A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Íbúafundur í Strandabyggð.

| 17. maí 2010
Haldinn verður íbúafundur í Félagsheimilinu á Hólmavík fimmtudaginn 20. maí kl. 19:30 þar sem kynnt verða drög aðalskipulags Strandabyggðar.  Hægt er að kynna sér tillögurnar hér undir valmyndinni "Aðalskipulag" og einnig á skrifstofu sveitarfélagsins.

Kjörskrá Strandabyggðar

| 17. maí 2010

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninganna 29. maí 2010  mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá og með 19. maí til og með 29. maí 2010.  Skal kjósendum bent á að skráð lögheimili samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fjórum vikum fyrir kjördag ræður alfarið hvar kjósandi skal tekinn á kjörskrá.    Samkvæmt 1. mgr. 27. gr. kosningalaga skulu sveitarstjórnir þegar taka til meðferðar athugasemdir er þeim berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar, ef við á. Leiðréttingu má gera fram á kjördag, en óheimilt er að gera breytingar ef tilkynning um lögheimili hefur ekki borist þjóðskrá í tæka tíð.

 

Góður fundur með hreppsnefnd Reykhólahrepps.

| 19. apríl 2010
Þriðjudaginn 13. apríl 2010 hittust hreppsnefnd Reykhólahrepps og sveitarstjórn Strandabyggðar ásamt sveitarstjórum saman til að ræða þau tækifæri sem skapast hafa vegna bættra samgangna milli sveitarfélaganna.  Að fundi loknum var snæddur kvöldverður á Café Riis og svo haldið áfram að spjalla um þau verkefni sem framundan eru og hægt er að vinna saman í.  Var farið yfir flest alla málaflokka s.s. sorpmál, skólaakstur, undirbúning framhaldsdeildar, fjallskil, fráveitumál og fleira sem og hugsanlegar horfur í sameiningarmálum.  Var fundurinn afar góður og upplýsandi og menn sammála um að halda áfram viðræðum og bjóða Dalamönnum að taka þátt í þessum viðræðum.  Þegar hefur verið ákveðið að athuga hvort fýsilegt sé fyrir Reykhólamenn að ganga til samninga við Sorpsamlag Strandasýslu um hreinsun og urðun sorps og stjórnarmönnum Sorpsamlagsins falið að skoða þau mál frekar.

Menningarhátíð í Ryslinge í sumar.

| 09. apríl 2010

Haldin verður Menningarhátíð Mið-Fjóns dagana 19. og 20. júní í framhaldsskólanum í Ryslinge sem staðsettur er um 8 km. frá Arslev, hinum danska vinabæ Strandabyggðar.  Verður boðið upp á leiksýningar og tónlistarviðburði en einnig verða starfræktar vinnubúðir þar sem boðið verður upp á markaðsstemmningu þar sem hægt verður að kaupa hvers kyns handverk. 

Allir eru hjartanlega velkomnir til Ryslinge á þessa miklu menningarhátíð en íbúum Strandabyggðar býðst auk þess að verða beinir þátttakendur sem sýningar- og söluaðilar með handverk sín.  Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í handverkssýningu er bent á að láta Niels Kronvald (kronvald@gmail.com) vita fyrir 1. maí og tilgreina þá einnig hversu mikið pláss þeir þurfa undir handverk sín en sett verða upp tjöld á svæðinu.  Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á www.midtfynskulturfestival.dk og einnig má lesa bréf Niels á dönsku undir liðnum tilkynningar.

Sönglagakeppni Vestfjarða haldin í fyrsta sinn!

| 09. apríl 2010

Haldin verður í fyrsta sinn Sönglagakeppni Vestfjarða nú á vordögum 2010 og hefur verið auglýst eftir lögum til þátttöku en öllum er heimil þátttaka.  Veglegum verðlaunum er heitið fyrir sigurlag keppninnar, s.s. stafrænu upptökutæki frá hljóðfæraversluninni Rín, stúdíótímum í hljóðverinu Tankinum í Önundarfirði, gistingu á Hótel Ísafirði, flugi með Flugfélagi Íslands, veitingum á veitingastaðnum "Við Pollinn" á Ísafirði og Vigurferð með Vesturferðum á Ísafirði.

Verkefnið fékk styrk frá Menningarráði Vestfjarða s.l. haust sem telst mikilvæg viðurkenning á framtakinu, en fjöld annarra aðila styður keppnina með margvíslegum hætti.

Í Sönglagakeppni Vestfjarða er skilyrði að höfundar þurfa að hafa í huga skírskotun til Vestfjarða við laga- og textasmíð.  Rétt til að senda inn lög og texta hafa allir þeir sem áhuga hafa á keppninni.  Sérstakri valnefnd er fengið það hlutverk að velja lög sem komast í úrslit á sérstökum úrslitakvöldum þar sem lögin verða flutt að viðstöddum áheyrendum og dómnefndum.  Áætlað er að halda tvö úrslitarkvöld, annað á suðursvæði Vestfjarða og hitt á Ísafirði þar sem lögin verða flutt í lifandi tónlistarflutningi af hljómsveit sem sett verður saman til undirleiks fyrir söngvara sem valdir verða í samráði við höfunda laganna.  Sérlega vel verður vandað til allrar umgjarðar um keppnina og hæft fólk fengið til samstarfs við flutning, hljóð og fleira.

Dómnefndir gefa lögum stig og það lag sem fær flest stig samanlagt frá báðum úrslitakvöldum ber sigur af hólmi.  Mögulega verður viðstöddum áheyrendum gefinn kostur á að hafa áhrif á niðurstöðuna með einhverjum hætti.

Vefsíða keppninnar hefur verið opnuð og er slóðin www.songvakeppni.is .  Tónlistarmenn og textahöfundar eru hvattir til að taka þátt og senda lög í keppnina en skilafrestur er til miðnættis 30. apríl 2010.

Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón