A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Ný sameiginleg félagsmálanefnd - öflugra samstarf

| 13. nóvember 2010

Öflugra samstarf stendur nú fyrir dyrum milli sveitarfélaganna Strandabyggðar, Árneshrepps, Kaldrananeshrepps og Reykhólahrepps. Sveitarfélögin hafa samþykkt að stofna sameiginlega félagsmálanefnd og stofna formlega félagsþjónustu. Í nýju nefndinni verða fimm fulltrúar, tveir fulltrúar frá Strandabyggð og einn fulltrúi frá hinum sveitarfélögunum. Undirbúningshópur vinnur nú að samningi um félagsmálanefndina og skilgreinir starfslýsingu, starfshlutfall og menntunarkröfur fyrir starf félagsmálastjóra en sú staða verður auglýst von bráðar. 

Námskeið í sápugerð á Hólmavík

| 12. nóvember 2010
Á námskeiðinu er fjallað um hvernig sápa verður til og hvað þarf af efnum og áhöldum við gerð sápu í föstu formi. Algeng aðferð verður kennd en fleiri nefndar. Farið er yfir nokkrar glærur og að því loknu er sýnikennsla. Allir eiga að geta búið til sápu eftir eigin uppskriftum að loknu námskeiðinu.

Námskeiðið verður haldið á Hólmavík fimmtudaginn 18.nóvember og stendur frá kl 19:30-22:00. Námskeiðsgjald er kr 6900 á hvern þátttakanda og er efnisgjald innifalið. Einnig verður hægt að kaupa efni á staðnum til að prófa sig áfram heima. Skráning er á frmst.is eða kristin@frmst.is (sími 8673164) og stendur skráningin til 15. Nóvember.

Sjá nánar um sápur á sapan.is

Fjárhagsáætlun Strandabyggðar 2011

| 09. nóvember 2010

Nú stendur yfir fjárhagsáætlanagerð Strandabyggðar fyrir árið 2011. Ljóst var eftir að fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og áætlanir jöfnunarsjóðs voru lagðar fram nú í október að sveitarfélög á Íslandi þurfa að hagræða í rekstri sínum. 

 

Við leitum nú til íbúa Strandabyggðar um hugmyndir og tillögur að því hvar megi hagræða og spara í rekstri sveitarfélagsins - og hvar ekki. Hægt er að senda inn tillögur hér eða á netfangið: holmavik@holmavik.is.  Einnig er hægt að senda þær í pósti til skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík fyrir 1. desember 2010.

 

Allir íbúar eru hvattir til að taka þátt!

Aðalskipulag Strandabyggðar 2010-2022

| 03. nóvember 2010
Auglýsing á niðurstöðu sveitarstjórnar skv. 18. gr. skipulags-og byggingarlaga.

 

Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur samþykkt tillögu að aðalskipulagi Strandabyggðar 2010-2022. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla voru til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins, hjá Skipulagsstofnun og á heimasíðu sveitarfélagsins, http://strandabyggd.is/adalskipulag/skrar_og_skjol/ með fresti til að gera athugasemdir til  28. júlí 2010. Átta athugasemdir bárust og hefur þeim verið svarað. Gerðar voru minniháttar breytingar á tillögunni, sjá skýringar vegna aðalskipulags á heimasíðu Strandabyggðar. Aðalskipulagstillagan verður send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu hennar.

               
Hólmavík, 3. nóvember 2010

Sveitarstjóri Strandabyggðar.

Starfsmaður á Lækjarbrekku

| 26. október 2010

Leikskólinn Lækjarbrekka á Hólmavík auglýsir eftir starfsmanni í 60% starfshlutfall. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leikskólinn Lækjarbrekka er einsetinn tveggja deilda leikskóli og þar dvelja börn frá 1 árs aldri. Um 30 börn eru á báðum deildum. Einkunnarorð skólans eru „Gleði-Virðing-Vinátta".

 

Áhugi á börnum og samskiptum við þau er nauðsynlegur ásamt skipulögðum vinnubrögðum og samstarfshæfni.

 

Nánari upplýsingar um leikskólann Lækjarbrekku er að finna á www.strandabyggd.is og www.123.is/laekjarbrekka

 

Umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælendum, þurfa að berast skrifstofu Strandabyggðar Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík, eigi síðar en á hádegi mánudaginn 1. nóvember. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Strandabyggðar í síma 451-3510 eða á netfanginu holmavik@holmavik.is

 

 

Hólmavík,  22. október 2010

Sveitarstjóri Strandabyggðar

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón