A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Menningarverðlaun 2013

| 02. júlí 2013
Ester Sigfúsdóttir og Viðar Guðmundsson, mynd e. Jón Jónsson
Ester Sigfúsdóttir og Viðar Guðmundsson, mynd e. Jón Jónsson
Menningarverðlaun Strandabyggðar voru veitt á Hamingjutónum síðastliðinn laugardag.

Ásta Þórisdóttir, formaður tómstunda- íþrótta- og menningarnefndar veitti verðlaunin. Menningarverðlaun eru veitt sem árleg hvatning til einstaklings, félags, stofnunar, fyrirtækis eða hóps fyrir eftirtektavert framtak á sviði menningar og lista í sveitarfélaginu á líðandi ári. Ákvörðun um handhafa verðlaunanna er tekin af nefndinni að fengnum tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins. Auk þess sem nefndin hefur heimild til að bæta við tilnefningum....
Meira

Friðarhlaup á Hólmavík í dag kl. 15:00

| 02. júlí 2013

Friðarhlaupið kemur á Strandir í dag, miðvikudaginn 3. júlí.

Eitt liðanna leggur af stað frá Hólmavík klukkan 11:00 og hleypur á Drangsnes. Hitt liðið kemur hlaupandi frá Hrútafirði á Hólmavík og kemur til bæjarins klukkan 15:00.


Að hlaupinu loknu verður friðarathöfn og plantað verður friðartré á blettinum neðan við vitann þar sem allir eru velkomnir.

...
Meira

Til hamingju

| 02. júlí 2013
Til hamingju með frábæra Hamingjudaga!

Hamingjudagar árið 2013 gengu stóráfallalaust fyrir sig og ekki er annað að merkja en að ánægja með hátíðina sé töluverð enda dagskráin fjölbreytt, veðrir gott og hamingjan í fyrirrúmi.

Allar myndir og frásagnir um hátíðina eru vel þegnar og sendist á póstfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is.

Takk fyrir þátttökuna og skemmtunina.

Námskeið og smiðjur eru ókeypis

Salbjörg Engilbertsdóttir | 27. júní 2013

Fram til laugardags er boðið upp á nokkrar smiðjur og vegna góðra styrkja frá fyrirtækjum í Strandabyggð og HSS verða þær ókeypis.

 Í dag fimmtudag er eins og áður segir námskeið í margskonar magadansi í Félagsheimilinu á Hólmavík og er leiðbeinandi Margrét Erla Maack.  Síðasti dagur í kassabílasmiðjunni er heima hjá Valla í dag milli kl. 15 og 18 og á morgun föstudag er Ukulele tónlistarsmiðja með Svavari Knút í setustofu Grunnskólans og á Laugardagsmorgunn er Sirkus Ísland með sirkusnámskeið í Félagsheimilinu.  

Endilega mætið bara á staðinn og takið þátt.  Nánar auglýst í dagskránni á www.hamingjudagar.is

Hamingjan er hér

| 26. júní 2013
Hamingjudagar eru hafnir og halda áfram með gleði og ánægju íbúa og gesta að leiðarljósi fram yfir helgi. Ekki láta spennandi dagskrá framhjá þér og þínum fara.

Njótið og þér munuð gleðjast!

Í Kaupfélaginu er að finna rauðan vegg hlaðin tilkynningum varðandi Hamingjudaga, þar má einnig finna aukaeintök af dagskrárbæklingi sem borinn var í hús á Ströndum og víðar. Á Facebook er að finna síðu Hamingjudaga og viðburðarsíðu Hamingjudaga 2013. Best er þó að fylgjast með á www.hamingjudagar.is.
Eldri færslur

Könnun

Facebook

Atburðadagatal

Næstu atburðir

Vefumsjón