A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Sumarstörf hjá Strandabyggð 2022 - Uppfærð frétt, frestur framlengdur til og með 10.apríl

Salbjörg Engilbertsdóttir | 17. mars 2022


Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir eftir starfsmönnum í sumarstöf hjá stofnunum sveitarfélagsins sumarið 2022. Um er að ræða eftirtalin störf við þessar deildir:

Strandabyggð is open for applications for summer jobs in the municipality.

-Íþróttamiðstöð Strandabyggðar - Sportcenter and campsite

-Áhaldahús Strandabyggðar - Maintenance team

-Umsjónarmaður vinnuskóla Strandabyggðar og umhverfisverkefnum - Work school leader and environmental projects
-Umsjón sumarnámskeiða/skapandi sumarstarfa

-Leikskóli - Ath! lokað er á leikskóla í 5 vikur / Kindergarden (closed for 5 weeks during summer)
-Félagsþjónusta - Liðveisla með fötluðum börnum /Social serviced - assistance with children with special needs
-Félagsþjónusta - Liðveisla í atvinnu með stuðningi / Social services - Employment with assistance

-Félagsþjónusta - heimaþjónusta / Social services - home assistance
-Vinnuskóli Strandabyggðar 13-17 ára börn í Strandabyggð ýmis fjölbreytt störf- Work school for children

Information/Upplýsingar um störfin má nálgast hér. Umsóknarfrestur er til  miðnættis 10. apríl 2022 og umsóknum verður svarað í páskavikunni.

Umsóknum skal skilað í gegnum google forms á þessari slóð hér (apply via google forms) en eyðublað sem hægt er að prenta út og fylla út í er birt hér. Umsóknum á pappír skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Hafnarbraut 25 eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is.


Á umsókn skal koma skýrt fram um hvaða starf er sótt. Ef sótt er um fleiri en eitt starf skal koma fram hvaða starf er fyrsti valkostur og hvað er til vara. Jafnframt skal taka fram ef viðkomandi getur ekki unnið allt sumarið og þá hvenær starfsmaðurinn þarf frí.  Further information at the office at Hafnarbraut 25, 451-3510 or by email on strandabyggd@strandabyggd.is


Athugið að Strandabyggð er tóbaks- og vímuefnalaus vinnustaður og athugið að þau störf sem krefjast þess að unnið sé með börnum og ungmennum er krafa um hreint sakavottorð.  We are tobacco and drugfree workplace and jobs with children will require clean criminal record.

 

 

Laus staða starfsmanns við félagsmiðstöðina Ozon

Salbjörg Engilbertsdóttir | 27. janúar 2022

 

Laus er 10% staða starfsmanns í félagsmiðstöðinni Ozon í Strandabyggð. Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi kröfur:

  • Brennandi áhugi á félagsstarfi barna og unglinga
  • Skipulagshæfni og samskiptahæfni
  • Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2022.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Salbjörg Engilbertsdóttir skrifstofustjóri s.4513510 og á netfanginu salbjorg@strandabyggd.is

 

Umsóknum með starfsferilsskrá og afrit prófskírteina þar sem við á ásamt upplýsingum um meðmælendur á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is eða á Strandabyggð Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

Starfsfólk óskast í skammtímavistun á Reykhólum

Soffía Guðrún Guðmundsdóttir | 21. desember 2021

Starfsfólk óskast í skammtímavistun á Reykhólum

Verkefnastjóri og starfsfólk óskast í vaktavinnu í skammtímavistun hjá stúlku á Reykhólum þar sem unnið verður aðra hverja viku. Mjög skemmtilegt og krefjandi starf í fallegu og rólegu umhverfi.
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2022.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.
Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

Íþrótta- og tómstundafulltrúi - nýtt starf

Salbjörg Engilbertsdóttir | 10. desember 2021

 

Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf íþrótta- og tómstundafulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir skapandi og skipulagðan einstakling með forystuhæfileika og unun af samskiptum, jákvætt viðhorf og metnað. Viðkomandi þarf að vera hvetjandi og góð fyrirmynd. Um fullt starf er að ræða.

Um er að ræða nýtt og spennandi starf við að þróa og stýra málaflokkum íþrótta og tómstunda, forvörnum og lýðheilsuverkefnum á vegum Strandabyggðar. Viðkomandi leiðir stefnumörkun um verkefni sviðsins með fagnefndum og sveitarstjórn.

 

Í starfinu felst fagleg og rekstrarleg ábyrgð á starfsemi Íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis. Einnig á ungmennastarfi á vegum sveitarfélagsins, Ozon félagsmiðstöð ungmenna og Ungmennahúsi, og skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi sem sveitarfélagið kemur að.

 

Íþrótta- og tómstundafulltrúi er starfsmaður þeirra nefnda sem starfssviðinu tilheyra og hefur umsjón eða aðkomu að ýmsum viðburðum. Starfið útheimtir mikil og góð samskipti við aðra stjórnendur og stofnanir í sveitarfélaginu og auk þess félagasamtök á svæðinu.

 
Óskað verður eftir heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.

Helstu verkefni og ábyrgð:

 

  • Að stýra málaflokkum íþrótta og tómstundastarfs, forvörnum og lýðheilsuverkefnum á vegum Strandabyggðar, vinna að umbótum og uppbyggingu
  • Fagleg og rekstrarleg ábyrgð á starfsemi Íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis. Einnig fagleg og rekstrarleg ábyrgð á félagsmiðstöðinni Ozon, Ungmennahúsi og skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi sem sveitarfélagið kemur að. Mannauðsmál og skipulag opnunartíma falla þar undir
  • Verkefnastjórnun við hátíðahöld og viðburði á vegum Strandabyggðar
  • Verkefnavinna og stefnumótun á sviði tómstunda-, íþrótta- og menningarmála með fagnefndum og sveitarstjórn
  • Viðkomandi leiðir samstarf sveitarfélagsins við félagasamtök og vinnur sérstaklega að nýsköpun og stuðningi við þá hópa sem hafa lítið framboð við hæfi
  • Viðkomandi er starfsmaður Tómstunda-, íþrótta og menningarnefnd sveitarfélagsins, hefur umsjón með Ungmennaráði Strandabyggðar og sinnir samvinnu við nágrannasveitarfélög og á landsvísu

 

Æskileg menntun, færni og eiginleikar

  • Háskólapróf á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, í kennslu eða skyldum greinum, sem nýtast í starfi
  • Farsæl reynsla af íþrótta- og tómstundastarfi, einnig reynsla af félagsstörfum með börnum og ungmennum
  • Reynsla af rekstri, stjórnun og stefnumótun, einnig sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, metnaður, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að eiga uppbyggileg samskipti við viðkvæma hópa er skilyrði
  • Geta til að tjá sig, í töluðu og rituðu máli er skilyrði

 

Umsóknarfrestur er til 30. desember 2021.

Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Strandabyggðar, s. 451-3510. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá, afriti prófskírteina og upplýsingum um meðmælendur sendist til Strandabyggðar á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is eða til skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

 

Laus staða á leikskólanum Lækjarbrekku

Salbjörg Engilbertsdóttir | 10. desember 2021


Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir starfsmanni í 100% stöðu. Leitað er eftir leikskólakennara, uppeldismenntuðu fólki eða fólki með reynslu af starfi með börnum. Vinnutíminn er 8:00-16:00. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 3. janúar 2022.

Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugum starfsmanni sem hefur gaman af börnum, býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, sveigjanleika og skipulagshæfni. Einnig eru áreiðanleiki og frumkvæði góður kostur. Óskað verður eftir heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að starfa sem leikskólakennari.
  • Góð samskiptahæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. 

Umsóknarfrestur er til 20. desember 2021.

Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir skólastjóri 451-3430

netfang: skolastjori@strandabyggd.is

Umsóknir með starfsferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á skolastjori@strandabyggd.is

Iðjuþjálfi óskast í 70% starf hjá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

Soffía Guðrún Guðmundsdóttir | 24. september 2021

Iðjuþjálfi óskast  í 70% starf hjá Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps

 

Umsóknarfrestur er til og með 29. september.

 

Ráðið verður í starfið af atvinnuleysisskrá en um starf með ráðningarstyrk er að ræða skv. reglugerð 918/2020 um vinnumarkaðsúrræði.

 

Umsóknir sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

 

Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu í Strandabyggð

Soffía Guðrún Guðmundsdóttir | 13. september 2021

Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu í Strandabyggð

 

Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu í Strandabyggð

Umsóknarfrestur er til og með 1. október.

Laun eru samkvæmt taxta Verk-Vest

Umsóknir sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík.

Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir og umsóknir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

Sumarstörf 2021

Salbjörg Engilbertsdóttir | 07. maí 2021

Strandabyggð óskar eftir því að ungmenni í Strandabyggð á aldrinum 17-20 ára, sem sjá fyrir sér að verða án atvinnu í sumar skrái sig Strandabyggð, það er að segja ef viðkomandi hefur áhuga á að koma í vinnu hjá Strandabyggð í sumar.

Við erum í sameiningu að kortleggja hversu stórt hlutfall ungmenna í Strandabyggð, sem eru í námi verður mögulega án atvinnu í sumar.


Þessi skráning er í tengslum við sumarstörf námsmanna sem stjórnvöld eru að setja af stað og er því mikilvægt að við höfum upplýsingar um fjölda sem er án atvinnu.

Skilyrði fyrir þátttöku í þessu átaki er að viðkomandi sé í námi núna á vorönn eða fari í nám í haust.

Við viljum ítreka að engin binding er við skráningu, eingöngu er verið að skoða stöðuna og tengja viðkomandi við okkur til að stytta biðtímann að geta hafið störf ef farið verður af stað með átaksverkefni.


Skráning fer fram hjá skrifstofu Strandabyggðar strandabyggd@strandabyggd.is fyrir 20. maí

Lausar stöður.

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir | 06. maí 2021


Grunnskólinn á Hólmavík    
                
           

Lausar stöður skólaárið  2021-2022

  • Staða umsjónarkennara á unglingastigi 100%. Um er að ræða samkennslu í 7. – 10. bekk. Almennar kennslugreinar.
  • Staða kennara á yngsta stigi 70%. Um er að ræða samkennslu í 1. – 3. bekk. Almennar kennslugreinar.
  • Staða íþróttakennara 100%. Um er að ræða kennslu í skólaíþróttum og sundi og þjálfun íþróttagreina í samstarfi við íþróttafélagið Geislann á Hólmavík.
  • Staða stuðningsfulltrúa 100%. Um er að ræða stuðning og þjálfun við nemanda og eftirfylgni í grunnskóla og frístund.

 

Skólinn er sameinaður leik-, grunn,- og tónskóli. Kennarar í íþróttum og á yngsta stigi kenna bæði á leik- og grunnskólastigi.

Umsækjendur um kennarastöður þurfa að hafa kennsluréttindi í grunnskóla.  

Leitað er eftir einstaklingum sem hafa góða skipulagshæfileika eru jákvæðir og hafa áhuga á samstarfi í skapandi umhverfi og hafa til að bera mikla hæfni í mannlegum samskiptum.

Áhersla er lögð á jákvæðan aga, samþætt þemabundin verkefni og fjölbreytta kennsluhætti.  

Reynsla af samkennslu árganga, og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvæg.

Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands sé um kennarastöður að ræða en annars viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 15. maí 2021.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir, skólastjóri, sími 451 3430, netfang skolastjori@strandabyggd.is

 

Umsóknir með ferilsskrá og afriti prófskírteina ásamt upplýsingum um meðmælendur sendist á skolastjori@strandabyggd.is

Sumarstarfsmenn óskast á Reykhólum

| 17. mars 2021


Reykhólahreppur óskar eftir að ráða tvo sumarstarfmenn í 75-100% starf á Reykhólum við að sinna stuðningsþjónustu hjá 14 ára stúlku, í júní, júlí og ágúst. Vinnutími væri mánudaga til föstudaga frá 9:00-15:00.

Mjög skemmtilegt og krefjandi starf sem gæti hentað vel fyrir vinkonur eða par.

Möguleiki er á 100% starfi innan hreppsins og hjálp við að finna hentugt húsnæði ef starfsmenn óska þess.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars.

Laun eru samkvæmt taxta Verk-Vest.

Umsóknir sendist Soffíu Guðmundsdóttur, félagsmálastjóra, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík. Upplýsingar eru veittar í síma 451-3510 og fyrirspurnir má einnig senda á felagsmalastjori@strandabyggd.is

 

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón