A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Lagasamkeppni Hamingjudaga 2011

| 22. febrúar 2011
Salbjörg Engilbertsdóttir í Tanknum
Salbjörg Engilbertsdóttir í Tanknum

Ákveðið hefur verið að efna til lagasamkeppni vegna Hamingjudaga á Hólmavík 2011. Skilafrestur á lagi í keppnina er til föstudagsins 29. apríl. Keppnin sjálf verður haldin kl. 20:00 sunnudagskvöldið 8. maí. Lagið má ekki hafa heyrst opinberlega áður og ekki er verra að textinn fjalli að einhverju leyti um hamingjuna, Hólmavík eða Hamingjudaga. Það er þó alls ekki skilyrði. Allar reglur varðandi keppnina má nálgast með því að smella hér.


Sú breyting verður gerð að þessu sinni að Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar mun sjá um skipuleggja og kosta stúdíóupptöku og útgáfu á laginu.  

Skila þarf lögum á geisladisk til Menningarmálanefndar í síðasta lagi föstudaginn 29. apríl, merkt Hamingjudagar á Hólmavík - Lagasamkeppni 2011, Höfðagata 3, 510 Hólmavík. Úrslitakeppnin fer svo fram í félagsheimilinu á Hólmavík og munu áhorfendur að vanda velja sigurlagið.

 

Allar nánari upplýsingar má nálgast hjá framkvæmdastjóra hátíðarinnar, Arnari Snæberg Jónssyni, í netfanginu tomstundafulltrui@strandabyggd.is eða í síma 894-1941.

 

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón