A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Laus störf í íþrótta- og tómstundasviði

Salbjörg Engilbertsdóttir | 21. september 2022


Félagsmiðstöðin Ozon auglýsir eftir frístundaleiðbeinanda.
Ozon youth center is looking for youth workers - please be in touch if you are interested.

Markmið félagsmiðstöðva er að þjálfa félags- og samskiptafærni barna og unglinga í gengum leik og starf. Markhópur félagsmiðstöðva er börn og unglingar á aldrinum 10-16 ára.

Frístundaleiðbeinandi vinnur faglegt starf með börnum og unglingum og skipuleggur hópastarf og verkefni tengdum menningar-, félags- og forvarnarstarfi félagsmiðstöðvarinnar. Starfað er í anda lýðræðis á starfsstaðnum og markvisst er unnið að því að auka sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra sem taka þátt í starfinu. 

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag og umsjón með hópum, verkefnum og viðburðum í menningar-, félags- og tómstundastarfi barna og ungmenna í samráði við tómstundafulltrúa. 
  • Leiðbeinir börnum í faglegu frístundastarfi sem mætir þeirra þörfum hverju sinni.
  • Vinnur í anda lýðræðis og eykur sjálfstæði, ábyrgð og virkni barna og ungmenna markvisst í starfinu.
  • Vinnur samkvæmt 1. og 2. stigs forvörnum í öllu starfi félagsmiðstöðvarinnar.
  • Sinnir öðrum þeim verkefnum sem honum eru falin og falla undir starfssviðið.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum er æskileg.
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki.
  • Áhugi á starfi með börnum og unglingum og framúrskarandi samskiptahæfni.
  • Metnaður í starfi og hæfni til að vinna í hóp
  • Sjálfstæði, frumkvæði, metnaður og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

Um er að ræða 10-20% hlutastarf síðdegis eða á kvöldin. Starfið hentar vel sem aukavinna með námi eða öðru starfi.
____________________________________________________________________________________________________________

Íþróttamiðstöðin auglýsir eftir starsfólki í hlutastörf og afleysingar. 
Sportcenter is looking for workers - please be in touch if you are interested.

Um er að ræða lifandi og skemmtilegt starf sem felast meðal annars í afgreiðslu, baðvörslu, sundlaugarvörslu, þrifum, umsjón með tjaldstæði og öðrum tilfallandi verkefnum.  Unnið er á vöktum. Gerð er krafa um jákvæðni og ríka þjónustulund, stundvísi, dugnað, sjálfstæð vinnubrögð og kunnáttu í erlendum tungumálum. Í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum kemur fram að starfsmenn sem sinna laugargæslu skuli hafa náð 18 ára aldri og standast hæfnispróf sundlaugarvarða.
___________________________________________________________________________________________________________

Launakjör eru skv. kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga við Kjöl eða Verk vest.

Umsóknafrestur er til og með 28. september og æskilegt að umsækjandi geti byrjað sem fyrst.

Umsóknir skulu sendar á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Öll kyn eru hvött til að sækja um.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón