A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Nafnasamkeppni á neðstu hæðinni

| 30. mars 2012
Neðsta hæðin. Mynd IV.
Neðsta hæðin. Mynd IV.
Sveitarfélagið Strandabyggð blæs nú til samkeppni um nafn á neðstu hæðina í Þróunarsetrinu. Skila þarf hugmyndum að nafni á skrifstofu Strandabyggðar fyrir kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 13. apríl 2012 eða í netfang Arnars S. Jónssonar tómstundafulltrúa:  tómstundafulltrui@strandabyggd.is.

Sveitarstjórn Strandabyggðar mun velja nafn til samþykktar á fundi sveitarstjórnar sem haldinn verður 17. apríl 2012. Strandamenn nær og fjær og landsmenn allir, ungir sem aldnir eru hvattir til að taka þátt í þessari skemmtilegu keppni! Vinningshafi verður heiðraður sérstaklega á formlegri opnunarhátíð neðstu hæðarinnar nú í vor.

Neðsta hæðin verður notuð sem móttaka sveitarfélagsins Strandabyggðar, fundaraðstaða, fræðsluaðstaða auk þess sem hún verður nýtt sem sýningar- og viðburðarými. Þá er fyrirhugað að framhaldsdeild á Hólmavík geti hafið starfsemi sína á neðstu hæðinni en umsókn sveitarstjórnar um stofnun framhaldsdeildar á Hólmavík hefur verið vísað til fjárlagagerðar fyrir árið 2013. Þróunarsetrið á Hólmavík og Fræðslumiðstöð Vestfjarða koma að enduruppbyggingu neðstu hæðarinnar með sveitarfélaginu Strandabyggð auk þess sem sótt er um styrki í verkefnið.

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón