A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Rýming gáma á Tanganum

Þorgeir Pálsson | 30. maí 2024

Kæru gámaeigendur,

Í ljósi endurskoðunar aðalskipulags Strandabyggðar og fyrri umræðu um gámana á Tanganum, tilkynnist hér með að sveitarfélagið vill ganga í það verk að rýma Tangann nú í sumar.  Þeir eigendur gáma sem ekki þurfa rafmagn, eru því vinsamlegast beðnir að undurbúa tæmingu og rýmingu sinna gáma sem allra fyrst, í samráði við starfsmenn Áhaldahúss.  Um er að ræða annars vegar að koma heillegum gámum fyrir á gámasvæði sveitarfélagsins, gegn leigusamningi og hins vegar förgun ónýtra gáma.

Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti

Límmiðar á bíla, hreinsunarátak

Þorgeir Pálsson | 29. maí 2024
Kæru íbúar Strandabyggðar,

Fulltrúar Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða voru hér á ferð í dag og límdu miða á nokkra númerslausa bíla og vinnutæki.  Það er hægt að gera gott úr öllum þessum málum, ef eigendur bregðast hratt og vel við.

Við hvetjum hlutaðeigandi til að sinna þessari ábendingu Heilbrigðiseftirlitsins og stuðla þannig að fallegra umhverfi hér á Hólmavík.

Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti

Íþrótta- og frístundastyrkir barna og ungmenna 2024

Heiðrún Harðardóttir | 28. maí 2024
Strandabyggð veitir foreldrum/forráðamönnum barna og ungmenna í Strandabyggð á aldrinum 6-18 ára styrki vegna íþrótta- og frístundaiðkunnar. 

Upplýsingar um íþrótta- og frístundastyrk má finna hér.

Umsóknir vegna æfinga- og frístundagjalda frá 1. september 2023 til 31. ágúst 2024 þurfa að berast í síðasta lagi 15. september ár hvert til skrifstofu Strandabyggðar eða á strandabyggd@strandabyggd.is.

Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050 - Skipulagslýsing og opnir fundir

Heiðrún Harðardóttir | 27. maí 2024

Hafin er vinna að tillögu að svæðisskipulagi fyrir Vestfirði með aðild allra sveitarfélaganna átta á Vestfjörðum.

Svæðisskipulag mun marka meginstefnu og framtíðarsýn í sameiginlegum hagsmunamálum sveitarfélaganna á Vestfjörðum. Það á að draga fram þætti sem efla samfélagið á Vestfjörðum með frumkvæði, þekkingu og samvinnu að leiðarljósi.


Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða hefur hafið kynningu á skipulagslýsingu sem er verkefnislýsing fyrir vinnslu Svæðisskipulags Vestfjarða 2025-2050, sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Verkefnislýsingin gerir grein fyrir tildrögum og forsendum skipulagsvinnunar, viðfangsefnum skipulagstillögu og umhverfismati hennar ásamt áföngum skipulagsvinnunar og samráði.

Skipulagslýsingin er aðgengileg í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á slóðinni: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/603

Opið er fyrir athugasemdir um skipulagslýsinguna til 26. júní 2024 og er hægt að koma umsögnum á framfæri í skipulagsgáttinni.


Jafnframt er vakin athygli á opnum íbúafundum í þessari viku þar sem þátttakendum gefst kostur á að koma að mótun svæðisskipulags.  Íbúafundirnir verða milli kl. 16:30 og 18:30 á eftirtöldum stöðum:

27. maí – Félagsheimilinu á Patreksfirði.

29. maí – Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

30. maí – Félagsheimilinu á Hólmavík.

30. maí – Reykhólaskóla á Reykhólum.

 
Svæðisskipulagsnefnd Vestfjarða.

 

Skemmtiferðaskip í Steingrímsfirði

Þorgeir Pálsson | 24. maí 2024
« 1 af 3 »
Kæru íbúar Strandabyggðar,

Eins og íbúar hafa sjálfsagt orðið varir við, hafa skemmtiferðaskip heimsótt okkur undanfarið og er það mjög ánægjulegt.  Við fögnum þessari þróun þar sem koma skemmtiferðaskipa skapar oft verulegar tekjur fyrir þjónustuaðila og einnig fyrir sveitarfélagið. Skip sem koma inn í lögsögu hafnarinnar, greiða hafnargjöld og einnig er greitt fyrir þá þjónustu sem þau fá.  Þessar tekjur getur sveitarfélagið nýtt til að efla þjónustu við skipin og byggja upp nauðsynlega aðstöðu.

Sauðfjársetrið á hrós skilið fyrir þeirra vinnu við að fá hingað skemmtiferðaskip og við vonum að þessi þróun haldi áfram.  Vel gert!

Koma skemmtiferðaskipa hingað lífgar upp á tilveruna.  Það er alltaf gaman að sjá stór skip og það er hressandi að sjá alla ferðamennina sem ganga um bæinn okkar í kjölfarið.  Fögnum þeim, bjóðum góðan daginn og tökum þessari mikilvægu tilbreytingu í tilverunni, fagnandi.

Áfram Strandabyggð!

Kveðja
Þorgeir Pálsson
oddviti
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón