A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

6. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps 30. ágúst 2011

6. fundur Velferðarnefndar Stranda og Reykhólahrepps, haldin 30.ágúst 2011 klukkan 14:00 í Höfðagötu 3 á Hólmavík.

 

Mættir; Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir(Strandabyggð), Hrefna Þorvaldsdóttir (Árneshreppur, í síma), Andrea Björnsdóttir (Reykhólahreppur), Rósmundur Númason (Strandabyggð), Jenný Jensdóttir (Kaldrananeshreppur). Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri ritaði fundargerð.


Dagskrá fundar:

 

1.      Reglur um félagslega heimaþjónustu og gjaldskrá

Bókun: Reglur um félagslega heimaþjónustu eru samþykktar og ákveðið gjald fyrir hana er eftirfarandi:

Einstaklingur undir 1.788.00 í tekjur

Sambýlisfólk undir 2.922.000 í tekjur

0 krónur

Einstaklingur  1.788.00 - 2.324.000 í tekjur

Sambýlisfólk undir 2.922.000 -3.798.00

 

365 kr/klst

Einstaklingar á milli 2.324.001-3.021.000

Sambýlisfólk 3.798.001-4.938.000

664 kr/klst

Einstaklingar yfir 3.021.000 -

Sambýlisfólk yfir 4.938.000

 

974 kr/klst

 

Félagsmálastjóri mun upplýsa notendur og starfsfólk um breytt fyrirkomulag í félagslegri heimaþjónustu og verklagsreglur varðandi vinnuskjöl sem mun þurfa að skila inn mánaðarlega.

 

2.      Reglur um liðveislu

Bókun: Reglur um liðveislu eru samþykktar

 

3.      Fundargerð 8. Fundar BSVest verkefnahóps um málefni fatlaðs fólks kynnt

Bókun: Engar athugasemdir gerðar við fundargerð.

 

4.      Kynning á fjárhagsáætlun um málefni fatlaðs fólks hjá Byggðasamlaginu

Bókun : Engar athugasemdir gerðar við fjárhagsáætlun vegna Bsvest 2012.

 

5.      Stuðningsfjölskyldu úttekt

Andrea Björnsdóttir víkur af fundi.

Bókun: Niðurstaða nefndarinnar færð í trúnaðarbók

 

6.      Önnur mál:

a) Námskeið í foreldrafærni (PMT). Beiðni félagsmálastjóra um þáttöku sveitarfélaganna í kostnað i tengdu námskeiðinu sem er í 4 lotum.

Bókun: Velferðarnefnd tekur vel í erindið og telur mjög jákvætt að fá þjónustu í  nærumhverfið. Beiðnin samþykkt einhljóða.


b) Afnám nafn umsækjanda um þjónustu sem synjað hefur verið þar sem það fellur ekki að viðeigandi reglum

Bókun: Velferðarnefnd tekur vel í erindi félagsmálastjóra og telur fyrirkomulagið ýta undir enn  faglegri þjónustu og virðingu einstaklingsins í litlu samfélagi.


c) Hvatning tómstundafulltrúa um myndun forvarnarstefnu:

Bókun : Velferðarnefnd  tekur vel í erindi tómstundafulltrúa Strandabyggðar felur félagsmálastjóra að kynna sér gerð forvarnastefna annarra  sveitarfélaga.

 

Fundi slitið klukkan 15:24.

 

 

 

 

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón