A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Blásið til sóknar meðal ferðaþjóna á Ströndum, Reykhólahreppi og Dalabyggð

| 06. apríl 2017

Ferðafulltrúi Dala, Bjarnheiður Jóhannessdóttir ferdamal(hjá)dalir.is  og María Maack (mmaaria (hja) atvest.is hafa ákveðið að blása til samtaka og sóknar meðal ferðaþjóna á Ströndum og í Reykhólahreppi og Dölum.  Hér er margt gott og skemmtilegt sem hentar til að draga að fleira ferðafólk. Þess vegna þurfum við að bindast samtökum, skipuleggja okkur betur, verða sýnilegri og vinna í góðum afþreyingarmöguleikum. Á næstunni munum við kalla til fundar til að ræða samvinnu og tengsl okkar á milli, kanna áhuga á námskeiði í rekstri, ræða þróun afþreyingar og markaðssetningu hennar, betri merkingar, haust- og vetrarferðamennsku sem og annað sem þið leggið til. Þeir sem vilja vera með í þessu samstarfi ættu að hafa samband við okkur. Áður störfuðu ferðasamtök Dala og Reykhólahrepps en nú verður svæðið og samhengið víkkað út.

Svæðið sem um ræðir og liggur á mótum meginlands og Vestfjarðakjálkans hefur verið nefnd Skessubyggð í samræmi við árangur tröllkerlinganna sem vildu skilja þarna á milli og grófu frá austri um Birtufjörð og úr vestri um Gilsfjörð. Þar mætast sveitarfélögin þrjú sem við ættum að tengja saman.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón