Sumarnámskeið í Strandabyggð
Heiðrún Harðardóttir | 26. maí 2025
Strandabyggð og Geislinn munu bjóða upp á sumarnámskeið í júní fyrir börn á aldrinum 6-12 ára.
Skráningarform á námskeið Strandabyggðar er að finna hér: Sumarnámskeið í Strandabyggð 2025
Geislinn mun von bráðar auglýsa sitt námskeið með nánari upplýsingum.
Strandabyggð niðurgreiðir námskeið á vegum Strandabyggðar fyrir þátttakendur sem eru búsettir í sveitarfélaginu. Geislinn sér um skráningu á námskeið á þeirra vegum og mun auglýsa það von bráðar.
Geislinn mun vera með leikjanámskeið vikuna 10-13 júní.
Strandabyggð verður með myndlistarnámskeið með Einari Lúðvík Ólafssyni vikuna 16-20 júní (að undanskildum 17 júní) og tónlistarnámskeið með Arnljóti Sigurðssyni og Andra Frey vikuna 23-27 júní.
Skráningarform á námskeið Strandabyggðar er að finna hér: Sumarnámskeið í Strandabyggð 2025
Geislinn mun von bráðar auglýsa sitt námskeið með nánari upplýsingum.