A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Nýr leikskólastjóri við leikskólann Lækjarbrekku

| 10. janúar 2011

Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir, leikskólakennari, hefur verið ráðin leikskólastjóri við leikskólann Lækjarbrekku. Ingibjörg Alma hefur bæði starfað sem almennur starfsmaður og deildarstjóri við leikskólann Ásgarð á Hvammstanga frá árinu 2002 með 2 - 6 ára börnum.  Áður vann hún m.a. á leikskólanum Sólgarði sem er leikskóli á vegum Félagstofnunar stúdenta og er fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 2 ára. Ingibjörg Alma kemur til starfa 4. apríl n.k. en hún mun koma að skipulagningu innra starfs fram að þeim tíma.

Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir er boðin velkomin til starfa fyrir Strandabyggð. 

Fundur í sveitarstjórn

| 10. janúar 2011
Fundur 1175 í sveitarstjórn Strandabyggðar verður haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hafnarbraut 19, miðvikudaginn 12. janúar 2011 kl. 18:15. Dagskrá fundarins má sjá hér.

Tillaga um flutning skrifstofu Strandabyggðar

| 10. janúar 2011

Þegar leitað var til íbúa Strandabyggðar eftir sparnaðar- og hollráðum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir áramót komu fram ýmsar tillögur sem snéru að mögulegum flutningi sveitarstjórnarskrifstofu Strandabyggðar frá Hafnarbraut 19. Þar hefur hún verið til húsa um árabil. Á vinnufundum sveitarstjórnar Strandabyggðar hefur verið rætt um þessar tillögur og kostir þeirra og gallar bornir saman.

Sú tillaga að skrifstofan verði flutt í húsnæði hreppsins að Höfðagötu 3 og starfrækt þar með Þróunarsetrinu á Hólmavík hefur verið skoðuð sérstaklega í samráði við starfsfólk skrifstofunnar. Hefur nú tillaga um að ráðist verði í þann flutning verið lögð fyrir sveitarstjórn og verður ákvörðun um þetta tekin fyrir á fundi miðvikudaginn 12. janúar. Hugmyndin er að flutt verði inn í lausar skrifstofur á annarri hæð, jafnframt því að farið verði í þær tilfæringar sem þarf innan Þróunarsetursins.

...
Meira

Tímabundið starf í leikskólanum Lækjarbrekku

| 07. janúar 2011
Leikskólinn Lækjarbrekka á Hólmavík auglýsir eftir starfsmanni í 100% starfshlutfall. Um þriggja mánaða starf er að ræða og er mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.


Leikskólinn Lækjarbrekka er einsetinn tveggja deilda leikskóli og þar dvelja börn frá 1 árs aldri. Um 30 börn eru á báðum deildum. Einkunnarorð skólans eru:

                                                               
Gleði - Virðing - Vinátta

 

Áhugi á börnum og samskiptum við þau er nauðsynlegur ásamt skipulögðum vinnubrögðum og samstarfshæfni.

 

Nánari upplýsingar um leikskólann Lækjarbrekku er að finna á www.123.is/laekjarbrekka

 

Umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælendum, þurfa að berast skrifstofu Strandabyggðar að Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík, í síðasta lagi fimmtudaginn 13. janúar 2011. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Strandabyggðar í síma 451-3510. Einnig er hægt að senda póst á netfangið  holmavik@holmavik.is

 

Hólmavík 7. janúar 2011
Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri

Skólastarf fellur niður í dag.

| 07. janúar 2011
Allt skólastarf í Grunn- og Tónskólanum á Hólmavík fellur niður í dag, föstudaginn 7. janúar, vegna aftakaveðurs sem gengur nú yfir norðanvert landið.
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón