A A A

Valmynd

Fréttir

Skólastarf

Heilsuefling í komandi viku

| 10. september 2012
Heilsuefling í formi smalamennsku - ljósm. af vef Sauðfjársetursins
Heilsuefling í formi smalamennsku - ljósm. af vef Sauðfjársetursins
Heilsuefling í Strandabyggð heldur áfram í nýhafinni viku. Sundleikfimi sem vera átti í dag kl. 17:00 fellur þó niður, þar sem enn er bilun í tölvubúnaði sundlaugarinnar. Von er á viðgerð á búnaðinum nú um miðja þessa viku. Á þriðjudag verður hefðbundin dagskrá með hádegisrölti, fótbolta og badmintoni í Íþróttamiðstöð. Á miðvikudag stjórnar Andrea K. Jónsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar hádegisrölti frá Þróunarsetrinu - þá gefst tilvalið tækifæri fyrir íbúa að mæta og kynnast nýja sveitarstjóranum. Síðar sama dag verður sundkennsla fyrir fullorðna kl 17:00.

Skoðið dagskrá næstu daga með því að smella hér.

Sveitarstjórnarfundur 11. september

| 07. september 2012
Hólmavíkurkirkja - ljósm. ÁJ
Hólmavíkurkirkja - ljósm. ÁJ
Sveitarstjórnarfundur nr. 1200 í Strandabyggð verður haldinn þriðjudaginn 11. september nk. Fundurinn verður haldinn í Hnyðju að Höfðagötu 3 á Hólmavík og hefst kl. 16:00.

Dagskrá fundarins má sjá með því að smella hér.

Fundaáætlun sveitarstjórnar Strandabyggðar

| 07. september 2012
Skrifstofa Strandabyggðar - ljósm. JJ
Skrifstofa Strandabyggðar - ljósm. JJ
Í samræmi við samþykkt um stjórn og fundarsköp Strandabyggðar hafa verið ákveðnar dagsetningar á sveitarstjórnafundum næsta árið. Sveitarstjórn heldur fundi að jafnaði á mánaðarfresti og hefjast þeir kl. 16:00, annan þriðjudag í mánuði.

Verði tímasetningu fundanna breytt verður það auglýst sérstaklega. Erindi sem óskað er eftir að sveitastjórn fjalli um á fundum sínum þurfa að berast til sveitarstjóra fyrir lok miðvikudags í vikunni fyrir fund. Áætlunina má nálgast með því að smella hér.

Heilsuefling heldur áfram

| 07. september 2012
Hressir krakkar í Leikskólanum Lækjarbrekku - ljósm. IV
Hressir krakkar í Leikskólanum Lækjarbrekku - ljósm. IV
Á morgun, laugardaginn 8. september, er komið að allra yngstu kynslóðinni að taka þátt í heilsueflingu í Strandabyggð. Klukkan 11:00 hefst leikfimi fyrir börn á aldrinum 3-6 ára í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík. Það er Jóhanna Rósmundsdóttir sem mun sjá um tímana og ætlast er til að foreldi eða umsjónaraðili sem hefur náð 15 ára aldri mæti með barninu og taki þátt. Að þessu sinni verður sett upp þrautabraut. Markmið þess að fara í gegnum brautina er meðal annars að efla alhliða hreyfiþroska barna, til dæmis jafnvægi, liðleika, styrk, gróf- og fínhreyfingar.

Fólk er hvatt til að taka þátt í heilsueflingunni og mæta um helgina - sjá dagskrána með því að smella hér.

Auglýst eftir starfskrafti í Félagsmiðstöðina Ozon

| 03. september 2012
Strandabyggð auglýsir eftir starfsmanni til viðveru á opnum húsum félagsmiðstöðvarinnar Ozon veturinn 2012-2013.

Starfsmaðurinn þarf að:

- vera orðinn 20 ára
- hafa góða skipulagshæfileika
- sýna sjálfstæði og frumkvæði
- hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum
- hafa ánægju að því að vinna með börnum og unglingum
- hafa hreint sakavottorð


Starfshlutfall er um 7%. Vinnutími er öll þriðjudagskvöld kl. 20:00-22:00 og annað hvert mánudagskvöld kl. 19:30-21:00. Ráðningartímabil er frá 15. september til 31. maí.


Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnar Snæberg Jónsson tómstundafulltrúi í s. 894-1941 eða í netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is. Umsóknum skal skila á skrifstofu Strandabyggðar í síðasta lagi mánudaginn 10. september.

Eldri færslur

Facebook

Vefumsjón