf hefjist sem fyrst. Hlutastarf
-Skjalavarsla átaksverkefni. Um er að ræða skönnun skjala frá stofnunum og vistun í skjalakerfi, sveigjanlegur vinnutími. Hlutastarf
Hægt er að sameina bæði störfin í eitt fullt starf eða sækja um minna hlutfall

Umsóknarfrestur er til miðnættis 28. mars 2023 og sótt er um (apply here) hér gegnum google forms eða á eyðublöðum sem finna má hér


Ensk útgáfa:

Strandabyggð Municipality, announces the following vacancies:

Sports-center, camping site, summer school and children summer courses.
• We seek a person to manage the sports-center and camping site, in the absence of the Sports- and Recreation Manager of Strandabyggð
• We seek summer assistance at the sport-center and camping site. All applicants must be 18 of age and have passed the Swimming pool guards tests
• Children summer courses. We seek a person to supervise and control the summer courses, run by the municipality during 2–3-week courses in June
• Summer school and environmental projects. This job is scheduled for June.


Municipality Property Center
- Strandabyggð is offering a position as a general worker at the Municipality Property Center
- Tasks will include, but are not limited to; general work, gardening, property repair, catch registration at the harbor (special licenses required) and garbage and waist collection, sorting and packing (extended driving licenses and others required).


Social services
- Various services required at the Strandir, Reykhólar Social Service Center


Educational Institutions
- Kindergarten: Temporary position from May – August. The kindergarten is closed from June 27th to August 8th


Municipality office
- Main office. Temporarily positon as general office clerk with possibility of extention. This position is open now
- Filing and sorting. This positon requires scanning of documents, filing in the Municipality filing system. Flexible hours. Part time position.
Both positions can, given all creitera are met, be combined for the same person.

 

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón