A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Strandabyggð boðið að vera með í Útsvari í vetur

| 19. ágúst 2015
Strandabyggð hefur verið boðið að vera með í þættinum Útsvari sem Rúv er að fara af stað með í vetrardagskrá sinni. Við höfum þegið þetta góða boð og nú er unnið að því að skipa öflugt lið til þátttökunnar. Sveitarfélögin sem keppa í vetur í Útsvari eru 24 talsins eins og hefur verið síðustu ár....
Meira

Íbúafundur um Dreifnám FNV á Hólmavík

| 19. ágúst 2015
Dreifnám FNV á Hólmavík boðar til opins íbúafundar fimmtudaginn 20. ágúst nk. klukkan 17:00 í Hnyðju. Rætt verður um námið, framtíð þess og tækifæri. Afar brýnt er að hlúa að þessum málum og því er mikilvægt að á fundinn mæti nemendur, aðstandendur og aðrir sem láta sér menntamál og framtíð Strandabyggðar varða....
Meira

Fundarboð - Sveitarstjórnarfundur 1238 í Strandabyggð

| 14. ágúst 2015

Fundur nr. 1238 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn í þriðjudaginn 18. ágúst 2015, kl. 16.00 í Hnyðju, Höfðagötu 3 á Hólmavík. Fundardagskrá er svohljóðandi:

...
Meira

Íslandsmót í hrútadómum sunnudaginn 16. ágúst

| 07. ágúst 2015
« 1 af 2 »
Mikið hefur verið um að vera á Sauðfjársetrinu á Ströndum í sumar, margvíslegar uppákomur og viðburðir. Framundan er stærsta samkoma ársins, Íslandsmeistaramót í hrútadómum, sem verður haldið sunnudaginn 16. ágúst og hefst kl. 14:00 í Sævangi við Steingrímsfjörð. Jafnan er góð þátttaka í hrútadómunum, bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra hrútaþuklara. Að venju verður kjötsúpa á boðstólum og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn....
Meira

Utan við sagnheim manna, - Turtle- Kvikmyndahátíðin á Hólmavík

| 07. ágúst 2015
Undanfarin ár hafa ungir þýskir kvikmyndagerðarmenn dvalist sumarlangt á Ströndum við nám og tökur. Turtle –hátíðin er þeirra leið til að gefa öllum tækifæri til sjá sérvaldar kvikmyndir og launa þannig margan greiðann. Þetta eru stórbrotnar, viðurkenndar og áhrifamiklar kvikmyndir sem taka á nútímanum. Bióferð er þó ekki bara myndin; í kvikmyndahúsi ríkir stemmning sem skapast af samstilltum geðsveiflum og samkomuanda. Kvikmyndahátíðin Turtle verður haldin í óvenjulegu húsnæði og einstakt andrúmsloft skapað í hlöðu, bókasafni, í iðnaðarhúsnæði og borðstofu í heimahúsi. Sýningar verða fyrir stóra hópa og smáa, allt niður í tvo áhorfendur í samræmi við verkin og stemninguna....
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón