Fara í efni

Gjaldskrár

Ýmis gjöld og útleiga eigna

Þjónusta Verð
Ljósritun/prentun A3 70
Ljósritun/prentun A3 báðu megin 125
Ljósritun/prentun í lit A3 160
Ljósritun/prentun í lit A3 b.m 240
Ljósritun/prentun A4 40
Ljósritun/prentun A4 báðu megin 50
Ljósritun/prentun A4 í lit 75
Ljósritun/prentun A4 í lit báðu megin 125
Ljósritun/prentun A5 20
Ljósritun/prentun A5 báðu megin 26
Ljósritun/prentun A5 lit 35
Ljósritun/prentun A5 lit báðu megin 60
Árgjald 5.400
Leiga á fundarherbergi í Hnyðju pr. klst 885
Leiga á sal í Hnyðju pr. klst. 6.725
Leiga á Hnyðju í einn dag 40.730
Leiga f. markað eða álíka þjónustu 25.000
Leiga á skrifstofuaðstöðu m. borði og stól pr. sólarhring 1.615
Leiga á skrifstofuaðstöðu mánaðarleiga gr. pr. m2 2.440

Leiguverð hækkar mánaðarlega skv. byggingarvísitölu

Leiga á Flugstöð pr. klst. 6.720
Leiga á Flugstöð í einn dag 40.730
Íbúðir Verð
Miðtún 17, 71 m2 118.920
Lækjartún 16, 61,5 m2 96.140
Lækjartún 18, 87,8 m2 137.250
Lækjartún 20, 61,5 m2 96.140

Leiguverð hækkar mánaðarlega skv. byggingarvísitölu

Anddyri v. minni fundar eða markaðs 24.730
Salur f. markað eða álíka þjónustu með eldhúsaðstöðu 42.730
Húsið v. minni veislu <100, fermingar eða erfidrykkju allt að 1,5 sólarhringur 50.170
Húsið v. stærri veislu >100, brúðkaup eða afmæli allt að 2 sólarhringir 75.175
Húsið v. þorrablóts eða góufagnaðar verð á hvern seldan miða 400
Húsið v. ráðstefnu, ættarmóts eða árshátíðar 2 dagar 169.425
Húsið v. dansleiks, ráðstefnu, ættarmóts eða árshátíðar 1 dagur 98.890
Leiga á eldhúsi v. matvælaframleiðslu pr. klst fyrstu 50 tímar 745
Pr. klst yfir 50 tíma 1.480
Uppstilling í sal og samantekt pr. klst 9.170
Leiksýningar eða minni tónleikar 25.845
Leiksýningar eða tónleikar fleiri en 100 manns 50.095
Húsið allt v. fjáröflunarviðburða skóla eða félaga í heimabyggð 0
Svefnpokapláss f. skólahópa, íþróttafélög og þ.h. pr. mann - Ath. ekki dýnur 805
Dúkaleiga 345
Leiga á borðbúnaði úr húsi: staup, diskar og kaffibollar pr. stk. 24
Leiga á borðbúnaði úr húsi: hnífar, gafflar, skeiðar, teskeiðar pr. stk. 8
Vatnskönnur pr. stk. 30
Kaffivél 1.600
Kaffikönnur pr. stk. 405
Borð pr. stk. 1.600
Stólar pr. stk. 405
Skjávarpi pr. sólarhring 10.390
Hljóðkerfi pr. sólarhring 15-60.000

Leiga á húsi v. ráðstefnu, ættarmóts eða árshátíðar 2 dagar - Staðfestingargjald til greiðslu innan 3ja mánaða kr. 40.000

Leiga á húsi v. dansleiks, ráðstefnu, ættarmóts eða árshátíðar 1 dagur - Staðfestingargjald til greiðslu innan 3ja mánaðar kr. 23.000

Íþróttamiðstöð Strandabyggðar

Þjónusta Verð
Gestir 14 ára og eldri 1.870
Öryrkjar og ellilífeyrisþegar 1.135
Tenging við rafmagn 1.550
Afnot af þvottavél 990
Afnot af þurrkara 990

Tjaldsvæðagjöld eru greidd í Íþróttamiðstöð. Ef dvalið er lengur en 3 nætur í einu þá er 4. hver nótt frí. Afnot af sturtum eru í íþróttamiðstöðinni og greiðist samkvæmt gjaldskrá. Á hverja gistinótt bætist við gistináttaskattur á hverja gistieiningu eins og hann er hverju sinni. 

Service Price in ISK
Guests 14 years and older 1.870
Connection for electricity 1.550
Use of washing machine 990
Use of dryer 990

Payment for the campsite is due inside the Sportscenter. If staying for a longer period of time, your fourth night will be free of charge. 

Fullorðnir Verð Börn Verð
Stakur tími 1.275 Stakur tími 475
10 tíma kort 7.630 10 tíma kort 2.655
30 tíma kort 19.105 30 tíma kort 6.685
Árskort 50.960 Árskort 50.960
Annað Verð
Afmælisveislur 640 pr. barn
Leiga á handklæði/sundfötum 755
Kaffi 375

Börn í afmæli þurfa að vera í umsjón fullorðins einstaklings sem greiðir líka fyrir sig í salinn

Fullorðnir Verð Börn 13-17 ára, örorku- og ellilífeyrisþegar Verð
Stakur tími 1.395 Stakur tími 475
10 tíma kort 9.680 10 tíma kort 3.380
30 tíma kort 26.315 30 tíma kort 9.210
Árskort 50.960 Árskort 17.955
Allur íþróttasalurinn tímagjald 8.375 Börn 6-12 ára í sal í leik 475
Allur íþróttasalurinn einn dagur 33.495 Afmælisveislur kr. per barn 640

Börn yngri en 10 ára 1. júní þurfa að vera í umsjón einstaklings 15 ára eða eldri sem greiðir fyrir sig í salinn.

Börn í afmælisveislu þurfa að vera í umsjón fullorðins einstaklings sem greiðir líka fyrir sig í salinn.

Fullorðnir - samsettur tími þrek og sund Verð Börn, örorku- og ellilífeyrisþegar Verð
Stakur tími 1.990 Stakur tími 805
10 tímar 16.670 10 tíma 5.375
30 tímar 32.210 30 tímar 32.210
Árskort 66.240 Árskort 23.340

Sameinaður Grunn-, tón- og leikskóli

Þjónusta Verð
Tónskólagjald eldri en 18 ára - ein önn 94.655
Tónskólagjald eldri en 18 ára - 1/2 önn eða hálft nám 47.325
Tónskólagjald 1 önn 47.325
Tónskólagjald hljóðfæri nr. 2 hálft nám 70.965
Systkinaafsláttur í Tónskóla (ath. 1/2 önn) - 2. barn 25% afsláttur -5.915
Systkinaafsláttur í Tónskóla (ath. 1/2 önn) - 3. barn 50% afsláttur -12.970
Systkinaafsláttur í Tónskóla (ath. 1/2 önn) - 4. barn 75% afsláttur -17.765
Hóptími pr. nemandi 14.520
Hljóðfæraleiga pr. önn 7.690

Bækur og námsgögn eru seld á kostnaðarverði.

Þjónusta Verð
4 tíma vistun á mánuði 16.690
5 tíma vistun á mánuði 20.525
6 tíma vistun á mánuði 24.645
7 tíma vistun á mánuði 28.745
8 tíma vistun á mánuði 32.860
15 mínútna morgungjald 1.040
15 mínútna síðdegisgjald 1.040
Morgunmatur 1.950
Hádegismatur 8.930
Síðdegishressing 1.950

Systkinaafsláttur 50% af vistun hvers barns umfram eitt.

Afsláttur einstæðra foreldra 50%

Breytingar á vistun þurfa að tilkynnast fyrir 1. hvers mánaðar eða 15. hvers mánaðar.

Ef barn fer í veikindaleyfi eða annað leyfi í a.m.k. 5 daga getur foreldri óskað eftir niðurfellingu fæðisgjalds og verður það leiðrétt í næstu innheimtu. 

Þjónusta Verð
Mötuneyti námsmanna úr öðru sveitarfélagi 1.195
Frístun daggjald - nestistími innifalinn 1.025
Frístund - systkinaafsláttur 25% -255
Frístun - 50% afsláttur einstæðra foreldra -510

Áhaldahús

Þjónusta Verð
Starfsmaður áhaldahúss í dagvinnu 6.615
Starfsmaður áhaldahúss í yfirvinnu 9.980
Sláttur utan Hólmavíkur 23.015
Akstur utanbæjar 145 kr/km

Í útseldri vinnu við slátt er talinn tími starfsmanns við sláttinn, leiga á sláttutæki og akstur. Hægt er að panta slátt í dreifbýli Strandabyggðar og er akstur þá innheimtur að auki en reynt verður að samnýta ferð. Ósk um slátt er send á ahaldahus@strandabyggd.is eða í síma 865-4806.

Byggingar- og skipulagsgjöld

1. gr. 

Almenn ákvæði

1.1 Við útgáfu byggingarleyfis/heimildar, framkvæmdaleyfis eða vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingafulltrúi veitir, skal greiða þau gjöld sem gjaldskrá þessi kveður á um.

1.2 Tekjum sveitarfélagsins skv. gjaldskrá þessari skal varið til að standa undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins vegna þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila.

2. gr. 

Byggingarleyfis-/-heimildargjöld

Gjöld miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Þá er innifalið í gjaldinu byggingarleyfisgjald, gjald vegna útmælingar og hæðarsetningar, byggingareftirlits, lögbundinna úttekta, fokheldisvottorðs og vottorðs vegna lokaúttektar. Fyrir byggingarleyfi skv.9.gr.,sbr. 51.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010, skal greiða gjöld sem hér segir:

2.1

Íbúðarhúsnæði Verð
Einbýlishús 210.188
Parhús, tvíbýlishús eða raðhús á einni hæð, verð pr. íbúð 176.998
Raðhús á fleiri en einni hæð eða fjölbýlishús með þremur íbúðum, pr. íbúð 150.731
Fjölbýlishús, tvær hæðir, með fjórum íbúðum eða fleiri, pr. íbúð 127.740
Fjölbýlishús, þrjár hæðir og hærri, með fjórum íbúðum eða fleiri, pr. íbúð 108.253

2.2

Atvinnu- og þjónustuhús og stofnanir Verð
Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði með íbúðum, gólfflötur allt að 500 m2 210.188
Atvinnu- og þjónustuhúsnæði, stofnanir, einnig sama húsnæði með íbúðum, gólfflötur stærri en 500 m2 256.555

2.3

Ýmis hús og hvers konar viðbyggingar Verð
Frístundahús stærri en 50 m2 210.188
Frístundahús 25-50 m2 105.082
Frístundahús 15-25 m2 52.547
Smáhýsi frá 1-15 m2 (aukahús við frístunda- og íbúðarhús) 14.427
Sólstofur, bílageymslur, geymslur og viðbyggingar að 20 m2 52.547
Sólstofur, bílageymslur, geymslur og viðbyggingar að 20-100 m2 105.094
Viðbyggingar stærri en 100 m2 Sömu gjöld og nýbyggingar
Vélageymslur/korngeymslur allt að 100 m2 118.575
Fjárhús, fjós og hesthús eða sambærileg hús allt að 300 m2 118.575
Fjárhús, fjós og hesthús eða sambærileg hús ef stærra en 300 m2 Sömu gjöld og atvinnuhúsnæði
Gróðurhús allt að 300 m2 118.575
Gróðurhús ef stærri en 300 m2 Sömu gjöld og atvinnuhúsnæði
Gjald v. húsa s.s. sumarhúsa sem flutt eru inn á svæði Strandabyggðar fullbúin og sett á undirstöður 105.094

3. gr.

Þjónustugjöld

3.1 Vegna annarrar þjónustu sem skipulags- og byggingarfulltrúi veitir skal greiða gjöld sem hér segir: 

3.1.1 Afgreiðslugjald 14.427
3.1.2 Endurskoðun aðaluppdráttar 18.096
3.1.3 Breytt notkun á mannvirkjum að 60 m2 71.882
3.1.3 Breytt notkun á mannvirkjum yfir 60 m2 71.882
3.1.4 Áfangaúttekt/stöðuúttekt, skýrsla 46.623
3.1.5 Úttekt v. meistaraskipta eða byggingastjóraskipta 46.623
3.1.6 Úttekt v. rekstrarleyfis 46.623
3.1.7 Húsaleiguúttektir á íbúðar- eða atvinnuhúsnæði 46.623
3.1.8 Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga 1-5 fastanúmer í húsi 46.623
3.1.9 Viðbót vegna eignaskiptayfirlýsingar, hvert fnr.>5 6.005
3.1.10 Tímabundin stöðuleyfi 27.915
3.1.11 Staðfestingargjald v. lóðaúthlutunar, óendurkræft 36.508
3.1.12 Breyting og gerð á nýjum lóðarsamningi 51.834
3.1.13 Breyting á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs 29.638
3.1.14 Aukaúttekt 16.436
3.1.15 Aukamæling á útsetningu húss 80.596
3.1.16 GPS mæling/lóðauppdráttur (4-6 punktar) 71.116
3.1.17 Stofnun lóðar 47.124
3.1.18 Niðurrif mannvirkja 14.427

Útprentun á gögnum, teikningum eða öðrum tilheyrandi skjölum fer eftir gjaldskrá skrifstofu Strandabyggðar. Þinglýsingarkostnaður vegna stofnskjala og lóðarleigusamninga bætist við innheimtu ef um slíkt er að ræða.

4. gr. 

Framkvæmdaleyfisgjald og gjald fyrir skipulagsvinnu

4.1 Fyrir framkvæmdaleyfi og skipulagsvinnu ákveður sveitarstjórn gjald eftir umfangi framkvæmdar sem hér segir: Að meginreglu skal sá sem óskar eftir nýju deiliskipulagi eða breytingu á gildandi aðal- eða deiliskipulagi greiða þann kostnað sem verkið hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins.

4.2 Umhverfis- og skipulagsnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skiplagsvinna á vegum er yfirstandandi eða fyrirhugðu á svæðinu eða skiplagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.

4.3 Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald vegna umfangs verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skiplags- og byggingarfulltrúa sem er 14.381 kr./klst. eða gjald skv. reikningi.

Kostnaður vegna skipulagsvinnu:

4.4 Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga:

Afgreiðslugjald, greitt við móttöku umsóknar um framkvæmdaleyfi eða skipulagsbreytingu 14.381
Breyting á aðalskiplagsuppdrætti, sbr. 36.gr. skipulagslaga,krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald pr.klst. 14.381
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1.mgr. 36. gr. 426.688
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr., 2.mgr.36. gr. 284.463
4.5 Kostnaður vegna nýs deiliskiplags:
Afgreiðslugjald 14.381
Nýtt deiliskipulag, sbr. 38.gr. skipulagslaga,krafið skv. útl.kostnaði, viðmiðunargjald pr. klst. 14.381
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr, 2.mgr.38. gr. 189.638
4.6 Kostnaður vegna verulegra breytinga á deiliskipulagi:
Breyting á deiliskipulagsuppdr., sbr. 1.mgr. 43.gr. krafið skv. útl.kostnaði, viðmiðunargjald pr.klst. 14.381
Umsýslu- og auglýsingakostnaður sbr. 1.mgr. 43.gr. 189.638
4.7 Kostnaður vegna óverulegra breytinga á deiliskipulagi:
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti. sbr. 1.mgr. 43.gr.,krafið skv. útl.kostn. viðmiðunargjald pr.klst. 14.381
Umsýslu- og auglýsingakostnaður sbr. 1.mgr. 43.gr. 189.638
4.8 Kostnaður vegna grenndarkynningar:
Grenndarkynning 63.201
Grenndarkynning, minniháttar 27.412

Kostnaður vegna framkvæmdaleyfa

4.9 Skipulags- og byggingarfulltrúi áætlar fjölda áfangaúttekta við útgáfu framkvæmdaleyfis og leggur á gjöld vegna þeirra við útgáfu leyfisins.

4.10 Framkvæmdaleyfisgjald skal ekki vera hærra en sem nemur kostnaði sveitarfélagsins við undirbúning leyfisins og eftirlit sem skylt er að framkvæma.

4.11 Vegna aðkeyptrar vinnu við framkvæmdaleyfi sem nauðsynleg er vegna útgáfu þess skal innheimta sérstaklega samkvæmt reikningi hverju sinni.

4.12 Þegar úrskurður um mat á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 er nauðsynlegur vegna framkvæmdar, telst kostnaður sveitarfélagsins vegna þeirrar vinnu hluti af útlögðum kostnaði þess við útgáfu framkvæmdaleyfisins.

4.13 Fyrir framkvæmdaleyfi skal greiða gjöld sem hér segir:

Afgreiðslugjald 14.381
Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald pr.klst. 14.381
Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, krafið skv. útlögðum kostnaði, viðmiðunargjald, pr. klst. 14.381
Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi 14.381
Umsýsla og yfirferð gagna 14.381
Afgreiðslugjald vegna sérhverrar úttektar 22.127
Áfangaúttekt 57.051

5. gr. 

Gjalddagi, lögveð

5.1 Gjalddagi afgreiðslugjalda er við afgreiðslu umsókna. 

5.2 Gjalddagi leyfisgjalda er við útgáfu leyfis. 

5.3 Gjalddagi þjónustugjalda er við afhendingu gagna eða veitingu leyfis. 

5.4 Afgreiðslugjöld eru ekki endurkræf þótt umsókn sé synjað, byggingareyfi falli úr gildi eða umsókn sé dregin til baka. Leyfis- og þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari eru ekki endurkræf þótt ekki verði af framkvæmd. Þó skulu áætluð þjónustugjöld endurgreidd verði ekki af framkvæmdum á gildistíma byggingarleyfis. 

5.5 Heimilt er að gera skriflegan samning um greiðslur. Byggingar- og framkvæmdaleyfisgjöldum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign og gjaldfallin gjöld má innheimta með fjárnámi.

6. gr. 

Verðlagsbreytingar

Gjöld skv. gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í desember 2023 sem er 116,4 stig, grunnur 2022 og breytist 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni.

7. gr. 

Gildistaka

7.1 Gjaldskrá þessi sem er samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar þann 8. október 2024 er sett með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og 20.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 til að öðlast þegar gildi.

Gæludýraleyfi

Skráningargjald Verð
Nýskráning hunds 15.375
Nýskráning kattar 9.675
Aukagjald fyrir týnt merki 1.345

Afsláttur upphæð 8.155,- er af skráningargjaldi ef eigandi hefur sótt viðurkennt hundaþjálfunarnámskeið.

Innifalið í skráningargjaldi er merki, árleg skoðun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélags. Ekki er innheimt eftirlitsgjald á skráningarári.

Árlegt eftirlitsgjald Verð
Hundagjald 11.285
Kattagjald 6.985

Innifalið í leyfisgjaldi er árleg skoðun og ormahreinsun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélags. 

Föngun Verð
Fyrsta föngun hunds 15.585
Önnur og þriðja föngun hunds 31.615
Föngun hunds án leyfis 36.935
Handsömun kattar 6.985

Óheimilt er að afhenda dýr án leyfis nema gengið verði frá leyfisveitingu við afhendingu. 

Innifalið í föngunargjaldi er fæði og uppihald handsamaðs dýrs og umsýslugjald.

Gámasvæði í Réttarvík og geymslusvæði við Hnitbjörg

1. gr. 

Gjaldskrá þessi og reglur eru fyrir skipulagt gámasvæði í Réttarvík og geymslusvæði við
Hnitbjörg í Strandabyggð.

2. gr. 

Sótt skal um leigupláss á þar til gerðum eyðublöðum. Fram komi nafn, heimilisfang,
símanúmer og kennitala umsækjanda. Tilgreina skal áætlaðan leigutíma og tegund
geymslumuna. Umsóknarblað skal undirritað af umsækjanda. Umsóknum ber að skila á
skrifstofu Strandabyggðar og afgreiddar í þeirri röð sem þær berast. Starfsmaður
Áhaldahúss sér um úthlutun geymslusvæðis og skal leigutaki undirrita leigusamning um
leið. Leigutaka er óheimilt að endurleigja úthlutuðu plássi til annarra.

3. gr. 

Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er 3 mánuðir miðað við 1. dag hvers mánaðar. Leigugjald er
innheimt í nóvember ár hvert og hlutfallslega miðað við leigutíma. Leigutími getur aldrei
verið styttri en einn mánuður. Hafi hlutir ekki verið sóttir innan tveggja mánaða eftir að
umsömdum leigutíma lýkur eða greiðslufall orðið, áskilur leigusali sér allan rétt til að selja
viðkomandi hluti fyrir áföllnum kostnaði.

4. gr. 

Leiga á geymslusvæði v. Hnitbjörg eru á hvern reit pr. ár 12.495
Leiga á gámasvæði pr. ár. v. 20 ft. gáms 11.155
Leiga á gámasvæði pr. ár. v. 40 ft. gáms 22.315

5. gr. 

Svæðið er ekki vaktað og hlutir á gáma- og geymslusvæði alfarið á ábyrgð eigenda. Ekki er
aðgangur að vatni né rafmagni.

6. gr.

Leigutaki ber einn ábyrgð á þeim munum sem hann geymir á svæðinu. Gámar á
geymslusvæði skulu vera snyrtilegir og leigutaka skylt að ganga snyrtilega um svæðið. Hlutir
sem geymdir eru á svæðinu mega ekki innihalda mengandi efni sem hætta er á að berist um
svæðið og umhverfi þess. Leigutaki þarf að ganga þannig frá eigum sínum að ekki stafi
slysa- eða fokhætta af þeim. Óheimilt er að geyma hluti ofan á eða til hliðar við gáma á
gámasvæði og utan reita á geymslusvæði. Leigutaki skal gæta þess að valda ekki öðrum
leigutökum ónæði eða óþægindum t.d með því að hefta aðgang.

7. gr.

Skrifstofa Strandabyggðar sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari. Séu gjöldin
ekki greidd á eindaga reiknast dráttarvextir af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. um vexti og
verðtryggingar nr. 38/2001.

8. gr.

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 10. desember 2024 og er
bundin byggingarvísitölu grunni frá desember 2024 sem er 121 stig og uppreiknast árlega
skv. henni. Reglur og leigufjárhæð getur breyst í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda og Slökkviliðs Strandabyggðar

I. Kafli

Almennt

1. gr. 

Verkefni Slökkviliðs Strandabyggðar, ákvarðast annarsvegar af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt þeim og hins vegar af ákvæðum í stofnsamningi Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda bs. Af öðrum verkefnum skal Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda taka gjald samkvæmt gjaldskrá þessari.  

2. gr. 

Slökkvilið Strandabyggðar og Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda bs innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármálaráðuneytisins. 

3. gr. 

Slökkviliðsstjóra er heimilt að veita afslátt eða fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum s.s. vegna vatnsflutninga og/eða fellur að markmiðum Slökkviliðs Strandabyggðar. Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga umupplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. 

 

II. Kafli

Lögbundin verkefni

4. gr. 

Sé ákvæðum 2. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000, með síðari breytingum, beitt skal eigandi eða umráðamaður mannvirkis eða lóðar bera kostnað samkvæmt gjaldskrá af eftirliti með því að farið hafi verið að kröfum um úrbætur samkvæmt 3. mgr. 29. gr. sömu laga. Einnig er heimilt að taka gjald fyrir öryggis- og lokaúttektir samkvæmt 3. mgr. 12. gr. sömu laga. 

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns slökkviliðs er 11.815 kr. 

5. gr. 

Öryggisvaktir á mannvirki

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á viðkomandi húseign. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimt er að lágmarki 72.010 kr. fyrir hvern starfsmann slökkviliðs Strandabyggðar sem sinnir verkefninu, auk 18.000 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir. 

6. gr. 

Lokun mannvirkis

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis eftir að eiganda eða forráðamanni hefur verið tilkynnt ákvörðun slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mannvirki. Innheimtar eru 18.000 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 72.010 kr. auk 18.000 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 32. gr. laga um brunavarnir. 

7. gr. 

Dagsektir

Innheimta skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimtar eru 18.000 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir. 

8. gr. 

Öryggis- og lokaúttektir

Innheimtar eru fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttekta, að lágmarki 36.004 kr. Fyrir stærri úttektir skal að auki innheimta 18.000 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir. 

9. gr. 

Eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar

Fyrir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal tekið fast gjald 18.000 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund. Þegar um útkall er að ræða utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns eru innheimtar 72.010 kr. auk 18.000 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir. 

10. gr.

Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimta fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð. 

Innheimt er fast gjald fyrir eina klukkustund, 18.000 kr. fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunaviðvörunum, fellur það undir eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar, sbr. 9. gr. þessarar gjaldskrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir. 

11. gr. 

Umsagnir opinberra stofnana vegna leyfisskyldrar starfsemi

Af umsögnum til annara opinberra stofnana vegna leyfisskyldrar starfsemi skal tekið fast gjald vegna þriggja klukkustunda vinnu, 54.000 kr. ef skoða þarf viðkomandi stað, en einnar klukkustundar,  

18.000 kr., ef umsögn er afgreidd án skoðunar á staðnum. 

 

III Kafli

Önnur verkefni og þjónusta

12. gr. 

Slökkviliðið sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni verða þó að falla að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa sveitarfélagsins, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu. 

Fast tímagjald samkvæmt 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 18.000 kr. fyrir lögbundin verkefni. Að teknu tilliti til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið er fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns innheimt með 35% álagi. Fast tímagjald fyrir vinnu sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er því  15.950 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 12.-14. gr. er að lágmarki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 127.610 kr. 

Viðbúnaður vegna elsvoða og mengunaróhappa

13. gr. 

Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Lögin gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sérhæfðum björgunarbúnaði. Lögin ná til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvistarfa í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri. 

Slökkvistörf og viðbúnaður við mengunaróhöppum á sjó og í lofti falla hins vegar ekki undir lögin né heldur eldvarnir í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum. Slökkviliðsstjóri metur það hverju sinni hvort sinna skuli beiðnum um verkefni sem liggja fyrir utan gildissvið laganna. 

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 127.610 kr. auk 15.950 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. 

Viðbúnaður vegna upphreinsunar

14. gr.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á mengunaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna. 

Ef óskað er eftir því að slökkvilið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 127.610 kr. auk 15.950 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. 

Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka

15. gr. 

Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í brunavarnalögum, t.d. vegna vatnsleka er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna. 

Ef óskað er eftir því að slökkvilið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 127.610 kr. auk 15.950 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. 

Ráðgjafarþjónusta

16. gr.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningarskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinna er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 16.875 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. 

Tækjaleiga

17. gr. 

Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem ekki er hægt að leigja hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið. 

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að ræða dælu eða vatnssugur, slökkvibíla, t.d. vegna kvikmyndagerðar eða einhvers atburðar sem kallar á slíkan búnað. Verðlagningu á tækjum skal endurskoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari. 

Tæki slökkviliðs Strandabyggðar skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimtar eru að lágmarki 63.805 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 15.950 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma auk tækjaleigu. 

Fylgd vegna sprengiefnaflutninga

18. gr. 

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur er kveðið á um slíka fylgd í reglugerð um flutning á hættulegum farmi á landi þar sem lögreglustjóri gefur ekki heimild til flutninga nema í fylgd slökkviliðs. Innheimtar eru að lágmarki 63.850 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 15.950 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma. 

Annað

19. gr. 

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum eða er í samræmi við stofnsamning Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda Innheimtar eru fyrir tæki samkvæmt 16. gr. og að lágmarki 63.850 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 15.950 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.  

Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar. 

 

IV. Kafli

Innheimta

20. gr. 

Fyrir hönd Brunavarna Dala, Reykhóla og Stranda mun skrifstofa Dalabyggðar annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. 

Fyrir hönd slökkviliðs Strandabyggðar mun skrifstofa Strandabyggðar annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi.  

Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. 

Gjöldum sem til eru komin vegna öryggis- og lokaúttekta sem og aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 5. gr. til og með 10. gr. fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð sbr. 3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000, með síðari breytingum. 

Gildistaka, endurskoðunarákvæði og lagastoð

21. gr. 

Gjaldskrá þessi er samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar þann 10. desember 2024 með heimild í 1. mgr. 92. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 með síðari breytingum. Verð í gjaldskrá þessari fylgja vísitölu neysluverðs 1. janúar ár hvert. 

Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. 

Hafnarsjóður

Almennt

1. gr.

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 10. desember 2024 og er
bundin byggingarvísitölu grunni frá desember 2024 sem er 121 stig og uppreiknast árlega
skv. henni. Reglur og leigufjárhæð getur breyst í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Um gjaldtöku tengda stærð skipa

2. gr. 

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 10. desember 2024 og er
bundin byggingarvísitölu grunni frá desember 2024 sem er 121 stig og uppreiknast árlega
skv. henni. Reglur og leigufjárhæð getur breyst í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.

Skipagjöld

3. gr.

Lestargjöld: Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 21 á mælieiningu (1 mælieining = brt.) skv.
2.gr., en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

Bryggjugjöld: Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 12 á 
mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma sem skipið liggur bundið. Fiskiskip greiða þetta gjald eigi 
oftar en 26 sinnum í mánuði. Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, 
sem mánaðargjald, kr. 156 á mælieiningu, en þó aldrei lægra en kr. 17.450 á mánuði. Bátar minni en 
20 brt. greiði þó aldrei lægra en kr. 11.390 á mánuði.

Farþegabátar, hvalaskoðunar og sjóstangaveiðibátar yfir 20 t. greiði tvöfalt viðlegugjald. 

Þau skip og bátar sem ekki greiða aflagjald í 6 mánuði samfellt greiði tvöfalt viðlegugjald. 

Skútur og skemmtibátar sem koma til hafnar greiði 14.905 fyrir hverja byrjaða viku.

Skip sem ekki er í rekstri né leggur upp afla hjá Hólmavíkurhöfn, skal greiða fullt bryggjugjald fyrir 
hvern legudag og nýtur ekki afsláttarkjara í formi viðlegugjalds. Skip sem legið hefur óhreyft lengur 
en 6 mánuði í höfn telst ekki lengur í rekstri.

Undanþegin eru varðskip og skip sem leita hafnar vegna sjóskaða eða til að láta í land sjúka menn 
eða látna, svo fremi þau hljóti ekki aðra þjónustu.

Vatnsgjald fyrir báta undir 30 brt. er innifalið í lestar- og bryggjugjöldum.

Lestar- og bryggjugjöld eru innifalin í viðlegugjaldi. Sjá 14. gr.

Vörugjöld

4. gr. 

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr 
einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

5. gr. 
Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:

  1. Umbúðir sem endursendar eru
  2. Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar
  3. Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna
  4. Úrgangur sem fluttur er til eyðingar

6. gr. 

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta höfninni í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu ósundurliðaðar fleiri en ein vörutegund í sendingu skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af. 

Vörugjaldskrá

7. gr. 

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar 
segir:

1. fl.     Gjald kr. 441 fyrir hvert tonn:

Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og 
úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.

2. fl.     Gjald kr. 800 fyrir hvert tonn:

Lýsi og fiskimjöl.

3. fl.     Gjald kr. 885 fyrir hvert tonn:

Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, 
sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, hráfefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og 
niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.

4. fl.     Gjald kr. 1.140 fyrir hvert tonn:

Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu og brottflutnings.

5. fl.     Aflagjald reiknast 1,89% af heildarverðmæti

Kaupanda afla ber að afhenda skrifstofu Strandabyggðar skýrslu um keyptan afla um leið og 
sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og 
afla er landað. Kaupandi ber ábyrgð á greiðslu aflagjalds. Hámarksgjald samkvæmt lið þessum er kr. 
8.083 fyrir hvert tonn.

Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 440

Af flutningi vinnutækja innanlands skal veita allt að 50% afslátt.

Af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast aflagjald af helmingi heildarverðmætis. 

Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu 
heildarverði.

Sorphirða

8. gr.

Eftirfarandi gildir fyrir skip og báta sem hafa fasta viðveru og borga mánaðargjald:

  • Frístundabátar kr. 532 á mánuði
  • Bátar að 20 brt. kr. 2.262 á mánuði
  • Bátar 21-30 brt. kr. 3.330 á mánuði
  • Bátar yfir 30 brt. kr. 6.759 á mánuði
  • Móttaka á sorpi, ein ferð á flokkunarstöð kr. 14.765
  • Að auki reiknast kostnaður vegna gjaldskrár Sorpsamlags Strandasýslu sem getur verið 
    breytilegur.

NB: Tekið er lágmarksgjald hvort sem skilað er inn úrgangi eða ekki. Forsvarsmenn útgerða eru því 
hvattir til að safna saman úrgangi og skila inn við komu í höfn. Förgunargjaldið skal standa undir 
kostnaði við förgun úrgangs sem skilað er í land.

Gjöld vegna skipa sem hafa ekki fasta viðveru, skulu greiða fyrir sorp skv gjaldskrá sorpmóttakanda.

  1. Úrgangsgjald: Við komu skips til hafnar skal greiða 1 kr./brt gjald sem skal standa undir 
    kostnaði vegna eftirlits og umsýslu við móttöku á sorpi. Lágmarksgjald kr. 7.490.- og
    hámarksgjald kr. 63.510.-
  2. Úrgangsgjald: Gjald sem lagt er á vegna a liðar má lækka ef skipstjóri getur sýnt fram á að 
    minni úrgangur verði til um borð í skipinu fast gjald 1 kr. á brt en þá er lágmarksgjald. kr. 
    7.235.- en hámarksgjald kr. 61.360.-
  3. Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á árinu greiða skv b 
    lið fyrir fimmtu komu og allar komur eftir það.
  4. Skip og bátar sem hafa varanlega viðlegu skulu greiða fast mánaðargjald vegna umsýslu og 
    eftirlits hafnar vegna móttöku á sorpi. Gjaldið skal vera sbr. gr. 8 hérframar.
  5. Förgunargjald: Við komu skips til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. gr laga nr. 33 frá 
    2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skila úrgangi í land eða ekki. Förgunargjaldið 
    skal standa undir kostnaði við förgun úrgangs sem skilað er í land.
         a. Farþegaskip yfir 60 metrar að lengd skulu greiða kr. 2.- á hverja brt tölu skipsins og 
             miðast gjaldið við eftirfarandi sorpmagn
         b. Farþegaskip undir 30.000 brt 5 m3
         c. Farþegaskip frá 30.000 brt 10m3
         d. Farþegaskip yfir 100.000 brt 15m3
         e. Öll önnur skip skulu greiða kr. 3.- á brt og þá miðast gjaldið við 5 m3 afsorpi.
  6. Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið álagt förgunargjald 
    samkvæmt e-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans ásamt réttum 
    upplýsingum um losun magns. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að kvittun móttökuaðila 
    hafi borist á skrifstofu Strandabyggðar innan tveggja sólarhringa frá brottför skips. Kjósi 
    skipstjóri eða útgerðarmaður þjónustu viðurkennds sorpmóttökuaðila þá greiðir hann allan 
    kostnað þar að lútandi og skal skila til hafnarinnar útfylltu eyðublaði um magn og sundurliðun 
    þess úrgangs sem skilað er í land. Misbrestur á þessu getur leitt til tilkynningar til
    Umhverfisstofnunar.
  7. Samkvæmt 11. grein reglugerðar nr. 1200 frá 2014 getur Umhverfisstofnun veitt 
    skipum í áætlunarsiglingum sem hafa reglulega viðkomu í Hólmavíkurhöfn og sýna fram á 
    trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni, undanþágu frá
    afhendingu úrgangs. Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu 
    Umhverfisstofnunnar um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum skal framvísa gildri 
    staðfestingu þess efnis
  8. Förgunargjald: Skip sem eru undanþegin gjaldskyldu skv. 1.tl 2. mgr. 17. gr. laga nr. 61 frá 
    2003, Hafnalaga, skulu eftir sem áður greiða fyrir losun og förgun sorps hvort sem óskað er 
    eftir viðurkenndum móttökuaðila eða ekki.

Festargjöld

9. gr.

Festargjald f. hvern starfsmann í dagvinnu 15.995
Festargjald f. hvern starfsmann í yfirvinnu 21.210

Greiða skal gjöld fyrir komu og brottför. Við komu skipa eru tveir starfsmenn en við brottför einn. Þó er hægt að fá undanþágu hjá hafnarverði frá reglu þessari í sérstökum tilfellum. 

Vatnssala

10. gr.

Vatnsgjöld: Vatn afgreitt frá bryggju.

Vatn afgreitt til skipa 31-60 brt. 7.325 í hvert skipti
Vatn afgreitt til skipa yfir 60 brt. 11.275 í hvert skipti

Vatnsgjald fyrir báta undir 30 brt. er innifalið í lestar- og bryggjugjöldum.

Vatnsgjald er innifalið í viðlegugjaldi. 

Vigtargjald

11. gr. 

Almenn vigtun 223 á hvert byrjað tonn
Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun 1.000
Vigtun í yfirvinnu pr. klst. 7.690

Ef kalla þarf í vigtarmann eftir lokun hafnarvogar greiðast 4 klst í útkall á hvern bát. 

Opnun hafnarinnar er frá kl 8:00-21:00 virka daga og 12:00-20:00 um helgar. 

Rafmagnssala

12. gr. 

Rafmagnssala 23 á kwst.
Mæla- og tenglagjald 3.765
125 AMP tenglar 2 tenglagjöld pr. mánuð 10.090
Rafmagnstengigjald 3.675
Rafmagnstengigjald í yfirvinnu 7.135

Hægt er að vera með eigin mæla séu þeir viðurkenndir og samþykktir af starfsmönnum hafnarinnar, fellur þá niður mæla- og tengigjald.

Rafmagnsgjöld geta breyst án fyrirvara samkvæmt breytingu á gjaldskrá Orkubús Vestfjarða hverju sinni. 

Kranagjald

13. gr. 

Löndun með krönum hafnarinnar 478 á hvert byrjað tonn

Viðlegugjald

14. gr. 

Frístundabátar (undir 6. metrar) 6.235 á mánuði
Frístundabátar (yfir 6 metrar) sama verðskrá og um báta undir 20 brt.-yfir 20. brt.
Frístundabátar (12-16 metra) sama verðskrá og um báta yfir 20 brt.
Frístundabátar yfir 16 metra gilda bryggju- og lestargjöld
Bátar undir 20 brt. 10.350 á mánuði
Bátar yfir 20 brt. 15.025 á mánuði
Bátar undir 20. brt. fast legupláss 16.685 á mánuði
Bátar yfir 20 brt. fast legupláss 20.570 á mánuði
Daggjald bátar undir 20 brt. 3.115
Daggjald bátar yfir 20. brt. 4.365
Skip yfir 80 brt. 161 á brt. á mánuði
Gjald v. aðstöðu f. olíuafgreiðslu 19.215 á mánuði

Í viðlegugjaldi eru innifalin lestargjöld, bryggjugjöld og vatnsgjald.

Þeir bátar sem dvelja lengur í höfninni en 30 daga á ári eiga kost á að greiða viðlegugjald.

Hafnsögugjald

15. gr. 

Hafnsögugjald 9 á mælieiningu
Hafnsögugjald til og frá höfn 9.115 per. klst.
Hafnsögubátur 32.070

Farþegagjöld

16. gr. 

Hver fullorðinn m. farþegabátum og skemmtiferðaskipum 225
Hvert barn m. farþegabátum og skemmtiferðaskipum 95

Skemmtiferðaskip skulu skila inn farþegalistum minnst einum sólarhring fyrir komu en farþegabátar með áætlunarsiglingar til og frá Hólmavíkurhöfn skila inn gögnum um fjölda farþega mánaðarlega. Eingöngu eru greidd farþegagjöld af greiðandi farþegum. 

Siglingavernd (ISPS)

17. gr. 

Öryggisgjald f. skip sem falla undir skilgreiningu hafnarverndar 64.725 á komu
Öryggisgæsla f. öryggisvörð í dagvinnu 7.420 per klst.
Öryggisgæsla f. öryggisvörð í yfirvinnu 12.000 per klst.

Skráningargjald

18. gr.

 Skráning í Gaflinn á afla vegna fyrirtækja með endurvigtunarleyfi kr. 0,42 á kg.

Um innheimtu og greiðslu gjalda

19. gr. 

Skrifstofa Strandabyggðar sér um innheimtu allra gjalda skv. gjaldskrá þessari. Heimilt er að leita 
samþykkis hafnarstjóra til notkunar greiðslumiðlunar við uppgjörs skulda. Séu gjöldin ekki 
greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. 
laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

20. gr. 

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs 
Strandabyggðar vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa starfsmanni hafnar 
upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál 
og afhenda starfsmanni hafnarinnar þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef starfsmaður 
hafnarinnar krefst þess vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður 
haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á 
ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá 
afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá 
starfsmanni hafnarinnar að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

21. gr.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar á annan hátt sjóleiðis eða 
landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur 
siglingu, nema um annað sé sérstaklega samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending 
vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð. Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá 
vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er 
komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar 
eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en 
gjaldið er greitt.

22. gr. 

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. 
Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi og/eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár 
fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 3. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Starfsmanni hafnarinnar 
er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

23. gr. 

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Strandabyggðar er skylt að 
innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3.gr. laganr. 50/1988 um 
virðisaukaskatt.

Gildistaka

24. gr. 

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Strandabyggðar var samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 10. 
desember 2024, jafnframt fellur brott eldri gjaldskrá sama efnis

Vatnsveita

Gjaldskylda

1. gr.

Strandabyggð innheimtir gjald fyrir lagningu heimæðar skv. 5. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004. Jafnframt innheimtir sveitarfélagið vatnsgjald og notkunargjald skv. 6. og 7. grein laganna.

Ráðstöfun gjalda

2. gr. 

Tekjum sveitarfélagsins vegna heimæðargjalds vatnsveitu skal varið til vatnsveituframkvæmda og skal gjaldið taka mið af gerð, stærð og lengd heimæða. Vatnsgjald, ásamt öðrum tekjum vatnsveitu, skal standa undir rekstri vatnsveitunnar, þ.m.t fjármagnskostnaði og fyrirhuguðum stofnkostnaði samkvæmt langtímaáætlun veitunnar.

Tengigjald vatnsveitu

3. gr. 

Tengigjöld skal innheimta af öllum fasteignum sem eru tengdar við vatnsveitu í eigu Strandabyggðar og skal gjaldið lagt á og innheimt við tengingu og skal vera sem hér segir:

32 mm 232.810
40 mm 252.995

Starfsmenn Áhaldahúss sjá um að leggja og tengja heimæðar, setja inntakskrana utanhúss og krana, síu og einstefnuloka innanhúss. Miðað er við að ídráttarrör hafi verið lagt frá inntaksstað mannvirkis að krana í lóð í frostfríu dýpi samkvæmt fyrirmælum verkstjóra Áhaldahúss Strandabyggðar og fjarlægð frá stofnæð sé ekki meiri en 15 metrar.
Við endurnýjun eldri vatnsinntaka skal farið eftir framangreindum reglum en greitt verði eftir umfangi verks.

Vatnsgjald

4. gr.

Stofn til álagningar vatnsgjalds skal vera 0,30% af fasteignamati allra húsa og lóða samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976, með síðari breytingum. Stofn til álagningar vatnsgjalds er ekki lægra en 25.385,- og ekki hærra en 34.010,-. Vatnsgjald er ekki lægra en kr. 39.855,- og ekki hærra en kr. 53.410,- af íbúðarhúsnæði. Vatnsgjald fer þó ekki yfir 0,5% af fasteignamati húss og lóðar.

Aukavatnsgjald

5. gr.

Auk vatnsgjalds, skulu fyrirtæki og aðrir, er nota kalt vatn til annars en heimilisþarfa, greiða aukavatnsgjald. Aukavatnsgjald er innheimt eftir á, samkvæmt mældri notkun með rúmmetramæli sem vatnsveita leggur til. Þar sem ekki eru mælar er stjórn vatnsveitu heimilt að áætla notkun.

  • Aukavatnsgjald fyrir hvern m³ að 100.000 m³ er kr. 33.
  • Afsláttur til stórnotenda frá 100.000 m³ að 250.000 m³ er 20%
  • Afsláttur til stórnotenda frá 250.000 m³ er 40%.
  • Vatnsgjald vegna beitingagáma 20 ft. eru kr. 13.425

Mælaleiga

6. gr. 

Greiðendur aukavatns gjalds skulu árlega greiða mælagjald vegna leigu á vatnsmælum sem hér segir:

25 - 31 mm 8.305
32 - 39 mm 11.575
40 - 49 mm 18.310
50 - 74 mm 28.400
75 mm og stærri 51.365

Breytingar á gjöldum

7. gr. 

Ákvörðun um vatnsgjald samkvæmt 2. grein er tekin árlega af sveitarstjórn samhliða ákvörðun um álagningarstuðla fasteignagjalda. Önnur gjöld í gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu í desember 2021=100 og breytast skv. henni árlega. Gjöld vatnsveitunnar bera ekki virðisaukaskatt.

Ábyrgð á greiðslu gjalda

8. gr. 

Vatnsgjald greiðist af hús - og íbúðareiganda, lóðareiganda ef um eignarlóð er að ræða en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins. Vatnsgjald nýtur aðfararheimildar skv. 2. mgr. laga nr. 32/2004, sbr. 10. tl.1. mgr. laga um aðför nr. 90/1989, og má gera aðför í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Vatnsgjald nýtur lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Notkunargjald og leigugjald, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum, má taka fjárnámi.

Gildistaka

9. gr. 

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 10. desember 2024. Staðfestist hér með samkvæmt 10. gr. reglugerðar um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005.

Fráveita

1. gr. 

Sveitarstjórn Strandabyggðar innheimtir gjald fyrir fráveitu í Strandabyggð og hreinsun rotþróa í Strandabyggð skv. gjaldskrá þessari og samþykkt nr. 808/2012 um fráveitur og meðhöndlun seyru í Strandabyggð. 

2. gr. 

Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, með síðari breytingum. Fráveitugjald skal nema 0,25% af álagningarstofni. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts. 

3. gr. 

Rotþróargjald fyrir hverja íbúð og sumarhús sem ekki er tengt fráveitu sveitarfélagsins skal vera eftirfarandi árlega kr. 18.030. Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra. Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða kr. 3.420.- 

4. gr. 

Tengigjald fráveitu skal innheimta af öllum fasteignum sem eru tengdar við fráveitu í eigu Strandabyggðarog skal gjaldið lagt á og innheimt við tengingu og skal vera sem hér segir: 

Tengigjald fráveitu kr. 71.175. 

Miðað er við að lóðarhafi leggi frárennsli að lóðarmörkum samkvæmt fyrirmælum verkstjóra áhaldahúss Strandabyggðar. 

5. gr. 

Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. 

6. gr. 

Ákvörðun um fráveitugjald samkvæmt 2. grein er tekin árlega af sveitarstjórn samhliða ákvörðun um álagningarstuðla fasteignagjalda. Önnur gjöld í gjaldskrá þessari miðast við byggingarvísitölu grunnur 2021=100 og breytast samkvæmt henni árlega 1. janúar ár hvert. Gjöld fráveitunnar bera ekki virðisaukaskatt.  

7.gr. 

Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Strandabyggðar 10. desember 2024. Staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 4.gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitna til þess að öðlast þegar gildi.  Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá um fráveitugjald og rotþróargjald í Strandabyggð nr. 203/2024. 

Sorpsamlag Strandasýslu ehf

Losun á ílátum kr. hver losun að viðbættu tímagjaldi, km og tegund efnis

Gámur 20-35 rúmmetra 30.000
Gámur 10-19 rúmmetra 30.000
Kar 1.100 lítra 5.000
Kar 660 lítra 5.000
Tunna 120 lítra 3.160
Tunna 240 lítra 3.160

Leiga á ílátum í kr. 

Mánuður Dagur
Gámur 20-30 rúmmetrar 15.861 626
Gámur 10-19 rúmmetrar 12.689 501
Kar 1.100 lítra 5.227 350
Kar 660 lítra 4.017 300
Tunna 120 lítra 1.512 250
Tunna 240 lítra 1.875 250

Móttaka og urðun kr. kg.

Óflokkaður úrgangur 23
Almennt sorp óflokkað 23
Byggingarúrgangur óflokkað. 16.80
Timbur óhæft í kurlun 16.80
Timbur hæft í kurlun 10
Garðaúrgangur 4
Múrbrot 4
Lífúrgangur
Seyra úr rotþróm 10
Holræsaúrgangur 10
Pappír bundið gjaldskrá þjónustuaðila
Pappi bundið gjaldskrá þjónustuaðila
Fernur bundið gjaldskrá þjónustuaðila
Umbúða plast bundið gjaldskrá þjónustuaðila
Glært plast bundið gjaldskrá þjónustuaðila

Kaup fyrir tæki og mannkaup

RJ-U87 520 10.600
RJ-758 409 9.600
TG-G80 520 10.600
Merlo lyftari 7.600
Mannakaup 6.840
RJ-U87 gjald án tímagjalds 800
RJ-U87 með vagni án tímagjalds 1.050

Allur akstur til og frá notkunarstað íláta greiðist af verkkaupa samkvæmt þessari gjaldskrá. 

Öll vinna við akstur og losun íláta greiðist af verkkaupa samkvæmt þessari gjaldskrá.

Samþykkt á aðalfundi Sorpsamlags Strandasýslu 30. ágúst 2024