A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Fræðslufyrirlestur um málefni fatlaðra miðvikudaginn 21. mars

| 20. mars 2012
Skelin. Mynd IV
Skelin. Mynd IV
Eva Þórdís Ebenezersdóttir fötlunarfræðingur og þjóðfræðingur verður með fræðslufyrirlestur um málefni fatlaðra í Skelinni á morgun, miðvikudaginn 21. mars 2012. Fyrirlesturinn hefst kl. 13:00 og eru allir velkomnir!

Fötlunargeirinn og fötlunarpólitík er alls ekki einfalt fyrirbæri enda hópurinn sem um ræðir margbreytilegur líkt og samfélagið allt. Við þetta tækifæri verður farið, eins og hægt er, ofan í saumana á orða og hugtakanotkun í tengslum við málefni fatlaðs fólks. Hugtakanotkunin er oftar en ekki byggð á hugmyndafræði af einhverju tagi og verður því um leið og hugtökin flæða fram gerð nokkur grein fyrir ólíkri hugmyndafræði innan fötlunarfræða og innan baráttuhreyfinga fatlaðs fólks. Eitt leiðir af öðru og hugmyndafræðin kallar fram fyrirbæri á borð við samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og NPA, notendastýrða persónulega aðstoð sem eru tvö stór og mikilvæg atriði í málefnum fatlaðs fólks í dag.

Söfnun fyrir útsendingarbúnaði að verða lokið

| 20. mars 2012
Hólmavíkurkirkja 2012, mynd IV
Hólmavíkurkirkja 2012, mynd IV
Söfnun fyrir flatskjá og útsendingarbúnaði úr Hólmavíkurkirkju yfir í Heilbrigðisstofnunina á Hólmavík sem núna stendur yfir í Strandabyggð er á lokasprettinum og hefur gengið afar vel. Alls hafa safnast kr. 795.000 en með búnaðinum verður unnt að senda út alla viðburði og athafnir í Hólmavíkirkju til íbúa á Heilbrigðisstofnuninni. Fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök og einstaklingar á Ströndum geta lagt þessu brýna og góða málefni lið en áætlaður kostnaður er um 1 milljón króna....
Meira

Hlutverk félagslegrar ráðgjafar

| 19. mars 2012
Markmið með félaglegri ráðgjöf er að veita upplýsinga og ráðgjöf um viðeigandi stuðning og úrlausnir mála. Félagsmálastjóri annast félagslega ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna. Komið er til móts við einstaklingsbundnar þarfir þeirra sem sem þangað leita. Markmið félagslegrar ráðgjafar er að hjálpa fólki til sjálfshjálpar til að allir geti notið sín sem best í samfélaginu og fengið úrlausn sinna þarfa. Félagsleg ráðgjöf felur í sér til að mynda ráðgjöf vegna:...
Meira

Fyrirhuguð bygging á raðhúsi á Hólmavík

| 15. mars 2012
Líf og fjör á Hólmavík. Mynd IV
Líf og fjör á Hólmavík. Mynd IV

Á sveitarstjórnarfundi sem haldinn var 13. mars s.l. voru húsnæðismál til umræðu sem er eitt stærsta hagsmunamál sveitarfélagsins um þessar mundir. Samþykkt var að ganga til viðræðna við Hornsteina fasteignafélag ehf. um kaup á íbúðum í þriggja íbúða raðhúsi sem Hornsteinar hafa hug á að byggja á Hólmavík. Mikil eftirspurn er eftir húsnæði í sveitarfélaginu og hefur sú eftirspurn aukist jafnt og þétt á síðustu misserum. Fjölskyldur hafa ítrekað lent í vandræðum vegna húsnæðisleysis á Hólmavík og algengt að fólk hafi bjargað sér tímabundið með búsetu inn á ættingjum, í sumarhúsum og jafnvel á gistiheimilum á svæðinu.

...
Meira

Stærsti íþróttaviðburður á Ströndum

| 15. mars 2012
Stærsti íþróttaviðburður á Ströndum, hin árlega Strandaganga Skíðafélags Strandamanna, fer fram í Selárdal við Hólmavík á laugardag. Keppt verður í 5 km, 10 km og aldurskipti 20 km göngum, auk þess sem stelpur og strákar 12 ára og yngri geta keppt í 1 km göngu. Þá verður einnig keppt í sveitakeppni í öllum vegalengdum, en hún fer þannig fram að þriggja manna lið ganga sömu vegalengdina og samanlagður tími þeirra gildir. Ræst verður í 1 km gönguna klukkan 12.20 og í aðrar vegalengdir klukkan 13.00....
Meira
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón