Hamingjan sanna - Ásdís Olsen
Ásdís Olsen leiddi gesti ljúflega inn í núvitund fyrir utan Félagsheimilið á Hólmavík í gær. Veðurblíða var með eindæmum og götugrill í hverfum Hólmavíkur settu svip á bæinn. Ásdís Olsen leggur áherslu á jákvæða sálfræði og mikilvægi þess að við séum meðvituð um að staldra við í áreiti hversdagsins og upplifa líðandi stundu. Ásdís Olsen verður með opna vinnustofu í Félagsheimilinu á Hólmavík á morgun, laugardaginn 2. júlí milli kl. 10:00 - 12:00. Þar mun hún segja gestum frá fjölmörgum leiðum sem hjálpa okkur að finna og höndla hamingjuna. Ekki missa af þessu! Aðgangur er ókeypis.
Svavar Knútur og hlýjir tónar
Hamingjutónar hljómuðu um Heilbrigðisstofnunina á Hólmavík þegar tónlistarmaðurinn Svavar Knútur sló þar á fallega strengi fyrir heimilisfólk. Svavar Knútur fékk hlýjar móttökur og var þetta ógleymanleg stund fyrir þá sem voru viðstaddir. Tónlistarmaðurinn kom færandi hendi með geisladisk sinn sem ber nafnið Amma, en í gærkvöldi hélt hann tónleika fyrir gesti í Hólmavíkurkirkju þar sem allar ömmur fengu frítt inn.
Ofurhlaupari tekur þátt í Hamingjuhlaupinu
Það stefnir í góða þátttöku í hlaupinu í ár, en frést hefur af allmörgum sem ætla að koma inn í hlaupið á mismunandi stigum þess, enda er alls engin skylda að hlaupa frá upphafi til enda. Einn af þeim sem munu stefna á þátttöku í hlaupinu er engin annar en ofurhlauparinn Gunnlaugur Júlíusson. Gunnlaugur er fyrir löngu landsþekktur fyrir glæsta frammistöðu í ofurmaraþonhlaupum þar sem hann hefur oftar en ekki hlaupið mörg hundruð kílómetra í einu. Hlaupið hefst kl. 16:00 við Gröf í Bitrufirði og lýkur kl. 20:25 við hátíðarsvæðið á Hólmavík. Koma hlauparanna markar upphaf Hnallþóruhlaðborðs Hamingjudaga, en ekki verður snert á tertunum fyrr en allir eru komnir í mark. ...
Meira
Barþraut í kvöld kl. 21:00
Í gær fór fram frábært námskeið í hláturjóga sem var vel sótt af 13 hláturmildum konum á öllum aldri. Í kvöld verður hátíðinni haldið áfram, en þá fer fram Pub Quiz í Pakkhúsinu á Café Riis. Atburðurinn hefst kl. 21:00, en stjórnandi og spyrill er hin góðkunna Halla Steinólfsdóttir, bóndi í Ytri-Fagradal. Strandamenn eru hvattir til að mæta á atburðinn, ekkert kostar inn en til mikils er að vinna!