A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Starfsdagar, sveitarstjórnarfundur og nefndarfundir

| 23. ágúst 2011
Sveitarstjórn Strandabyggðar. Mynd Brian Berg.
Sveitarstjórn Strandabyggðar. Mynd Brian Berg.
Helgina 27. - 28. ágúst n.k. verða haldnir starfsdagar sveitarstjórnar Strandabyggðar þar sem litið verður yfir farinn veg og stefna mótuð til framtíðar. Horft verður til næstu 10 ára og í framhaldi af því sett niður skýr markmið til næstu þriggja ára. Sveitarstjórnarfólk af J-lista og V-lista Vinstri grænna tekur þátt í stefnumótunarvinnu laugardaginn 27. ágúst. 
...
Meira

100% starf í leikskólanum Lækjarbrekku

| 22. ágúst 2011
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í fullt starf. Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Við leitum eftir öflugu fólki sem hefur gaman af að starfa með börnum, er jákvætt og býr yfir góðri samskiptahæfni.

 


Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@holmavik.is

...
Meira

Verkfalli leikskólakennara aflýst

| 20. ágúst 2011
Listverkasýning Leikskólans Lækjarbrekkur (ljósm. IV)
Listverkasýning Leikskólans Lækjarbrekkur (ljósm. IV)
Nú rétt í þessu bárust þær fréttir að fulltrúar Félags leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga hefðu undirrituðu nýja kjarasamninga. Samkomulag náðist um samninga fyrr í dag og hefur boðuðu verkfalli leiksskólakennara á mánudag því verið aflýst.

Því kemur ekki til þess að yngri deildin í leikskólanum Lækjarbrekku á Hólmavík verði lokað á mánudaginn.

Barnamót HSS á Drangsnesi á sunnudag

| 19. ágúst 2011

Barnamót HSS í frjálsum íþróttum verður haldið á Drangsnesi sunnudaginn 21. ágúst næstkomandi. Mótið hefst kl. 14:00. Keppnisgreinar eru eftirfarandi: Börn 8 ára og yngri: 60 m. hlaup, boltakast og langstökk. Börn 9-10 ára: 60 m. hlaup, boltakast og langstökk Börn 11-12 ára: 60 m. hlaup, kúluvarp, spjótkast, langstökk og hástökk.

Tekið er við skráningum á mótið í netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is. Skrá þarf þátttöku fyrir kl. 12:00 á hádegi laugardaginn 20. ágúst. Eftir mótið verður boðið upp á pylsur, drykki og tilheyrandi meðlæti í boði Kaupfélags Steingrímsfjarðar. Fjölmennum nú öll á Barnamótið á Drangsnesi og hvetjum krakkana okkar til dáða!

Yngri deildin á Lækjarbrekku lokar

| 19. ágúst 2011
Strandastrákar í leikskólanum Lækjarbrekku. Mynd IV.
Strandastrákar í leikskólanum Lækjarbrekku. Mynd IV.
Komi til verkfalls leikskólakennara mánudaginn 22. ágúst 2011 mun yngri deildin í leikskólanum Lækjarbrekku verða lokað. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að fylgjast með fréttum af boðun verkfalls í fjölmiðlum.

Sáttarfundur hefur verið boðaður milli deiluaðila kl. 10:00 í dag, föstudaginn 19. ágúst.
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón